Vera


Vera - 01.06.2001, Side 61

Vera - 01.06.2001, Side 61
Hildur Fjóla Antonsdóttir nemi í mannfræSi og kynjafræði Árið 1998 fór Hildur Fjóla til Þýskalands og stundaði þar óhefð- bundið femínískt nám. Hún dvaldi hjá konu sem er doktor í heim- speki og þangað komu gestafyrir- lesarar úr hinum ýmsu fræðigrein- um. Skömmu eftir heimkomuna byrjaði hún í Bríeti, félagi ungra femfnista, og fór síðan í kynjafræði og mannfræði í Háskóla íslands. „Umfang femínískra rannsókna er orðið gríðarlegt og mikil þekk- ing liggur fyrir. Því þarf að virða kynjafræðina sem alvöru fræði- grein. Sumir telja að femínismi eigi ekki heima í HÍ þvf hann sé óhjákvæmilega pólitískur. En ekki má gleyma því að fræðisamfélagið er að sjálfsögðu í tengslum við pólitíska strauma og stefnur í bjóðfélaginu og endurspeglar þá oft. Eini munurinn á kynjafræði og öðrum fögum hvað pólitík varðar er að kynjafræðin kemur til dyr- anna eins og hún er klædd og við- urkennir að pólitík og fræði- mennska eru samfléttuð fyrirbæri. I framtíðinni verð ég vonandi ein af fjölmörgum kynjafræðingum sem munu flétta kynjafræðileg/ femínfsk sjónarhorn inn í þjóðfé- lagið eins og það leggur sig." Guðjón Hauksson nemi i kynjafræði og félagsfræði Guðjón segir fjölmörg valfög fé- lagsfræðinnar vera þverfagleg við kynjafræðina og því kynntist hann kynjafræði snemma í náminu. Svo kynntist hann meðlimum í Bríeti og þá kviknaði áhugi hans á kynja- fræði fyrir alvöru og hann ákvað að taka kynjafræði sem aukafag. Guð- jón segir að femínistaáhugann megi einnig rekja til sumardvala hans í æsku í sveit hjá ömmu sinni sem var í kvennapólitíkinni, vann með Kvennalistanum á Akureyri og keypti Veru. „Ég er á leiðinni í erlendan há- skóla þar sem ég ætla að halda á- fram f kynja- og félagsfræði. Ég geri ráð fyrir að halda áfram á sömu braut í mastersnámi en veit ekki hvernig eða hvort ég kem til með að nota þekkingu mína í starfi. Ég beiti kenningum kynja- fræðinnar í daglegu lífi og finnst gott að hafa rannsóknir og niður- stöður á takteinunum í umræðum við fólk til að mæta gömlum klisj- um og fordómum." Steinunn Blöndal hjúkrunarfræðingur og nemi í kynjafræði Steinunn segist hafa ákveðið að hefja nám í kynjafræði til að fá vitsmunalega næringu. Hún kláraði hjúkrunarfræði fyrir nokkrum árum og starfaði um hríð f Danmörku en hræddist að festast í hversdagleikanum. Þar sem hún hafði lengi haft áhuga á femínisma ákvað hún að innrita sig í kynja- fræði eftir heimkomuna. „Mér fannst námið gott og veita mér aukna víðsýni, bæði sem manneskja og hjúkrunarfræðingur. Á fyrstu önn tók ég líka Heilbrigði kvenna til að sjá hvar hjúkrunar- fræðin staðsetur sig innan kynja- fræðinnar. Ég fylltist oft eldmóði eftir tíma í ýmsum fögum. Kynja- fræðin opnar fólki dyr og sýnir því „sannleikann" sem ákveðinn hefur verið af samfélaginu, gefur færi á að skoða og efast. Ef þessar dyr hafa einu sinni verið luktar upp fyrir fólki fer það aldrei til baka."

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.