Vera - 01.06.2001, Blaðsíða 70
Tónlist
cesana evora
sðo vlcente dl longe
I
b {ag^jl
Heiða Eiríksdóttir
Cesaria Evora
Sao vicente di longe
Hún hefur verið kölluð berfætta söngkonan frá Græn-
höfðaeyjum en þar er hún fædd fyrir rúmum sextíu
árum, f bænum Mindelo, Hún kemur alltaf fram ber-
fætt á tónleikum til að sýna samstöðu með löndum
sínum frá Grænhöfðaeyjum sem langar að snúa aftur
til heimalandsins en geta það ekki vegna fátæktar.
Hún byrjaði að syngja fyrir vini og vandamenn í fjöl-
skylduboðum um 5 ára gömul og hélt áfram í æsku
og var farin að syngja á götum úti um 17 ára aldur.
Hún fékk aldrei næga peninga til að lifa af tónlistinni
en hélt þó ótrauð áfram. Til að reyna frekar fyrir sér
tók hún til við söng í kaþarettum og fékk þannig þá
kynningu sem hún þurfti til að finna sér loks plötu-
samning, sem betur fer fyrir okkur sem höfum notið
raddar hennar og tónlistar síðustu ár.
Eftir Cesariu Evora liggja margar plötur en hún
hefur verið einkar iðin síðastliðin 10 ár því á þeim
tíma eru komnar út átta plötur. Hún spilaði á Listahá-
tíð í Reykjavík í fyrra, á tveimur uppseldum tónleik-
um, en splunkuný plata var að koma frá henni nú í
vor. Bæði fyrir fólk sem hefur gaman af Buena Vista
Social CluB, og að sjálfsögðu aðra, er þetta tilvalin
plata til að skella í og búa til stemningu, en mjög
seiðandi andrúmsloft er á disknum. Cecaria er djúp-
rödduð söngkona með mjög mikla sérstöðu í rödd
sinni sem nýtur sín sérlega vel á þessari plötu. Hún
hefur einstaklega mikla flauelsáferð sem fellur vel við
ríkulegar útsetningar þar sem slagverk, strengir og
brass hreinlega berjast um athyglina. Rödd hennar er
eins og flauelspúði á þykkum og mjúkum leðursófa,
eða súkkulaðihúðin utan um gómsætan konfektmola
með döðlum, hnetum og öðrum suðrænum ávöxtum
inní. Njótið strax!
Pixies
Complete 7B'-sides
Pixies er ein af þeim hljómsveitum sem nær allir voru
að hlusta á fyrir rétt um tfu árum. Maður fór ekki í
gleðskap öðruvísi en að minnsta kosti einn Pixies-að-
dáandi reyndi að ráða yfir geislaspilaranum og oftast
voru flestir sáttir þótt Pixies-lögin hljómuðu eitt af
öðru. Krakkarnir í Pixies voru vinir sem kynntust í
bænum Boston árið 1986, þeim leiddist og stofnuðu
því hljómsveit sem breytti lífi þeirra. Black Francis
var gítarleikari og söngvari og hefur haldið áfram sól-
óferli sínum sem Frank Black. Kim Deal var bassaleik-
ari og söngkona en hún hefur líka verið í kvenna-
hijómsveitinni The Breeders ásamt systur sinni. Svo
voru Joey Santiago (herbergisfélagi Frank Black) á gít-
ar og Dave Lovering á trommur en minna hefur heyrst
um þá eftir að Pixies lögðu upp laupana árið 1993.
Með plötunni Safn B-filiða er verið að gefa göml-
um og nýjum aðdáendum tækifæri til að heyra minna
fræg lög með sveitinni, eða fræg lög í alveg nýjum
búningi. Hér eru líka lög eftiraðra listamenn (meðal
annars Neil Young) í Pixies-útgáfum og tónleikaupp-
tökur. Allt þetta gefur skýrt til kynna hversu gaman
var greinilega að vera í Pixies. Þau geisla af krafti, ein-
hvers konar frumkrafti rokksins sem oft er ástæðan
fyrir því að einhvern langar að kunna að spila á gítar
eða vera í háværri hljómsveit. Fyrir fólk í slíkum pæl-
ingum er þessi diskur mjög hvetjandi og innblásandi.
Hann er dæmi um að einfaldar hugmyndir og rétt
hugarfar er stundum allt sem þarf til að rokka!!
Vilt
Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði
evkia? - vikunámskeið
S: 483 0300
70