Vera - 01.06.2001, Qupperneq 74
ha?
„ . Pub
Cllnton
Inlimli • I > I Sti I I 7
( ii'lllIcillOll's
Ilil<liu-Iiih
( )|K II li'olll
•41:30
%
Relaxed
evenirig
in Ihe company of
Miphisticalcd ladics
PliiK fÍAg]
inh
Þessar heilsíðuauglýsingar er að finna í blaðinu What's on in Reykjavík og gefa erlendum ferða-
mönnum góða mynd af því sem er að gerast í Reykjavík.
Þau sögðu...
Umsjón: Svala Jónsdóttir
Fljótvirkasta leiðin
„Ég er fylgjandi stífum kynjakvótum og jákvæðri mis-
munun á fiestum sviðum samfélagsins vegna þess að
ég þykist viss um að þetta séu fljótvirkustu aðferðirn-
ar til að jafna það hroðalega misrétti sem konur búa
við í dag, hvort heldur litið er til launaþróunar ellegar
áhrifa og valda. ... Mér finnst til dæmis að ríkisvaldið
og sveitarfélögin eigi alltaf að taka konur framyfir
karla þegar um er að ræða jafn hæfa einstaklinga."
-Stefán Hrafn Hagalín á kreml.is 11. aprí\
Fyrirhafnarinnar virði
„Mér fannst gaman að sjá tvær ungar konur takst á
um samband íslands og Evrópu hjá G. Pétri Matthí-
assyni á sunnudagskvöldið í Ríkissjónvarpinu. í Silfri
Egils var fjallað um sama mál en þar var panellinn á
hefðbundnari nótum. Egill hefur sjálfur sagt að það
sé erfitt að fá konur í fjölmiðla og það má vel vera. G.
Pétur sýndi Agli að sumt er fyrirhafnarinnar virði og
það hefur svo sem aldrei verið auðvelt að ná í konur."
-Hafliði Helgason í Fréttablaðinu 25. apríl.
Fjallað um aldur og þyngd
„Maður tekur eftir því að það er fjallað öðruvísi um
konur, til dæmis í stjórnmálum. Þær eru metnar út frá
öðrum forsendum en karlarnir oft. ... Mér finnst vera
fjallað meira um útlit kvennanna, fatnað, aldurinn,
reynslu og jafnvel þyngd, þannig að það er svolítið
skrýtið að uppiifa það. En karlarnir, þeir lenda ekki í
þessu sama eins og við konurnar. Konur eru oft
dæmdar harðar af útliti en karlar." -Siv Friðleifsdóttir,
umhverfisráðherra, í Sjónvarpinu 24. maí.
Niðurlægjandi keppni
„Að ungar stúlkur sjái sig knúnar til að fara upp á svið
og láta vega sig og meta eins og hvern annan búfén-
að er algjörlega ofar mínum skilningi. ... Þetta er svo
niðurlægjandi fyrir allt kvenfólk. Enn grátlegra finnst
mér þegar verið er að reyna að hressa upp á fegurðar-
samkeppnir, færa þær í „greindarlegan" búning og
kalla ungfrú island.is. Þá er bara verið að reyna að
villa um fyrir fólki því í raun snýst þetta um nákvæm-
lega sama hlutinn." -Lilja Pálmadóttir, myndlistar- og
athafnakona, í tímaritinu Ský í júní.
74