Vera - 01.08.2003, Side 23
1. Það er skoðun Alþýðusambands-
ins að vinna þurfí gegn kynbundn-
um launamun með kerfisbundnum
hætti á íjölmörgum sviðurn sam-
tímis til að viðunandi árangur náist.
ASÍ og aðildarfélög þess hafa haft
þetta að leiðarljósi í starfi sínu.
• Hœkkun lœgstu launa. Konur eru
hlutfallslega mun fleiri en karlar
meðal þeirra sem hafa lægstu launin
á íslenskum vinnumarkaði. Áhersla
á sérstaka hækkun lægstu launa er
því ein árangursríkasta leiðin til að
draga úr kynbundnum launamun
um leið og hún er mikilvægur liður
í baráttunni gegn mismunun og
misrétti í samfélaginu.
*■ Símenntun fyrir alla. Aukið fram-
boð á menntun og rneiri möguleik-
ar launafólks til að sækja sér sí-
menntun, endur- og eftirmenntun
er mikilvægur þáttur í að styrkja
stöðu fólks á vinnumarkaði og leið
til bættra kjara. Þetta á ekki síst við
um launafólk sem hefur litla form-
lega viðurkennda menntun. Stór-
aukin áhersla verkalýðshreyfingar-
innar á framboð og möguleika
launafólks til að sækja sér símennt-
un er því mikilvægur þáttur í að efla
stöðu kvenna á vinnumarkaði og
vinnur gegn launamun kynjanna.
• Jafn réttur foreldra til fœðingar- og
forcldraorlofs. Gildandi lög um fæð-
ingar- og foreldraorlof gefa foreldr-
um jafnan rétt og tryggja jafna
möguleika til fæðingar- og foreldra-
orlofs. Það er sannfæring okkar í
verkalýðshreyfingunni að sá áfangi
sem náiðst með lögum um fæðing-
ar- og foreldraorlof leggi grunninn
að einum mikilvægasta áfanga sem
náðst hefur í jafnréttisbaráttunni og
gegn kynbundnum launamun. Ná-
ist markmið laganna fram að ganga
í framkvæmd og foreldrar axla sam-
eiginlega ábyrgð við umönnun
barna sinna er mikilvægri forsendu
kynbundins launamunar rutt úr
vegi. Atvinnurekendur geta þá ekki
lengur gefið sér eins og áður að
móðirin hverfi frekar frá vinnu
vegna umönnunar barnsins meðan
faðirinn velji að sinna áfram starfi
sínu.
• Frœðsla um jafnréttislögin og jafn-
réttisáœtlanir. Fræðsludeild ASÍ hef-
ur að undanförnu lagt aukna
áherslu á að kynna talsmönnum
verkalýðshreyfingarinnar, forystu-
mönnum stéttarfélaga, starfsmönn-
um þeirra og trúnaðarmönnum á
vinnustað efni jafnréttislaganna og
gildi jafnréttisáætlana á vinnustöð-
um. Með þessu er stigið mikilvægt
skref í að efla vitund forystumanna
stéttarfélaganna um mikilvægi jafn-
Grétar Þorsteinsson,
Alþýðusambandi íslands
réttismálanna og hversu árangurs-
ríkt tæki jafnréttisáætlanir á vinnu-
stöðum geta verið í baráttunni gegn
kynbundnum launamun og fyrir
jafnrétti kynjanna.
• Samstarf um jafnréttismál. Alþýðu-
sambandið á samstarf við fjölmarga
aðila utan sambandsins um jafn-
réttismál, auk þess að eiga fulltrúa í
Jafnréttisráði. Mikilvægi samstarfs
samherja í jafnréttisbaráttunni
verður seint ofmetið. Hér má nefna
sem dæmi að ASl, í samstarfi við
önnur samtök launafólks og fleiri
aðila, hefur undanfarin ár staðið
fyrir umfjöllun um jafnréttismál í
tengslum við alþjóðlegan baráttu-
dag kvenna 8. mars, þar sem áhersl-
an hefur verið á mikilvægi vinnu-
framlags kvenna og baráttuna gegn
kynbundnum launamun.
• Sjálfstœtt framlag aðildarfélaga ASÍ í
baráttunni gegn kynbundnum launa-
mun. Auk þess sem að framan
greinir hafa fjölmörg aðildarfélög
ASÍ lagt fram mikilvægan skerf til
baráttunnar gegn kynbundnum
launamun. Framlag þeirra hefur
bæði falist í beinum aðgerðunt á
þessu sviði, hvatningu og stuðningi
við konur í jafnlaunabaráttunni og
þátttöku í ýmsum verkefnum sem
ætlað er að vinna gegn kynbundn-
um launamun.
2. Alþýðusanrbandið hefur sett sér
stefnu í jafnréttismálum. Á árs-
fundi ASl 2001 var jafnréttisstefna
samtakanna síðast endurskoðuð og
endurbætt. Þar eru áherslur og
helstu verkefnin í jafnréttisbarátt-
unni skilgreind. Þessi stefna er sá
grundvöllur sem jafnréttisstarf
sambandsins hvílir á og því er hik-
laust hægt að segja að hún sé verk-
færi í baráttunni gegn launamun.
Um leið er mikilvægt að viðurkenna
að jafnréttisstefna samtakanna,
áherslur og verkefni þurfa að vera í
stöðugu endurnrati og endurskoð-
un. Aðstæður breytast og ný þekk-
ing verður til sem mikilvægt er að
nýta í jafnréttisstarfinu og gera það
þannig enn ntarkvissara og þar með
árangursríkara.
RÍKIR LAUNAJAFNRETTI I ÞINU FYRIRTÆKI
Kannið LAUNAMUN
MILLl KVENNA OG KARLA 24. OKT.
OG BIRTIÐ NI ÐU RSTÖÐURNAR
JÖFNUM KtMiL NDINN LAUNAMUN
- iTMINI'i \l 1 IAG ISI.ANDS.