Vera - 01.08.2003, Qupperneq 21

Vera - 01.08.2003, Qupperneq 21
 Karlar Konur Bæði a) Starfandi fólk í sambúð b) Starfandi fólk í hjúskap 17.600 40.800 12.800 37.700 30.400 78.500 c) Samtals starfandi 58.400 50.500 108.900 d) Einstæðir foreldar r-» co 10.631 11.508 e) Samtals (c+d) 59.277 61.131 120.408 Húsmæður og -feður með útivinnandi maka Tölur frá Hagstofu íslands um fjölda starfandi fólks eftir hjúskaparstöðu þess sýna að meðal fólks í sambúð eða hjúskap eru heldur fleiri karlar en konur sem vinna úti. Með því að leggja saman fjölda starfandi kvenna í sambúð eða hjúskap og draga þá tölu frá fjölda starfandi karla í sambúð eða hjúskap, má komast að því hve mikið fleiri karlar en konur eru í þeirri stöðu að sjá fyrir maka sínum (og i mörgum tilfellum börnum líka). Eins og sést á töflunni hér fyrir ofan voru 50.500 konur starfandi árið 2002 af þeim sem voru giftar eða í sambúð. Af kvæntum körlum og í sambúð voru 58.400 starfandi sama ár. Ætla má að mismunurinn á fjölda starfandi karla og kvenna, 7.900, segi okkur, nokkurn veginn, hve mikið fleiri karlar en konur voru í þeirri stöðu að sjá fyrir maka sínum. Stundum hefur því verið haldið fram að pör slíti sam- vistum á pappírum, þó fólk sé ekki að hætta saman „i al- vöru", til að annað þeirra öðlist bótarétt einstæðs foreldris. Hvort mikið sé til í því skal ósagt látið en ef slíkt er algengt getur verið að sumt af því fólki sem sagðist vera í sambúð í rannsókn Hagstofunnar kunni að vera skráð sem einstætt foreldri annars staðar (þar á meðal í tölum hér að ofan frá Ríkisskattstjóra). Það fólk væri þá tvítalið í þessum talna- leik okkar, en sérlega erfitt er að áætla umfang þessa mis- ferlis og þar með áhrifin á útreikninga hér. Samantekt Sé tekið mið af þessum tveimur tölum, 9.754 fleiri ein- stæðar mæður en feður og 7.900 fleiri karlar en konur sem sjá fyrir maka, eru 1.854 fleiri konur en karlar á íslandi í þeirri stöðu að sjá fyrir fjölskyldunni án þess að til komi tekjur maka. Með öðrum orðum, konur eru í meirihluta þeirra sem kalla má fyrirvinnur samkvæmt skilgreining- unni sem stuðst er við hér. Vert er að taka fram að í þessari grein er ekki tekið mið af tekjum, aðeins hvort fólk sé starfandi Þar sem karlar eru að jafnaði með hærri tekjuren konurá ís- landi, og konur oft- ar í hlutastörfum, má ef til vill segja að oft séu karlar „meiri" fyrir- vinnur en konur á þeim heimilum þar sem karl og kona vinna bæði úti. Það gildir þó einu fyrir efni þessarar greinar enda aðeins verið að kanna einnar fyrirvinnu fjölskyldumynstur hér. Þeir útreikningar sem hér hafa verið raktir sýna að karl- ar eru langt í frá einir um að vinna fyrir heimilum landsins og eiga því ekki sérstakt tilkall til nafnbótarinnar fyrir- vinna. Stundum hefur því verið fleygt að körlum beri hærri laun en konum því þeir hafi í mun ríkari mæli fyrir fjöl- skyldu að sjá en konur. Slík réttlæting á launamun kynj- anna virðist varla byggð á staðreyndum, í það minnsta tekur hún ekki mið af þeim börnum sem eru á framfæri einstæðra foreldra. Okkur er varla stætt á því lengur að gefa okkur að karl- ar séu fyrirvinnur en konur ekki. Sú goðsögn gerir fátt ann- að en að stuðla að því að viðhalda launamun kynjanna. Ekki svo að skilja að atvinnurekendur kjósi að greiða körl- um hærri laun af þessari ástæðu - enda velta atvinnurek- endur líklega sjaldnast fyrir sér hvað starfsfólk þurfi háar tekjur heldur frekar hinu, hve mikið þurfi að greiða til að halda í starfsfólkið. Hins vegar má ætla að ef telja má kon- um trú um að þær þurfi lægri tekjur en karlar sé í það minnsta kominn möguleiki á að hlunnfara þær. 0KKUR ER VARLA STÆTT Á ÞVÍ LENGUR AÐ GEFA 0KKUR AÐ KARLAR SÉU FYRIRVINNUR EN KONUR EKKI. SÚ G0ÐSÖGN GERIR FÁTT ANNAÐ EN AÐ STUÐLA AÐ ÞVÍ AÐ VIÐHALDA LAUNAMUN KYNJANNA Goðsagan um fyrirvinnuna er aðeins ein af nokkrum tylliástæðum til að komast upp með klípa af tekjum kvenna. Þó deila megi um túlkun tölfræðinnar þá bendir þessi úttekt sterklega til þess að ekki beri mikið á milli karla og kvenna þegar kemur að hlutverki fyrirvinnunnar. Það ætti varla að koma að sök fyrir karla að gefa þessa goð- sögn upp á bátinn enda er lífið utan vinnunnar áhuga- verðara en svo að best sé að einskorða sig við hlutverk skaffarans. En það er nú efni í enn aðra grein.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.