Vera


Vera - 01.06.2001, Qupperneq 22

Vera - 01.06.2001, Qupperneq 22
Fjölbreytni auðgar „80% fólks sem kemur í Miðstöð nýbúa segjast ekki hafa eignast íslenska vini." fæddist í janúar 1994. Um svipað leyti var ég beðin að aðstoða víetnömsk börn í Vogaskóla en þá var ég byrjuð að kenna víetnömsku í Námsflokkum Reykjavíkur sem ég geri enn. Það er svo mikilvægt að læra móðurmál sitt vel, það er grundvöllur fyrir almennum málskilningi. Víetnamar tala að sjálf- sögðu víetnömsku sín á milli og þó börnin hafi fæðst hér verða þau að læra móðurmál sitt al- mennilega. 1996 byrjaði ég að vinna sem túlkur á Miðstöð nýbúa með annari vinnu en fékk fasta vinnu árið eftir. Ég sé um almenna aðstoð við Víetnama og er verkefnisstjóri f móðurmálskennslu. Nú eru sex tungumál kennd hér sem móðurmál en voru tals- vert fleiri áður. f tengslum við það sé ég um al- þjóðasafnið á Borgarþókasafninu en þargeta börn- in fengið lánaðar bækur á sínu tungumáli. í sumar hef ég umsjón með sumarskóla fyrir ný- búa f Austurbæjarskóla, á vegum íþrótta- og tóm- stundaráðs, en í tengslum við það er ókeypis fjög- urra vikna námskeið í íslensku fyrir Vfetnama, bæði fullorðna og börn. Ég sé um fordómafræðslu sem Miðstöð nýbúa býður upp á fyrir alla sem þess óska og ég hef verið að byggja upp menningarfræðslu um Asíu. Ég vona að sú fræðsla eflist þegar Al- þjóðahúsið opnar í haust. Til þess að minnka for- dóma er nauðsynlegt fyrir íslendinga að heyra um bakgrunn innflytjenda og menningu. Þjóðin mín bjó við stríð í 200 ár og það hefur að sjálfsögðu sett mark á okkur. Stríðinu við Bandaríkjamenn lauk 1975 en þá tók við stríð við Kínverja sem lauk ekki fyrr en 1989." Allar Asíukonur keyptar til landsins? Katrínu hefur oft fundist erfitt að takast á við lífið á íslandi, hér var allt nýtt og framandi og tungumálið sérstaklega erfitt. Hún segist finna fyrir fordómum á hverjum degi en erfiðast finnst henni það viðhorf sem íslendingar virðast hafa fyrir Asíukonum al- mennt. „Sú skoðun virðist lífseig að allar Asíukon- ur hafi verið keyptar til landsins og við verðum oft fyrir niðurlægjandi athugasemdum sem tengjast kynlífi. Þá sjaldan ég fer út á skemmtistaði líður Katrín í þjóðbúningi fjallabúa í Norður Víetnam þegar hún fór þangað í heimsókn 1996. mér hræðilega þegar ég verð fyrir slíkum árásum. Stundum fór ég út með tveimur vinkonum frá Asíu og þá mögnuðust fordómarnir og dónalegar at- hugasemdir frá ókunnugu fólki. Ég fann ekki eins mikið fyrir þessu þegar ég og maðurinn minn vor- um saman. Ég hef ekki eignast fslenskar vinkonur nema hér í vinnunni, og hef gert könnun á því með- al fólks sem kemur í Miðstöð nýbúa. 80% þeirra segjast ekki hafa eignast íslenska vini." Katrín hefur lagt mikið á sig til að læra íslensk- una, fór m.a. í Endurmenntunardeild HÍ. Hún talar góða fslensku en óttast samt að hún geti ekki veitt börnum sínum nægilega hjálp þegar lengra kemur í námi þeirra. Syni hennar gengur mjög vel í skóla, hefur fengið toppeinkunnir, en strax er farið að bera á því að þegar reynir á íslenskukunnáttu stendur hann ekki eins vel að vígi. Katrín hjálpar honum við námið í tvo tíma á dag og þarf oft að fletta upp í orðabókum. Þar sem ekki ertil íslensk-víetnömsk orðabók þarf hún að nota íslensk-enska og ensk- víetnamska orðabók. Hún óttast því aðgengi barna sinna að framhaldsnámi og telur að til þess að börn af erlendum uppruna standi jafnfætis inn- fæddum þurfi þau sérkennslu í íslensku. Slfkt stendur hins vegar ekki til boða í grunnskólum. „Tungumálið er lykillinn að samfélaginu og þar þarf verulegt átak til þess að börn af erlendum uppruna verði ekki annars flokks þegnar í landinu. Þar þarf bæði góða móðurmálskennslu og sérstaka aðstoð í íslensku," segir Katrín að lokum. ífk A 22
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.