Vera - 01.06.2002, Side 73
frama.“ Karen Hughes, ræðuskxif-
ari Bush, er frægt dæmi og ekki
langt síðan hún dró sig í hlé.
„Heimilið er hornsteinn sam-
félagsins," sögðu þau í kór sem
nú vilja ný og hert lög. Karen er
ekki sú eina. Þingmenn hafa horf-
ið út sætum sínum, bæði konur
og karlar, undir því yfirskini - alla
vega - að þeir vildu ffekar vera
heima og gæta bús og barna.
Hrædd er ég um að Barbara
Bush sé ekki alveg sammála syni
sínum. Hann þeytist nú um land-
ið til að réttlæta herta löggjöf um
aukna vinnuskyldu einstæðra
mæðra - í nafni fjölskyldugilda.
Við hlið hans stendur kona, bóka-
safnsfræðingur, sem hvarf af
vinnustað til að gæta bús og hans.
Atti Barbara ekki ein sjö börn? Og
ætlar sonurinn að halda því fram
að það hafi ekki verið vinna að ala
þau upp?
Svo lengi sem konan hefur
fyrirvinnu þá er móðurhlutverkið
göfugast allra starfa. En ef hún er
fátæk einstæð móðir, þá kallast
það ekki lengur vinna að ala upp
börn. I þessu felst hið óþolandi
misrétti sem viðgengst í banda-
rísku samfélagi. Eiga börn fátækra
mæðra að ala sig upp sjálf? Af
hverju gilda ekki sömu reglur um
þau og börn annarra?
Og hvar eiga svo börn þessara
kvenna, sem svældar eru út á
vinnumarkaðinn, að vera á meðan
þær eru að skila fjörutíu stunda
vinnuviku? Þeirri spurningu er
ósvarað. Einstæðar mæður munu
streyma út á vinnumarkaðinn.
Það skapast neyðarástand um öll
Bandaríkin. Dagheimili eru mun-
aður sem fáir njóta. Niðurgreidd
dagvistun er hugarsmíð sem
stangast á við grunnhugsun land-
nemaþjóðarinnar.
Börnin lenda á götunni.
Meðal þessara kvenna verður
án efa hin níu barna móðir. Loks-
ins fer hún að vinna. Og börnin
hennar fara á vergang. Nema að
hún sé svo heppin að fá dagvistun
út á sérstaka fötlun eða örorku.
En hvað um það, þeir hugsa
svipað í Sundstrætinu og í
Cincinnati - og þó.
Kannski bjarga bryggjusporðar
og skíðalönd Sundstrætinu, en
hvað með Cincinnati?
www. borgarv
ítMiidájttír ÞÉ
nnfms
í Borgarvefsjánni er aó finna
upplýsingar um alla göngustíga
og gönguleiðir í Reykjavík.
Njóttu þeirra möguleika sem útivistar-
svæði Reykjavikur bjóóa upp á meö
aðstoó Borgarvefsjárinnar.