Vera - 01.06.2002, Síða 71
fyrirtækjum. Þó voru námskeiðin ekki síður kynnt
fyrirtækjum á hinum almenna vinnumarkaði. Þetta
rennir reyndar stoðum undir þá tilfinningu sem
starfsfólk stofunnar hefur haft, þ.e. að sá misskiln-
ingur virðist vera nokkuð algengur að gildissvið lag-
anna um jafnrétti kynjanna eigi eingöngu við um
hinn opinbera vinnumarkað. Það er því mikilvægt að
leggja áherslu á og kynna sem víðast að lögin eiga við
um alla launþega og atvinnurekendur, bæði á al
menna vinnumarkaðnum og hinum opinbera.
í samstarfi við Endurmenntunarstofnun HÍ og
Rannsóknastofu í kvennafræðum stóð Jafnréttisstofa
einnig að námskeiðinu / orði og á borði sem haldið
var í Reykjavík í febrúar sl. Þátttakan þar var með
svipuðum hætti og í Jafnt er meira en þar ber þó að
nefna að sama dag stóðu Samtök atvinnulífsins fyrir
námskeiði um jafnréttismál og hefur það án efa haft
áhrif. Því ber að fagna hversu margir iíta á það sem
hlutverk sitt nú orðið að sinna fræðslu um jafnróttis-
mál. Vitað er að sum stærri fyrirtæki, stofnanir og
sveitarfélög standa sjálf að sérstökum námskeiðum á
þessu sviði.
Jafnréttisáætlanir í öll fyrirtæki
Jafnréttisstofa hefur sent fyrirtækjum á fslandi þar
sem starfa fleiri en 25 manns bréf og minnt á ákvæði
laganna um að:
Atvinnurekendur og stéttarfélög skulu vinna
niarkvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnu-
niarkaði. Atvinnurekendur skulu sérstaklega vinna
°ð því að jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækis síns
eða stofnunar og stuðla að því að störf flokkist ekki í
sérstök kvenna- og karlastörf. Fyrirtæki og stofnanir
þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skulu setja sér
jafnréttisáætlun eða kveða sérstaklega á um jafnrétti
kvenna ogkarla í starfsmannastefnu sinni."
Markmið laganna er „að koma á og viðhalda jafn-
rétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna
þannig stöðu kynjana á öllum sviðum samfélagsins”.
hleð öðrum orðum, lögin eiga við um alla atvinnu-
rokendur, allt: starfsfólk og allt starf á hinum íslenska
vinnumarkaði.
Sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir setja sér jafn-
réttisáætlanir og skipa jafnréttisnefndir sem sinna
framkvæmdinni. Almennt má segja að áætlanirnar
taki stöðugum framförum, verði markvissari og taki
a æ fleiri. þáttum starfseminnar. Þannig er það að
verða fastur og afar ánægjulegur þáttur í starfi Jafn-
Fulltrúar sveitarfélaga fræðast á landsfundi
jafnréttisnefnda á Akureyri.
réttisstofu að veita fyrirtækjum og stoinunum ráðgjöf
við gerð og eftirfylgni slíkra áætlana. Enn er þó langt
í land með að öll fyrirtæki og stofnanir sinni þessu
hlutverki sínu nægilega vel.
Jafnréttisstofa sendi öllum sveitarfélögum
bréf þar sem þau eru hvött til þess að
grípa til allra tiltækra ráða sem stuðlað
geti að auknu kynjajafnrétti
Námskeið um allt land í haust
í haust, nánar tiltekið seinni hluta september, er fyr-
irhugað að Jafnréttisstofa ferðist um landið til þess
að halda námskeið fyrir stofnanir og fyrirtæki um
gerð jafnréttisáætlana. Nú er nýtt kjörtímabil hafið
og sveitarfélögum skylt að skipa jafnréttisnefndir og
setja sér jafnréttisáætlanir. Jafnróttisstofa sendi öll-
um sveitarfélögum bréf þar sem þau eru hvött til
þess að grípa til allra tiltækra ráða sem stuðlað geti
að auknu kynjajafnrétti og þau minnt á þá laga-
skyldu að skipa jafnréttisnefndir. Það er þó ljóst að
mjög fámenn sveitarfólög hafa varla burði til þess að
skipa sérstakar jafnréttisnefndir og þau eru þá hvött
til þess að fela öðrum nefndum málaflokkinn eða
hafa samvinnu við nágrannasveitarfélög um skipan
jafnréttismála.
í hringferð sinni um landið mun Jafnréttisstofa
því einnig bjóða fulltrúum í nýskipuðum jafnréttis-
nefndum, ásamt öðru sveitarstjórnarfólki, sérstakt
námskeið um jafnréttismál sveitarfélága og hlutverk
jafnréttisnefnda. Um er að ræða dagsnámskeið sem
byggð eru á fyrirlestrum og verkefnavinnu í hópum.
Helstu efnisþættir eru hugmynda- og aðferðafræði
samþættingar kynja- og jafnróttissjónarmiða, stað-
reyndir og tölur um kynjamun og gerð jafnréttisáætl-
ana fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
í tengslum við námskeiðin mun stofan kynna
nýjar jafnréttishandbækur sem nú eru í vinnslu. Ein
slík, fyrir trúnaðarmenn vinnustaða, hefur verið
lengi á leiðinni. Aðrar tvær eru sórsniðnar að þörfrun
fyrirtækja og stofnana annars vegar og jafnréttis-
nefnda sveitarfélaga hins vegar. Ætlunin er að halda
bæði námskeiðin um allt land á eftirtöldum stöðum:
Húsavík, Egilsstöðum, Höfn, Hvolsvelli, Reykjanes-
bæ, Reykjavfk, ísafirði, Borgarnesi, Blönduósi, Sauð-
árkróki og Akureyri. Verða þau auglýst nánar þegar
nær dregur.
71