Vera


Vera - 01.06.2001, Blaðsíða 52

Vera - 01.06.2001, Blaðsíða 52
Jóna Fanney Friðriksdóttir Á góSum, heitum og þurrum sumrum er mest af friókornum í lofti Einkenni frjóofnæmis. Áberandi þroti i nefi og baugar undir augum fnæmi er algengt vandamál og hefur tíðni þessa „saklausa" en óbærilega sjúk- dóms vaxið á undan- förnum áratugum. Hvaða ofnæm- issjúkdómar eru algengastir hér- lendis og hvernig er hægt að bregðast við til að minnka vanlíð- an hjá þeim sem þjást af þessum kvilla? Vera leitaði svara hjá Unni Steinu Björnsdóttur, dósent og sérfræðings í ofnæmislækningum og ónæmisfræði. Hverjir fá ofnæmi? Ofnæmissjúkdómar eru í raun sjúkdómar unga fólksins þvf í flest- um tilvikum hægirá þessum kvilla með aldrinum. Hjá yngstu börnun- um er ofnæmisexem algengt en í kringum 15-25 ára aldurinn nær of- næmiskvefið og rykmauraofnæmið hámarki. Hjá fullorðnum er ast- minn aftur á móti algengur. Ekki er þó óalgengt að fólk fái ofnæmis- kvef og síðar exem á ævinni. Al- mennt má segja að einstaklingur fái ofnæmi verði hann fyrir sfend- urteknu áreiti af ofnæmisvaldi. HvaSa ofnæmi eru algengust hérlendis? Frjóofnæmi: Talið er að um 5% fullorðinna þjáist af frjóofnæmi hér á landi en í nágrannaríkjum okkar er þessi tala um helmingi hærri. Frjóofnæmi er mun algeng- ara hjá börnum og séu þau talin með eru um 20% landsmanna með frjóofnæmi. Einkennin eru háð frjómagni í lofti og því er það al- gengara meðal íbúa sem búa í gróðursæld. Við margendurtekið á- reiti próteinagna, s.s. frjókorna grasa og trjáa getur ofnæmi brotist fram sökum þess að líkaminn myndar of mikið magn af sértæk- um ofnæmismótefnum. Ekki er óalgengt að sjúklingar með frjóof- næmi fá einnig astmaeinkenni. Meðferð: Það getur verið erfitt að forðast ofnæmisvakann þar sem gróður er yfirleitt í kringum híbýli okkar. í flestum tilfellum er hægt að tryggja ágæta líóan með réttri lyfjameðferð. Ofnæmi fyrir dýrum: Ofnæmi fyrir köttum er algengast hér á landi og talið að um 8,5% íslendinga sé með það. Algengi hundaofnæmis er um 7,5% en ofnæmi fyrir hest- um er hins vegar sjaldgæft eða um 1%. Ekki er vitað um tíðni ofnæmis fyriröðrum dýrategundum. Lík- amsvessar dýra eiga greiða leið um vistarverur okkar og vegna smæðar sinnar berast þeir auð- veldlega í öndunarfæri okkar. Of- næmisvakinn er mjög smár og lím- kenndur og loðir því auðveldlega við hluti. Þvf berast þeir auðveld- lega með fólki. Meðferð: Eina örugga meðferðin gegn dýraofnæmi er að forðast allt samneyti við dýrið og þrífa vel eftir að það er farið. Ef einkenni eru væg og fjölskyldan vill ekki láta dýrið frá sér þarf að gæta þess að það fari ekki inní svefnherbergi þess er hefur ofnæmi. Einnig er mikilvægt að þvo dýrið á eins til tveggja vikna fresti, þvo sængurföt vikulega, þurrka reglulega af með rökum klút og tryggja góð loft- skipti í íbúðinni. Rykmauraofnæmi: Talið er að 6% landsmanna sé með rykmauraof- næmi. Á suðlægari slóðum er jafn- vel talið að rykmauraofnæmi hrjái um helming íbúa. Ástæða þessa er m.a. sú að rykmaurar þrífast best við jafnan hita, yfir 20°C. Þeir eru viðkvæmir fyrir rakastigi og sé því haldið undir 50% RH drepast þeir. Bólstruð húsgögn, teppi og þykkar gardínur eru „kjörlendi" mauranna. Það er ekki rykið í híbýlum okkar sem veldur ofnæminu heldur sjálf- ir rykmaurarnir og úrgangur þeirra sem safnast í rykið. Maurasparð er álíka stórt og grasfrjó. Þegar það berst í öndunarveginn getur fólk fengið einkenni ofnæmiskvefs og astma. Meðferð: Gæta þarf fyllsta hrein- lætis, þvo sængurföt vikulega, þurrka vel af með rökum klút og nota sérstök dýnuklæði. Nota skal sæng sem má þvo við 60%. Forðast skal gólfteppi og bólstruð húsgögn. Astmi: Um 4-5% íslendinga eru með astma og er hann algengari hjá börnum. Astmi er langvinnur bólgusjúkdómur í berkjum, ein- hvers konar bráða ofnæmissvörun og er því algengur fylgikvilli frjó- korna-, dýra- og rykmauraofnæmis. Ofnæmisvakinn ræsir ofnæmis- frumur og þær losa frá sér boðefni sem valda á svipstundu kláða, hnerra og nefstíflu. Smám saman fyllist berkjuveggurinn af bólgu- frumum, slími og bjúg. Meðferð: Engin skyndilausn ertil við astma. Lyfjameðferð í formi úð- ara og stauka en jafnframt fræðsla um þennan langvinna sjúkdóm er lykilþáttur í meðferð. Mjög mikil- vægt er að sjúklingur læri að þekkja hvaða áreiti og ofnæmisvak- ar komi einkennum af stað. O 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.