Vera - 01.06.2002, Page 21
sú virðist þó ekki vera ástæða fyrir þessu vali. Það er
augljóst þegar litið er til alls þess efnis sem ritað er
um kynlíf og samskipti kynjanna í þessum tímarit-
um. Það finnst varla eitt einasta kvennablað sem
ekki inniheldur að minnsta kosti einn kynlífspistil
um gagnkynhneigt kynlíf. Ekki nóg með það heldur
snúast langflestir pistlarnir upp í að segja konum
livernig þær eigi að hegða sér í rúminu til að karl-
maðurinn elski þær sem mest, yfirgefi þær aldrei og
jafnvel tilbiðji þær.
Nú, kannski er þetta sérviska í mér en ég hefði
haldið að í stað þess að koma með leiðir til að halda
karlmanninum ánægðum væri kvennatímaritunum
uær að koma með góð ráð og hugmyndir fyrir konur
til að öðlast fullnægingu. Þó það sé líffræðileg stað-
reynd að karlmenn eigi tiltölulega auðveldara með
að fá fullnægingu en konur þá þreytast tímaritin
aldrei á því að birta dálka um það hvað konan getur
gert betur til að bæta sig í samskiptum við maka
S1nn, allt frá því að kaupa sér kynæsandi undirföt
UPP í lýsingar á leiðum sem bæta totttæknina. Eg er
ennþá að rekast á konur sem hafa aldrei prófað sjálfs-
hóun eða upplifað kynferðislegan unað af neinu tagi
nteð sjálfri sér. Væri það ekki ágætis byrjun til að
bæta kynlíf kvenna ef konum væru gefin ráð til að
h'amkalla eigin fullnægingu? Því miður hef ég aldrei,
þrátt fyrir þó nokkuð mikinn blaðalestur, rekist á
slík ráð.
Allar þessar pælingar verða til þess að ég fer að efast
uni gildi tilvistar kvennatímaritanna. Ég held að með
því að búa til sérstök blöð, eingöngu ætluð konum,
sem eiga að fjalla um allt það sem konur hafa áhuga
a og körlum kemur ekki við, þá sé ekki mikið annað
8ert en að auka á raunverulegan mun kynjanna. 1
þeim er margbreytileika kvenna hafnað og reynt að
steypa allar konur í sama steríótýpíska mótið. Það
deilir enginn um það að karlar og konur eru ólík en
það er þessi sífellda aðgreining kynjanna sem raun-
verulega flækir málin. Muninum á körlum og konum
þurfum við öll að kynnast og læra að þekkja til að
geta borið virðingu hvert fyrir öðru - þrátt fyrir og
Vegna margbreytileikans. Síst af öllu myndi ég halda
að jafnréttisbaráttan þyrfti á lokuðum heimi kvenna-
hlaðanna að halda, blöðum sem gera út á mun kynj-
anna og reyna jafnvel að auka hann.
Stofnaðir 1939
PRÓFANÁM - FRÍSTUNDANÁM
ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA - STARFSNÁM
Oldungadeild á grunn- og framhaldsskólastigi.
Fjölbreytt tungumálanám.
Verklegar greinar og myndlistarnámskeið.
Námsaðstoð fyrir skólafólk.
Sérkennsla í lestri og skrift.
íslenska fyrir útlendinga.
Starfsnám.
Upplýsingar í síma 551 2992
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Mjódd
Netfang: nfr@namsflokkar.is
Heimasíða: http://www.namsflokkar.is
SVO LENGILÆRIR SEM LIFIR
Eiginleikar sem engin
önnur sólarvörn státar af
PRODERM er eina sólarvörnin sem
skráð er sem læknisfræðileg sólarvörn.
Eftir 6 klukkustundir
9 handklæðaþurrkanir
Ólíkt veniulegum sólkremum þá
myndar PRODERM rakafyllta varnar
himnu undir efsta lagi húðarinnar!
Fæst í apótekum og Fríhöfninni.
Dreifing CELSUS