Vera - 01.06.2002, Page 19
gegn. Enn og aftur eru konum gefnar leiðbeiningar
um það hvernig ber að hegða sér. Gjarnan er rætt um
það hverju karlar hafa áhuga á, hvað karlar vilja í
kynlífinu eða tíunduð meint vandamál kvenna í
þessum efnum. Ein grein í kvennablaði ber yfirskrift-
ina: Ertu að feika það? og er slík leiðbeiningagrein.
Þar má finna þetta heilræði til handa konum: „Ekki
venja þig á að gera þér upp fullnægingu. Þú blekkir
bara sjálfa þig og rnaka þinn og þessi flóttaleið mun
aðeins torvelda þér að upplifa alvörufullnægingu.“
„Yður er gefin einkunn að verulegu
leyti í samræmi við það, hvernig þér
gangið, sitjið, standið og berið yður
í tröppum, eftir háttvísi yðar og um-
gengni yðar yfirleitt."
Sextugri tókst að strippa
Fegrunarauglýsingarnar, sem eru margar, snúast
flestar um það að halda sér unglegri. Hvergi lief ég
séð samskonar auglýsingar ætlaðar körlum og það
hlýtur að vera vegna þess að karlar mega eldast eins
°g eðlilegt er. Það er lögmálið að konur eiga að vera
unglegar og helst alltaf að vilja líta út fyrir að vera
uiun yngri en þær eru. Ekki er einungis hamrað á
þessu í kremauglýsingum, heldur er ýtt undir þetta
viðhorf í viðtölum og greinum. Inngangur að viðtali
eins blaðsins við verslunarkonu hljóðar svo: „Það er
í rauninni fáránlegt að X sé á fimmtugsaldri og móð-
ir fimm sona. Ef dæma ætti aldur hennar eftir útliti
°g orku gæti hún verið að minnsta kosti tíu árum
yngri.“ Unglegt útlit er alltaf eftirsóknarvert og er
gert að umtalsefni þegar það er mögulegt. I öðru
blaði er grein sem hefur fyrirsögnina „Sú sextuga
flottust" og fjallar um Lindu Gray sem lék Sue Ellen
forðum. Hún lék á sviði fyrir skemmstu og kom nak-
m fram þótt að hún sé orðin sextug. I greininni er
Lindu hrósað fyrir unglegt útlit og birtar glefsur úr
viðtali sem breskur blaðamaður átti við hana og
snýst fyrst og fremst um aldur hennar og lykilinn að
glæsilegu útliti: „Linda Gray segist borða hollan mat
°g byrja hvern einasta dag é því að drekka ferskan
safa úr gulrótum og öðru grænmeti....“
Fúllyndisleg niðurstaða
Fg býst við því að þegar öllu er á botninn hvolft þá
snúist þetta um peninga. Þetta snýst um að selja
hskuföt og snyrtivörur og til þess að geta selt tísku-
föt og snyrtivörur verður fyrst að telja konum trú um
að þær séu að kaupa það sem er lífsnauðsynlegt. Eitt
krem fyrir daginn, annað fyrir nóttina, þriðja fyrir
rakann, fjórða fyrir augun... og öll þessi lífsnauðsyn-
legu krem verða sífelll fleiri og dýrari, en þau hætta
samt ekki að vera lífsnauðsynleg. Litirnir breytast
hka með árstíðunum, sem tryggir að konur geta ekki
lengur notað rauða varalitinn sem þær keyptu í
haust, heldur verða að kaupa sér nýjan.
Niðurstaða mín er sú að það hefur fátt breyst síð-
au 1950 þegar konum var kennt að ganga, tala og
hlæja í bókum. Tímaritin eru sams konar uppeldis-
bókmenntir fyrir konur. Þau segja þeirn hvernig þær
eiga að vera, frernur en að spyrja þær að því hvernig
þær séu eða hvernig þær langar að vera. Skilaboðin
eru dulin, en engu að síður skýr. Kvenlíkaminn er
•Uotaður á auglýsingastofum og síðan er það mál
°kkar kvennanna að líkjast honum sem mest.
Olnbogahirðing
Eftir sápuþvott og
burstun eiga olnbogarnir
að hvíla í fimm mínútur í
tveim skálum með volgri
olíu. Hörundið sogar í
sig olíuna og verður
mjúkt og slétt.
í bókinni Kvenleg fegurð eru gefnar nákvæmar leiðbeiningar
um umhirðu og fegrun konunnar frá toppi til táar.
19