Vera


Vera - 01.06.2002, Blaðsíða 51

Vera - 01.06.2002, Blaðsíða 51
til margra ólíkra fyrirtækja utan hins hefðbundna heilbrigðiskerfis þar sem hjúkrunarfræðingar starfa. „Á heimasíðunni okkar, hjukrun.is, er einnig fjal- lað um möguleika starfsins en innan félagsins eru nú starfandi yfir 20 fagdeildir, t.d. af hinum ýmsu deii- dum spítalanna og deild heilsugæsluhjúkrunar- fæðinga, deildarstjóra, hjúkrunarforstjóra, auk svæðisdeilda út um allt land. Við fengum fólk úr öllum þessum deildum til að lýsa starfi sínu á heimasíðunni á persónulegan hátt. Þar er að finna milli 80 og 90 ólíkar sögur af ánægðri stétt, sem er auðvitað besta auglýsingin fyrir starf okkar.“ Vantar 750 hjúkrunarfræðinga En hvers vegna skyldi ungt fólk ekki sækja í jafn miklum mæli í hjúkrunarnám og áður? Herdís segir skýringuna hugsanlega felast í þeirri einstaklings- og Peningahyggju sem hafi verið í gangi, það þyki ekki fínt að sækja í umönnunar- og líknarstörf eins og hjúkrunarstarfið vissulega er, þó það gefi líka möguleika á miklum einstaklingsþroska og ábyrgð. Hvað finnst henni t.d. um staðalmyndina sem dregin er upp af hjúkrunarfæðingum í þáttum eins og Bráðavaktinni? „í þeim þáttum er miklu meira gert úr hlutverki lækna, eins og oft er, ímynd hjúkrunarfræðingsins kemur ekkert rnjög vel út. En við verðum auðvitað að kynna okkar málstað. Undanfarið hefur t.d. verið í gangi átak á vegum Jafnréttisnefndar Háskóla Islands til að fjölga karlmönnum í hjúkrunarnámi en nú eru karlmenn aðeins um 1% félagsmanna, eða um 40 af 2.400. Rósa Erlingsdóttir jafnréttisfulltrúi hefur farið ásamt karlhjúkrunarfræðingi í alla framhaldsskóla. Þau hafa dreift kortunum frá okkur og rætt við bæði kynin um hjúkrunarstarfið og árangurinn kemur í ljós í haust þegar skólinn byrjar. Herdís segir að hin mikla launaumræða sem tengst hefur hjúkrunarfræðingum geti hafa haft neikvæð áhrif á ímynd þeirra en um leið bendir hún á að hægt só að hafa mjög góð laun sem hjúkrunar- fæðingur, jafnt í almennum störfum sem í stjórn- unarstörfum. Á heilbrigðisstofnunum standa hjúkrunarfræðingar og læknar jafnfætis í skipuritum, t.d. eru tveir hjúkrunarfræðingar í firnm manna framkvæmdastjórn Landspítala - Háskólasjúkrahúss. „Ef við miðum við hin Norðurlöndin vantar 750 hjúkrunarfæðinga til starfa hér á landi. Það er því brýnt að bregðast við og vonandi lætur unga fólkið ekki á sér standa,“ sagði Herdís að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.