Vera


Vera - 01.06.2001, Blaðsíða 72

Vera - 01.06.2001, Blaðsíða 72
í 1 9. júní 1 984 er viötal við Önnu Sigurðar- dóttur, stofnanda Kvennasögusafns Islands, undir yfirskriftinni Ekki orðið nægileg breyt- ing í jafnréttisátt, þrátt fyrir þrotlaust starf. Hér er brot úr viðtalinu: „Sem jafnréttissinni get ég ekki annað en fagnað hverju því spori sem horfir til framfara í þeim málum. Það er rétt að ég tilheyri þessum gömlu „kvenrétt- indakerlingum", sem svo voru kallaðar hér áður fyrr og áttu nú ekki upp á pallborðið alls staðar. Mér finnst sá hugsunarháttur hafa mikið breyst síððari árin. Sjálfsagt er það nýju kvennavakningunni að þakka, en ég skal segja þér að ég var nú ekki ýkja hrif- in af stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar á sínum tíma. Ég fór á opinn fund hjá þeim haustið 1970 og las yfir þeim og býsnaðist yfir því að þessar ungu konur í út- löndum og hér heima héldu að þær væru búnar að uppgötva einhvern nýjan sannleika, að eitthvað nýtt hefði átt sér stað þegar „það hafði ekkert nýtt komið fyrir, nema hávaði og rauðir sokkar," eins og ég orðaði það þá. Á þeim tíma fannst mér sjálfsagt að allar jafnrétt- issinnaðar konur, ungar og gamlar, ættu að starfa saman innan KRFÍ, enda hafði þá nokkru áður verið stofnuð æskudeild félagsins. Úur voru þær kallaðar og höfðu unnið ýmsar kannanir, svo sem á lestrar- og reikningsbókum í barnaskólum og á skipan kvenna og karla í launaflokkum í bönkum landsins. Úu-hópurinn var stofanaður að ósk Alþjóðasambands kvenna (- International Alliance of Women) sem Kvenréttinda- félag íslands er aðili að. Á fundi sem sambandið hélt í London 1967 var þeirri ósk beint til aðildarfélaganna að þau reyndu að hafa sérstakar deildir - æskudeildir - með konum yngri en 35 ára. Þar sem ég sat þennan fund kom það í minn hlut að koma þessari deild hér á laggirnar. Árið 1968 sáu tvær af Úunum, Ásdís Skúladóttir og Guðfinna Ragnarsdóttir, um klukkutíma dagskrá í út- varpinu. Þar ræddu saman konur og karlar um „hlut- verk kynjanna" í fyrsta sinn á íslandi á opinberum vettvangi. Það er því kannski ekki fráleitt að segja að nýja kvennahreyfingin hafi byrjað hjá Úunum. Það leið ekki langur tími þar til mér varð Ijóst að Rauðsokkahreyfingin og KRFÍ hefði varla geta starfað í sameiningu og ekkert var við það að athuga að starf- andi væru tvö ólík félög sem ynnu að sama markmiði eftir ólíkum leiðum og meðal ólíkra hópa aö vissu leyti. Rauðsokkahreyfingin átti því fullan rétt á sér, og hún vakti marga til umhugsunar um það misrétti sem konur eiga við að búa o Anna Sigurðardótlir (1908-1996) fœddist á Hví'tárbakka í Borg- arfirði. Hún gekk í Kvennaskólann í Reykjavík og dvaldi eitt ár í Þýskalandi. Árið 1938 giflist fiún Skúla Þorsteinssyni og eignuð- ust þau þrjú börn. Anna stofnaði Kvennasögusafn íslands 1975 og var það á fieimili hennar þar til hún lést. Anna hlaut fjölda við- urkenninga fyrir störfsín íþágu kvenréttinda og rannsókna í kvennasögu. Hún fékk fálkaorðuna 1978 og varð fyrst íslenskra kvenna heiðursdoktor við Háskóla íslands árið 1986. Anna Sigurðardóttir ásamt Vigdísi Finnbogadóttur forseta íslands í 19. júní 1984. Smm RAKARA- OG HÁRGREIÐSLUSTOFA Særún hársnyrtimeistari Klippum permum litum og leggjum. Hár lenging - ráðgjöf. Verið velkomin og njótið góðrar þjónustu hjá okkur. Særún, Linda Rós og Birna S. 588-3660 Linda Rós hársnyrtimeistari Birna hársnyrtine[T11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.