Vera - 01.06.2001, Blaðsíða 50
Jóna Fanney Friðriksdóttir
Persónan býr í augum okkar
Særún Haukdal, hársnyrtimeistari og útiitsráðgjafi
Flestir vióskiptavina minna eru íslendingar, en þó
nokkuð er um að erlendir ráðstefnugestir hér á hótel-
inu komi í klippingu," segir Særún Haukdal, eigandi
hárstofu Særúnar sem staösett er á Grand Hóteli í
Reykjavík. „Eg á orðið nokkra erlenda viðskiptavini
sem jafnvel geyma að láta klippa sig heimafyrir. Þeg-
ar einn viðskiptavinur minn frá Tókýo kom hér í dyra-
gættina um daginn fór ég óvart að tala íslensku við
hann. Hann kemur að jafnaði tvisvar á ári til landsins
og gistir alltaf á Grand Hótel og fær sér klippingu í
leiðinni. Við töldum skiptin sem hann hefur setið í
stólnum hjá mér og komumst upp í sjö."
Anatomic help heilsunnar vegna
Fitness Line þjálfunarfatnaöur fyrir fólk á öllum aldri
Fitness Line fatnaðurinn er framleiddur hjá grísku fyrirtæki
ANATOMIC HELP sem sérhæfir sig í framleiðslu á stoðtækj-
um og sjúkravörum.
Fitness Line fatnaðurinn er bæði léttur og þægilegur, hann
er framleiddur úr NEOPRENE efni í hæsta gæðaflokki, sér-
staklega ofinn og saumaður þannig að ekki beri á honum
gengum fötin. Veitir góðan stuðning og heldur hita á líkam-
anum umvefur hann og nuddar snertisvæðin varlega úr
NEOPRENE. Eykur svitamyndun, fitubrennslu og örvar lík-
amsstarfsemina. Sérstaklega góður, áhrifaríkur við bjúgsöfn-
un, gigt, liðaverkjum, bólgum, appelsínuhúð og fyrir svæði
sem eru með fitu- og vökvasöfnun. Þessi þjálfunarfatnaður
er frábært hjálpartæki við þjálfun hvort sem um er að ræða
líkamsrækt, göngu, vinnu eða bara við húsverkin.
Fitness Line umboð og dreifing
Særún Haukdal Jónsdóttir
HÁRSTOFAN SÆRÚN GRAND HÓTEL SIGTÚNI
SÍMI 588-3660 - 896-3963 H.S. 562-0062
shj@strik.is
„Særún Haukdal er hársnyrtimeistari og hef-
ur rekið stofu sína í sjö ár á Grand Hóteli í
Sigtúni. Auk hársnyrtistarfsins starfar hún
við útlitsráðgjöf og selur stuðnings- og þjálf-
unarfatnað sem hún er með umboð fyrir og
framleiddur er hjá gríska fyrirtækinu
Anatomic Help. „Fitness Line fatnaðurinn er
framleiddur úr Neoprene efni í hæsta gæða-
flokki. Þessi þjálfunarfatnaður er frábært
hjálpartæki við iíkamsrækt, göngu, vinnu
eða við húsverkin. Hann veitir góðan stuðn-
ing, heldur hita á líkamanum og nuddar
snertisvæðin varlega. Svitamyndun eykst,
sömuleiðis fitubrennsla og hefur fatnaður-
inn reynst áhrifaríkur gegn bjúgsöfnun, gigt,
liðverkjum og bólgum. Þetta er bæði léttur
og þægiiegur fatnaður. Einnig fást stuðn-
ingsbuxur fyrir barnshafandi konur í þessari
lfnu."
Særún lærði útlitsráðgjöf og litgreiningu
en leggur áherslu á að konur haldi eigin stfl.
„Konur eiga að vera þær sjálfar og klæðast
því sem þeim líður vel í. Við útlitsráðgjöf er
eingöngu um ráðleggingar að ræða og ef
satt skal segja geta minnstu breytingar, t.d. í
fatavali eða andlitsfarða gert kraftaverk,"
segir hún. Særún hefur m.a. verið með út-
iitsráðgjöf í samvinnu við námskeiðin hjá
Gauja litla í Brautarholti. „Við erum tvær
saman, ég og snyrtifræðingur, og gerum
töluvert af því að halda kvöld- og helgar-
námskeið hér á stofunni. Við byrjum á því að
greina andlitsfallið og litgreinum konurnar
til að meta hvaða förðun, klipping og hárlit-
un sé æskileg. Sfðan förum við yfir fatastíl
og þá skiptir líkamsbygging hverrar konu
máli. Auðvitað er mikilvægt að hver og ein
haldi sínum stíl en það er ýmislegt sem get-
ur skipt miklu máli, t.d. þegar konur eru að
koma fram opinberlega í ræðustól eða fjöl-
miðlum. Þá er mikilvægt að vera í fötum
sem fara vel, eru ekki of þröng eða of áber-
andi því það dregur athyglina frá því sem
þær eru að leggja áherslu á með orðum.
Sama má segja um óþarfa glingur og sterkan
varalit. Mikilvægt er að vera í vönduðum föt-
um sem eru í góðu samræmi við litarhátt
okkar. Persónan býr í augum okkar og því
kemur það vel út að klæðast lit eða t.d.
slæðu næst andlitinu sem er í samræmi við
augnlit."
Særún hefur lokið leiðtogaþjálfunarnám-
skeiði hjá ráðgjafafyrirtækinu Skref fyrir skref
og stundað nám í hönnun við Iðnskólann í
Reykjavík. „Mér fannst leiðtoganámskeiðið
alveg frábært. Bæði lærði ég heilmikið og
svo efiir þetta sjálfsvitund kvenna. Ég hef
bæði verið virk f félagsmálum og sótt mörg
fag- og viðskiptatengd námskeið ásamt list-
sköpun. Rétt eins og sumar konur stunda
saumaklúbba þá skrái ég mig námskeið."
O