Vera - 01.06.2001, Side 48
Þroskaþjálfar
fá allt of lág
laun
Nafn: Ragnheiður Elfn Ragnarsdóttir
Aldur: 32 ára
Menntun: Stúdentspróf og próf frá
Þroskaþjálfaskóla fslands 1993
Starf: Þroskaþjálfi
Vinnustaður: Yfirþroskaþjálfi á
Dagvistuninni Gylfaflöt, 80% starf.
Drýgir tekjurnar í 40% vaktavinnu á
Landspítalanum í Kópavogi, fyrr-
um Kópavogshæli.
Starfsaldur: Níu ár. Var yfirþroska-
þjálfi á Landspítalanum í Kópa-
vogi frá 1993 en hætti í apríl sl og
fór þá að vinna á Gylfaflöt.
Laun: Heildarlaun fyrir I20%vinnu
og yfirvinnu í apríl voru 190.565.
Samkvæmt taxta eru laun yfir-
þroskaþjálfa 118.751 krónuren laun
þroskaþjálfa 107.164 krónur. Útborg-
uð laun mín voru 131.935 krónur.
Fjölskylduhagir: í sambúð og á
tæplega 5 ára gamlan son og svo
er fjölgunar að vænta í haust.
Vinnutími: Alla virka daga frá 8 til
14:30. Aðra hverja helgi átta tíma
vaktir og eitt kvöld í viku frá 15:30
til 23:30. Yfirvinna bætist svo við
þetta, mismikið frá einum mánuði
til annars.
Ertu ánægð með launin? Miðað
við menntun, ábyrgð, álag, vinnu-
magn, vinnutíma og allt það þá er
ég langt frá því að vera ánægð
með launin mín!
Hvað myndir þú telja að þú ættir
að fá í laun? Byrjunarlaun al-
menns þroskaþjálfa ættu ekki að
vera undir 200.000 krónum og
miðað við 9 ára starfsreynslu ætti
ég þá að hafa um 250.000 krónur á
mánuði sem almennur þroska-
þjálfi. Ég geri mér hins vegar grein
fyrir því að langt er í land að þetta
náist. Ég vil taka fram að stéttir
sem vinna með fólk en ekki pen-
inga hafa almennt allt of lág laun,
ekki bara þroskaþjálfar!
Hvar sérðu þig fyrir þér í fram-
tíðinni á vinnumarkaði? Ég vona
að ég geti unað þar sem ég hef
lagt grunninn, þ.e. starfað áfram
með fötluðum. Ef ekki verður veru-
leg breyting á kjörum mínum þá sé
ég ekki fram á að halda það út öllu
lengur og hvað þá verður, tja ætli
ég fari ekki bara að vinna með
peninga!
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Mig minnir að hug-
urinn hafi stefnt til þess að verða
afgreiðsludama eða hárgreiðslu-
kona. Á einhverjum tímapunkti var
ég samt mjög upptekin af því að
verða hjúkrunarkona.
Starfsábyrgð og skyldur.
Sem þroskaþjálfi á Landspítalan-
um í Kópavogi ber ég ábyrgð á lífi
þeirra fimm íbúa sem búa á deild-
inni. Ég tek þátt f lífi íbúanna og
aðstoða þá við sitt daglega líf en
mjög misjafnt er frá einni vakt til
annarrar hvað er að gerast.
Sem yfirþroskaþjálfi á Dagvist-
uninni Gylfaflöt ber ég ábyrgð á
faglegu starfi og á að sjá til þess
að eitthvað uppbyggilegt sé í
gangi frá degi til dags. Dagvistunin
Gylfaflöt er fyrir ungt fatlað fólk, 16
til 25 ára, og er hugsuð annarsveg-
ar sem afþreying og skemmtun og
hinsvegar nauðsynlegur grunnur
áður en alvara Iffsins, vinna o.þ.h.
tekur við.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við starfið? Þetta er erfið spurning
því það er svo margt skemmtilegt.
Ég hugsa að fjölbreytileikinn, alltaf
eitthvað nýtt á hverjum degi, sé
það skemmtilegasta.
Hvað finnst þér leiðinlegast?
Leiðinlegast við starfið er að
vegna lélegra launa, bæði fag-
lærðra og ófaglærðra, þá er sífellt
rennerí af fólki. Maður er rétt að
kynnast fólki þegar það hættir og
aðlögun nýs starfsmanns hefst.
Þessu fylgir gífurlega mikið álag
bæði fyrir þá sem njóta þjónust-
unnar og starfsfólk. Þá get ég ekki
sagt að skilningsleysi stjórnvalda
sé beint skemmtilegt!
Réttindi og fríðindi sem fylgja
starfinu: Ég á kost á sumarbústað
á vegum Þroskaþjálfafélgs íslands.
Þá er yfirleitt gert ráð fyrir að
starfsfólk á heimilum fatlaðra
borði með íbúunum það sem í
matinn er hverju sinni. Vissulega
eru það fríðindi en á móti kemur
að ekki er gert ráð fyrir að fólk taki
sérstaka matartíma.
48