Vera


Vera - 01.06.2002, Qupperneq 48

Vera - 01.06.2002, Qupperneq 48
vera eiga mun sjaldnar að- ild að umferðarslysum en karlar, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarráði. Það er því nokkuð sláandi að konum sem slasast í um- ferðarslysum hefur fjölgað undanfarin ár. Langflestar þeirra eru farþegar í bifreiðum og þá oft í bifreiðum þar sem karlmenn eru ökumenn. Það er staðreynd að konur lenda síður í al- varlegum umferðarslysum en karlmenn en þær virðast síður taka áhættu, svo sem við gatnamót eða við framúrakstur. Árið 2000 slasaðist 861 karlmaður í umferðarslysi en 865 konur. Ökumenn sem aðild áttu að slys- um voru 1.372 karlar en 736 konur. Af þeim ökumönnum sem áttu aðild að óhöppum án meiðsla voru 7.917 karlar en 3.778 konur. Á árunum 1972 - 2000 hafa 476 karlar og 212 konur látist í umferðarslysum. Árið 2000 lést 21 karlmaður og 119 slösuðust alvarlega. Á sama ári létust 11 konur og 103 slösuðust al- varlega. Árið 2000 slasaðist 721 karlmaður lít- ið og 751 kona. Margrét Sæmundsdóttir hjá Umferðarráði segir að þótt konur lendi í færri slysum virðist það vera að breytast hjá unga fólkinu. „Til eru þær kenningar að þegar kynin aka alveg jafn mikið jafnist þetta út. En mun færri konur eru svo ábyrgðarlausar að aka drukknar eða fara yfir hámarkshraða. Stundum er talað um að karlar séu betri í tæknilegri hlið aksturs en að konur séu betri ökumenn því þær geta gert fleira en eitt í einu og taka tillit til alls sem skiptir máli við akstur. Það er nefnilega ekki nóg að kunna vel á bílinn, það þarf líka að taka eftir barninu sem hleypur út á götu." n Hefur ekið strætó í 25 ár Björg Guðmundsdóttir hjá Strætó bs. Vel é annan tug kvenna aka strætisvögnum um götur höfuðborgarsvæðisins en alls eru um 250 vagnstjór- ar hjá Strætó bs. Konum undir stýri strætisvagna er að fjölga að sögn Steindórs Steinþórssonar deildar- stjóra hjá Strætó bs. En hvernig stendur á þessum mikla kynjamun, hentar starfið ekki konum jafn vel og körlum? „Jú, mikil ósköp,“ segir Steindór sem samsinnir því að hefðin hafi mest um kynjahlutfall- ið að segja. „Og það eru ekkert frekar einhverjar ákveðnar týpur kvenna sem keyra strætó. Þær eru eins ólíkar og þær eru margar.“ Björg Guðmundsdóttir hefur unnið sem vagn- stjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur í 25 ár, eða síð- an hún var 21 árs gömul. „Maðurinn minn var að leysa af hjá SVR yfir sumartímann meðan hann var í skóla og ýtti á mig að byrja að vinna þar. Meirapróf- ið tók ég árið 1976 og þann 1. júní 1977 byrjaði ég að vinna hjá SVR og hef unnið þar síðan.“ Það gefur auga leið að Björgu líkar vel við starfið. „Vinnutíminn er mjög þægilegur. Ég vinn reyndar hlutastarf núna og keyri alla morgna, en áður vann ég alltaf fullt starf. Ég lít eiginlega á vinnuna sem mitt eigið litla fyrirtæki þar sem ég get ráðið vinnu- tímanum svolítið sjálf með því að skipta út vöktum. Ég er frjálsari hér heldur en ef ég væri annars staðar.“ Björg segir að vissulega fylgi starfinu mikil mannleg samskipti. „Það er þó mjög einstaklings- bundið hversu mikil samskiptin eru og fer það eftir því hvaða viðmót ég fæ enda gef ég það sama af mér í staðinn. En því er ekki að neita að þetta starf snýst um að veita þjónustu." Hún segir starfið ekki síður henta konum en körlum. „Það þarf lagni og lipurð í þetta starf en ekki krafta. Konur hafa oft þægilegra og mýkra viðmót. Sálfræðin spilar inn í þetta líka, að vega og meta hvern einstakling." Björg segir að það sé allt annað að aka strætis- vagni um götur borgarinnar í dag en fyrir 25 árum. „Hraðinn er miklu meiri en hann var enda eru nú fleiri akreinar og fleiri götur. Þegar ég var að byrja var hraðinn minni og þá mynduðust lengri biðraðir. Þá voru líka fleiri vagnar í umferð og ferðirnar örari. Hraðinn er mikill í dag en ég er nú líka eingöngu að keyra á morgnana. Þá er mesti álagstíminn og allir á leið í vinnuna." Akstur strætisvagna felur í sér mikla endurtekn- ingu en Björg segir að það þurfi ekki endilega að vera slæmt. „Þetta er alit spurning um hugarfar. Ef þú vilt láta þér leiðast þá leiðist þér hvar sem þú vinnur. Ég ók einu sinni Laugavegsvagninum en þá var frítt í strætó niður Laugaveginn. Mér fannst stundum að ég væri bara að rúnta niður Laugaveginn og skoða um- hverfið í rólegheitum." Það fylgir starfi vagnstjórans að hitta sama fólkið á hverjum degi árið um kring. „Einstakiingar sem þú hittir á hverjum degi verða stundum eins og hluti af manni sjálfum," segir Björg. „Þegar ég fæ hlý bros og kveðjur geld ég í sömu mynt og ef einhver brosir og þakkar fyrir þegar ég hinkra við eftir þeim geri ég það aftur. Viðmótið skiptir öllu máli.“ 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.