Vera - 01.06.2001, Blaðsíða 35
sæ
Þegar komið var inn í Baðhúsið í einu hádeg-
inu voru þrjár hressar konur að æfa sig í
tækjasalnum. Þær Guðríður Matthíasdóttir
verslunarkona, Olafía Sigurjónsdóttir hjúkrun-
arritari og Lára Hannesdóttir nemi í MR kíktu á
niðurstöðurnar úr könnun VR.
Meta konur starfsumhverfi sitt öðruvísi en karl-
menn?„Það vinna bara konur meS mér þannig aS ég
get ekki svaraS þessu," segir GuSríSur sem segir
mjög góSan anda á hennar vinnustaS. „Hér segir aS
konur séu almennt óánægSari meS launin en karlarn-
ir og þaS sést nú alveg á spítalanum," segir Olafía
sem vinnur á geSdeild á Landspítalanum og vísar í
verkfall hjúkrunarfræSinga. „En ég sé þaS alveg aS
karlmenn horfa líka meira á launin. Þeir stoppa
styttra viS en konurnar og færa sig meira til í störf-
um."
Af hverju ætli það sé?
„Ætli þaS sé ekki tengt því aS þeir sjá sig sem fyrir-
vinnu heimilisins," segir Olafía. „ViS konurnar erum
alltof hógværar og gerum ekki nógu miklar kröfur."
GuSríSur telur þó breytinga aS vænta. „Eg man
þá tíS aS karlar réSu hreinlega öllu á vinnumarkaSn-
um en ég held aS þetta sé allt aS breytast, enda
tímabært."
„Eg er ennþá í skóla og hef bara unniS smávegis
á kvöldin á myndbandaleigu. ÞaS eru t.d. bara stelp-
ur sem vinna meS mér þar," segir Lára.
Heldur þú að stelpur hafi jafna möguleika og strák-
ar
„Já, ég held þaS. ÞaS getur vel veriS aS ég skipti um
skoSun meS árunum þegar ég kynnist vinnumarkaSn-
um betur. Eg veit samt aS þeir strákar sem ég þekki
eru yfirleitt meS hærri laun en stelpurnar. En þeir eru
líka oft í betri stöSum. Kannski eru stelpurnar aS leita
sér aS einfaldari störfum."
En erum við léttlyndari, liprari, hlýrri og heilsubetri
en karlarnir eins og niðurstaðan í könnun VR sýnir?
„Já, ég held það," segir Lára. „Konur eru líka bara
miklu raunsærri en karlmenn," segir GuSríSur.
En af hverju ætli konur séu ánægðari með heimilis-
lífið en karlmenn?
„Ætli þær séu ekki bara meira heima og kynnist því
betur," segir Lára og hinar taka hlæjandi undir þaS.
Gu&ríSur, Ólafía
lusinu