Vera - 01.06.2002, Page 36
vera
36
kynning
Með VISA-kort í ferðalagið
Notkun greiðslukorts frá VISA er mjög þægileg leið til að ganga frá
uppgjöri ferðakostnaðar. Bæði gefur kortið kost á greiðsludreifin-
gu til skemmri eða lengri tíma og einnig fylgja kortinu ýmis mikil-
væg hlunnindi. Þar er einkum um að ræða mjög góðar ferðatryg-
gingar ásamt viðlagaþjónustu og neyðarhjálp ef veikindi eða slys
ber að höndum á ferðalagi.
FERÐATRYGGINGAR
Mikilvægustu ákvæði skilmála ferða-
tryggingar fyrir Almennt VISA kort
eru eftirfarandi:
■ Tryggingin gildir á ferðalögum í allt
að 60 samfellda ferðadaga að því
tilskyldu að a.m.k. helmingur
ferðakostnaðar hafi verið greiddur
með VISA-kortinu fyrir brottför.
Tryggingin nær einnig til maka, sam-
býlismaka og bama á framfæri til loka
22 ára aldurs.
Vátyggingin felur í sér eftirtalda
aðalþætti:
■ Ferðaslysatrygging, sem tryggir
dánar- eða örorkubætur vegna slyss í
ferð. Hámarksbætur eru greiddar til og
með 59 ára aldri, en fara eftir það
lækkandi en verða þó aldrei lægri en
20% af hámarksfjárhæð fyrir 74 ára og
eldri.
■ Sjúkratrygging, sem greiðir læknis-
og lyfjakostnað, flutning, sjúkra-
húsvist og aukadvalarkostnað. Einnig
greiðir sjúkratryggingin eftir atvikum
ferða- og dvalarkostnað ættingja sem
leiðir af veikindum korthafans
erlendis.
■ Viðlagaþjónusta og neyðarhjálp.
Sérhæft fyrirtæki á því sviði með
starfsfólk í öllum helstu ferðalöndum
tryggir og útvegar lækni, lyf og
sjúkrahúsvist og ábyrgist greiðslur
fyrir hönd tryggingarfélags kortahafa.
Einnig skipuleggur þettta fyrirtæki og
undirbýr heimflutning sjúklings ef
þörf krefur.
Um tryggingar þessar gilda sérstakir
skilmálar hvað varðar bótafjárhæðir í
hverjum þætti fyrir sig, sjálfsábyrgð
korthafa og ýmis sérákvæði.
Tekið skal fram að ekki er greidd-
ur sjúkrakostnaður í eftirfarandi
tilvikum:
■ sjúkdóma sem korthafi hefur þjáðst
af og hafði notið læknishjálpar og/eða
meðferðar við á síðustu 6 mánuðum
fyrir greiðslu staðfestingargjalds.
■ þegar korthafi ferðast í trássi við
ráðgjöf starfandi læknis eða í þeim til
gangi að leita sér lækningar erlendis
■ kostnað við meðferð eða eftir-
meðferð á íslandi
Handhafar Far- og Gullkorta VISA og
Vildarkorta VISA og Flugleiða njóta
hliðstæðra ferðaslysa- og sjúkratrygg-
inga, en þó eru bótafjárhæðir Gullkort-
anna hærri, en að auki njóta hand-
hafar þessara korta tryggingar á
farangri og geta átt rétt á bótum vegna
tafa á afhendingu farangurs á áfanga-
stað erlendis. Einnig njóta þessir
korthafar forfallatryggingar sem trygg-
ir endurgreiðslu á ferðakostnaði sem
greiddur hefur verið fyrirfram en
korthafi forfallast af gildum ástæðum
fyrir brottför. Þá getur komið til hlut-
fallslegrar endurgreiðslu ferðakostn-
aðar í lengri ferðum ef korthafi þarf
vegna veikinda eða slyss að halda
heim eða leggjast á sjúkrahús erlendis.
Um þær viðbótartryggingar sem
fylgja Far- og Gulikorti gilda einnig
sérstakar reglur um bótaíjárhæðir svo
og nánari skilmálar.
REIÐUFÉ, BANKAR OG
HRAÐBANKAR.
Notkun VISA korts hefur einnig ýmis
önnur þægindi og öryggi í för með sér
fyrir þá sem eru á faraldsfæti. Ekki er
þörf á að vera með mikið reiðufé á sér
því víðast hvar er hægt að greiða beint
með kortinu, en að auki er hægt að
taka út skotsilfur í bönkum eða
hraðbönkum. Hraðbankar eru þægi-
legir í notkun enda röð aðgerða yfir-
leitt með líkum hætti. Til að taka út fé
með greiðslukorti verður hins vegar að
nota PIN-númer til að úttektin gangi.
PIN númerið er persónulegt leyni-
númer korthafans og notkun í
hraðbanka jafngildir undirskrift hans
fyrir úttektinni. Það er því afar brýnt
að leggja PIN-númerið vel á minnið og
gæta þess vel að það liggi ekki á glám-
bekk t.d. á miða hjá kortinu enda er þá
voðinn vís ef kortið glatast með
slíkum upplýsingum og algerlega á
ábyrgð korthafans.
BOÐGREIÐSLUR
Þá má nota kortið hér heima til að láta
skuldfæra á það ýmis föst heimilisút-
gjöld, eins og síma- og orkureikninga,
áskrift biaða eða reglulegan sparnað
og tryggja þannig að öllu sé haldið í
fullum skilum á meðan ferð stendur
eða árið um kring.
Síðan má til viðbótar ganga þan-
nig frá málum að VISA reikningurinn
sé gerður upp með beinni skuldfærslu
á bankareikning korthafa á síðasta
degi greiðslufrests. Allt sparar þetta
tíma og amstur korthafans.
Þjónustumiðstöð VISA að Álfabakka
16 veitir korthöfum VISA haldgóðar
upplýsingar um allt sem að notkun
kortanna erlendis lýtur. Einnig liggur
þar frammi ýmislegt ferðatengt efni og
upplýsingar um sértiiboð sem kortha-
far kunna að eiga möguleika á að hag-
nýta sér á ferðaiögum. Sími
þjónustumiðstöðvarinnar er 525-2025.