Vera - 01.06.2001, Page 55
Brúðartímaritin sem ég hef
verið svo dugleg að lesa eru auð-
vitað eins og önnur tímarit að því
leyti að þau sýna og auglýsa það
dýrasta og ýktasta. Vouge sýnir
hátískuna en við reynum svo að
herma eftir með því að kaupa föt
í Vera Moda. Þannig að brúð-
Oft eru þetta nokkuS
normal stelpur að sjá
en þegar þær gifta sig
virðast þær henda öll-
um fatasmekk útum
gluggann.
kaupin sem ég hef verið að lesa
um eru kannski ekki eins og þau
fara raunverulega fram en líklega
verða þau einhverjum fyrirmynd.
Það eru semsagt einhverjar
líkur á að einhverjum íslenskum
konum langi til að gifta sig með
þvílíkum ósköpum sem getur að
líta íbíómyndum (t.d. Wedding
Planner) og tímaritum. Alveg frá
boðskortum til kirkjuskreytinga
með viðkomu í handsnyrtingu og
kórónu. Án þess að ég hafi farið í
nein brúðkaup í mörg, mörg ár
(einhverra hluta vegna er ég ekki
boðin) þá hef ég séð smá sýnis-
horn aftildrinu í brúðarmyndum
í Mogganum, nú og svo auðvitað
í þættinum um brúðkaup á Skjá
einum. í mörg ár hef ég skoðað
þessar myndir og flissað látlaust.
Ég reyni alltaf að velja ljótasta
kjólinn og yfirleitt eru nokkrir
sem hljóta þá nafnbót. Oft eru
þetta nokkuð normal stelpur að
sjá en þegar þær gifta sig virðast
þær henda öllum fatasmekk
útum gluggann. Myndi einhver
fara sjálfviljug á ball í kjól með
saumuðum gerviperlum, blúnd-
um og gegnsæju brjóststykki
með slaufu á rassinum? ímyndið
ykkur brúðarkjólinn í svörtu og
þá sæjuð þið hvernig útkoman
væri ef þetta væri árshátfðar-
dressið. Það virðast semsé gilda
alveg sér reglur um brúðarfatnað
og þær eru mér ennþá alveg ó-
skiljanlegar. Eins þetta með höf-
uðskreytingarnar. Hattar, kórónur
og slör, stundum blómakrans.
Hahahaha. Kórónur?! Eru þetta
prinsessukomplexar?
Ár til stefnu: Safna hári ef þess þarf.
Kaupa skipulagningarbók. Ráögast viö brúð-
gumann og fjölskyldur um kostnað. Byrja að
leita að kjól. Velja brúðarmeyjar og svara-
mann. Taka frá kirkju og veislusal. Velja bak-
arí, veitingamann, Ijósmyndastofu, blóma-
búð og tónlistarfólk.
Níu mánuðir: Fara á hárgreiðslustofur, taka
myndir eftir hverja greiðslu sem prófuð er.
Fara ásamt brúðgumanum á fund prestsins.
Velja kjól og fylgihluti. Skrá sig fyrir gjafalista.
Byrja á gestalista, láta brúðgumann velja sér
gesti. Skipuleggja brúðkaupsferðina.
Sjö mánuðir: Meðferð til að gera tennurn-
ar hvítari.
Sex mánuðir: Bóka stílista. Skipuleggja að-
gerðir með öllum sem að málinu koma. Panta
skrautritara vegna boðskortanna. Panta lim-
mósín. Velja boðskort. Ákveða dag til að velja
föt á brúðarmeyjar. Útvega gestum gistirými,
ef með þarf. Panta borðbúnað, stóla, borð og
dúka ef þess þarf.
Fimm mánuðir: Meikupp bollaleggingar.
Fjórir mánuðir: Fara með kjólinn, slörið og
skartgripina á hárgreiðslustofuna og finna
hina fullkomnu greiðslu sem passar.
Þrír mánuðir: Andlitsbað á mánaðar fresti.
Velja tónlist. Klára gestalistann. Kaupa undir-
föt og föt fyrir ferðina. Ef eftirnafn brúð-
gumans er tekið upp þarf að panta öll skilríki
upp á nýtt. Panta veitingar, tertuna, boðskort,
bílinn, hótelið, ferðina. Velja hringana.
Tveir mánuðir: FHuga að sólarbrúnkunni,
helst nota brúnkukrem. Staðfesta allar fyrri
pantanir. Póstleggja boðskort og gjafalista.
Kaupa skó og slör. Velja gjafir fyrir þátttak-
endur. Kaupa gjöf handa brúðgumanum.
Sækja hringana. Undirbúa veislu fyrir brúðar-
meyjarnar.
Mánuður: Forsýning - meiköpp, hárgreiðsla
og kjóll, sýna brúðarmeyjunum. Fá pappíra
hjá hagstofu.
Tvær vikur: Síðasta klipping og litun. Stað-
festa gestafjölda við veitingamanninn og á-
kveða sætaskipan. Pakka fyrir ferðina. Láta
Ijósmyndara og upptökumenn fá lista yfir það
sem verður að nást á mynd. Staðfesta ferðina.
Vika: Háreyðing með vaxi. Æfing í kirkjunni.
Staðfesta allt vegna veislunnar, bílsins,
blómanna og Ijósmyndarans. Sjá til þess að
brúðguminn, svaramaðurinn og pabbinn séu
að undirbúa ræður. Halda veislu fyrir brúðar-
meyjarnar.
Þrír dagar: Augnabrúnavax.
Einn dagur: Fót- og handsnyrting. Hjálpa til
við að skreyta salinn.
Brúðkaupsdagurinn mikli: Hárgreiðsla,
meiköpp, kjóll, slör, meira meiköpp.