Vera


Vera - 01.06.2001, Qupperneq 66

Vera - 01.06.2001, Qupperneq 66
Úlfhildur Dagsdóttir Kvikmyndir Sumarið í myndbandstækinu: nú er sumar gleðjumst gellur í Bandaríkjunum er hefð fyrir því að sumarið sé tími mikilla frumsýninga. Hér ó landi hefur sumarið hinsvegar yfirleitt verið fremur dauður tími bíólega séð. Því er kjörið að setjast yfir vídeó ó regnblautum og gróum sumarkvöld- um, gerast dekadent og leggja ó borð hvítvín, ost og ólífur og njóta þess að heyra sumarregnið bylja ó gluggum og þaki. (Þau sem eru heppin upplifa kannski að húsið breytist í frumskóg eins og í múmínólfabókinni Pípuhattur galdrakarlsins.) Svona til að auðvelda ykkur valið rifjaði ég upp nokkar góð- ar fró dögum mínum sem kvikmyndagagnrýnandi DV og Víðsjór. Anaconda - Luis Llosa, 1997 Anaconda er ein af þessum dálítið gölluðu en dásamlegu ævintýra- og skrýmslamyndum sem nær að heilla með ákveðnum einfaldleik. Hópur fólks rýkur inn í frumskóga Brazilíu til að gera heimildamynd um hálfgoð- sögulegan ættbálk en lendir í staðinn í klónum á hálfgoðsöguiegri slöngu sem borðar þau eitt af öðru. Myndin fer illa af stað og þjáðist um tíma fyrir slæm- an leik en svo tók Anacondan hressi- legan kipp og hnykkir sér inní þennan fína frumskógarhasar með tilheyrandi illmennum og óvættum. Persónuupp- setningin kom þægilega á óvart þar sem mannfræðingurinn - sem leit út fyrir að verða dæmigerður 'prófessor verður óvænt hetja’ (a la indiana jo- nes) - er sleginn út og sefur í gegnum öll ósköpin. Aðalhetjan er því sjálf heimildaþáttaleikstýran sem leikin er af \ennifer Lopez og er hvílíkt flott sem eitilhörð skutla sem lætur ekki nokkrar slöngur aftra sér. ★ ★★ Booqie Nights - PaulThomas Andersson, 1997 Limlengd karla hefur löngum verið viðkvæmt mál. Konurvilja helst ekki viðurkenna að stór typpi henta best, og karlar hafa viljað halda því fram að lítil typpi lengist mest. í Boogie Nights snýst allt um hin gríðarlanga lim klám- stjörnunnar Dirk Digglers. Það er þessi rosaböllur sem kemur honum á topp- inn í klámbransanum og að sama skapi verður reðurstærðin til þess að drengurinn ofmetnast og missirtökin. Marfi Wahlberg sýnir hér og sannar að hann getur annað og meira en rifið kjaft og fyllt upp í Calvin Klein (nær- föt). Aðrir leikarar eru hver öðrum betri en að öðrum ólöstuðum er það lulianne Moore sem stendur uppúr. Samspil hennar við Wahlberg er alveg frábært, þarsem hún ýmist er í móður- eða mótleikkonuhlutverki (íklám- myndunum). ★ ★★ Fierce Creatures - Robert Young, Fred Schepisi, 1997 Tarantúlan Terry er sloppin úr vasa dýravarðar síns og viðstaddir fækka fötum snarlega af ótta við að loðin kóngulóin leynist innanklæða. Þetta gerist f fataskáp á hótelherbergi á meðan á leynilegri hlerunaraðgerð stendur. Þeir hleruðu ákveða að loka dýragarð- inum þar sem hlerararnir starfa. f næsta herbergi jarmar kind. Tarantúl- an skríður út úr skápnum og þeir hler- uðu reyna að myrða hana. Kvikmyndin 'Fierce Creatures', sem er hinn lang- þráði fylgifiskur (en ekki framhald) Fisftsins Wöndu (1988), gerður af sama hópi og stóð að þeirri ágætu mynd og fjallar um baráttu breskra dýragarðs- starfsmanna gegn bandarískum auð- kýfingum um tilverurétt dýragarðs, Eins og búast mátti við frá þessum hóp eru dýrakynlífsbrandarar í hverju búri, dýraverðirnir líkjast dýrunum sín- um og allir misskilja alla að hætti góðra grínmynda. ★ ★★ ln the Mood for Love - Wong Kar-wai, 2000 Kvikmyndir kenndar við Hong Kong hafa verið gífurlega vinsælar og áhrifa- ríkar á undanförnum áratug, sérstak- lega hvað varðar myndmál og stfl. Mynd Hong Kongska leikstjórans In the Mood for Love gerist í Hong Kong 1962 og þar fær Wong útrás fyrir for- tfðarþrá sína og áhuga á þessu tfma- bili.Sagan segir frá ritstjóra Iftils dag- blaðs sem flytur í nýja íbúð með konu sinni. Þar kynnist hann konu sem er einnig nýflutt í blokkina með sínum manni. Maður hennar vinnur hjá japönsku fyrirtæki sem þýðir að hann ferðast mikið, líkt og kona ritstjórans. Þau sem sitja heima verða brátt góðir vinir sem hittast til að slúðra og spila, en einn daginn verða þau að horfast í augu við það að makar þeirra halda framhjá, og við hvort annað. Þetta hef- ur svo óhjákvæmilega áhrif á það sam- band sem er að myndast á milli þeirra. Wong skapar sterkar og flottar myndir, þarsem skiptast á - og skarast - stíluð og smart myndataka og intímar tilfinn- ingasenur. Þetta er með eftirminnilegri myndum síðasta árs. ★ ★★★ Ma Vie En Rose - Alain Berliner, 1997 Kvikmyndin hefur verið mikilvægur miðill fyrir vangaveltur um kynhlut- verk, í bókstaflegum skilningi, þarsem allskonar grímu- og búningaleikir hafa löngum verið vinsælir í kvikmyndum. Belgíska/franska myndin Lff mitt í bleiku tekur upp spurninguna um kyn- hlutverk og samkynhneigð og staðset- ur hana í bernsku. Sjö ára Ludovic heldur að hann sé bara tímabundið fastur í sínum drengslíkama og að þetta sé nokkuð sem hann vex uppúr þegar hann stækkar; þá verði hann kona og geti gifst vini sínum. En hinn borgaralegi veruleiki leyfirekki slíka blekkingu og Ludo verður að horfast í augu við að kyn hans er ekki breytilegt og að smáborgarinn hefur takmarkaða þolinmæði fyrir strákum í stelpufötum. Til hliðar við úthverfisveruleikann er svo Barbíheimur sem er fullkomlega fantastískur (þarsem Barbí svffur um sem engill/góð norn), en í vitund barnsins renna þessir tveir heimar saman, þar til hann uppgötvar hinn hræðilega sannleika, en þá verða lita- skil, þarsem litskær Barbíheimurinn fjarlægist og úthverfið gránar. ★ ★★ ÓÓ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.