Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 26

Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 26
Gegn einstaklingsbundnum launaákvörðunum og launaleynd 4» 1. Allar götur frá 1987 hafa kjarasamn- ingar verið á hendi sérhvers aðildarfélags bandalagsins en ekki heildarsamtakanna. Hins vegar hafa félögin iðulega haft sam- starf sín á milli og hefur það samstarf stundum tekið til fáeinna félaga, í öðrum tilvikum íjölmargra. Einnig hefur það gerst að bandalagið í heild sinni hefur samið á einu borði. Það gerðist svo dæmi sé tekið í kjarasamningum 1989 og aítur 1990 og endurnýjun síðari samninganna var sameiginleg á vegum BSRB. Hin al- menna regla er engu að síður sú að félög- in en ekki BSRB semja um kaup og kjör. Þrátt fyrir þetta kemur BSRB að kjara- málunum hvað jafnréttismálin áhrærir. í íyrsta lagi hvað kjararéttindi snertir. Þau eru í sívaxandi mæli á vegum bandalags- ins og má þar nefna fæðingarorlofið, en sem kunnugt er tókst að verja þann rétt sem konur í opinberri þjónustu höfðu áunnið sér þegar fæðingarorlofslögin voru samþykkt. I öðru lagi þá er það svo að þótt samn- ingsrétturinn sé hjá félögunum er hitt staðreynd að þegar umgjörð kjarasamn- inga hefur komið til umræðu hafa heild- arsamtökin látið að sér kveða. Þegar lög- um um Réttindi og skyldur opinberra starfsmanna var breytt árið 1996 var ákvæði þess efnis að forstöðumenn stofnana skyldu fá mjög opna heimild til launaákvarðana. Þessu lagðist BSRB mjög eindregið gegn. Ekki var nóg með að við værum andvíg hvers kyns geð- þóttavaldi stjórnenda heldur vorum við einnig mjög meðvituð um að einstak- lingsbundnir samningar hafa leitt til aukins kjaramisréttis, iðulega á kostnað kvenna. Þetta virðist hins vegar stríða gegn niðurstöðum úr nýlegri könnun VR en þar á bæ er því haldið fram að með ein- staklingsbundnum launaviðtölum hafi dregið úr launamisrétti kynjanna. Erfitt er að véfengja þetta. Hins vegar þykir mér sá boxhanskamórall sem verið er að innleiða ekki geðfelldur. Launajöfnuður á að byggjast á jafnrétti, ekki því hve klókt fólk er eða ýtið að pota sér áfram. Þess vegna þarf að reyna að múra jafn- réttið inn í kerfið þannig að þetta gangi eðlilega og átakalaust fýrir sig. Um hið nýja dreifstýrða launakerfi hjá hinu opinbera hafa alla tíð verið skiptar skoðanir innan okkar raða. Sumir sáu í stofnanasamningunum mikil sóknar- færi. Sjálfur hef ég haft efasemdir, tel að þar felist hættur sem fram komi í sam- drætti en síður við þenslu á borð við þá sem við höfum búið við undanfarin ár. Þá er vandinn sá að ekki er saman að jafna „vel stæðum“ vinnustöðum á borð við veitustofnanir og svo hinum „blönku" skólum og sjúkrahúsum. Hin- ar fyrrnefndu eru karlavinnustaðir, hinir síðari kvennavinnustaðir. Afleiðingarnar liggja í augum uppi. Hins vegar eru dreifstýrð launakerfi orðin ofan á og þá þarf að gera hið besta úr þeim. Og það hefur BSRB reynt að gera. I fyrsta lagi höfum við reynt að þoka öllum samningum úr einstaklings- bundnu fari yfir í félagslegt . I öðru lagi höfum við haldið á loft ábendingum um þær hættur sem felast í stofnanasamn- ingum, t.d. því sem fram kom í könnun Jafnréttisráðs frá miðjum tíunda ára- tugnum. Þar var bent á að launamis- munur kynjanna stafi af ákvörðunum sem teknar eru úti í stofnununum. Þessu megi hins vegar mæta með kynhlutlausu starfsmatskerfi sem væri til þess sniðið að tryggja að umönnunar- og uppeldis- þættir vægju jafnt á við ábyrgð sem teng- ist fjármunum. OGMUNDUR JONASSON, BANDALAGI STARFSMANNA RÍKIS OG BÆJA Ég held að smám saman séum við að verða meðvitaðri um þessa þætti en áður var. Það er síðan á ábyrgð okkar allra að sjá til þess að sú meðvitund skili sér í framkvæmd. Ég lít á það sem skyldu BSRB að standa jafnréttisvaktina. Síðan er náttúrlega eitt sem mikilvægt er að nefna og það er launaleyndin. í hennar skjóli grasserar misréttið eins og gröftur í kýli. Þrátt fyrir allt tal um gagnsæi af hálfu stjórnvalda þá hafa þau látið kjara- leyndina viðgangast. BSRB hefur beitt sér fyrir opnu kerfi en hefur óneitanlega átt á brattann að sækja og það gagnvart öll- um viðsemjendum sínum. Það er því miður staðreynd. 2. I jafnréttisstefnu BSRB segir meðal annars um launamisrétti kynjanna: „Til að draga úr þessum launamun vill BSRB stuðla að starfsmati sem sérstaklega taki tillit til hefðbundinna kvennastarfa og meti þau á við hefðbundin karlastörf.“ Eins og ég áður sagði þá er þetta aðferð sem jafnréttissinnar telja mikilvægt að verði beitt við launaákvarðanir. Þá segir í jafnréttisstefnunni: „Einnig vill BSRB stuðla að samstöðu í baráttunni fýrir hækkun lægstu launa.“ Þetta er að mínu mati lykilatriði. Sýnt hefur verið að hækkun lægstu launa gagnast konum sérstaklega, einfaldlega vegna þess að þær eru fjölmennari í þeim hópi sem er á lægstu laununum. Um launaleyndina segir að BSRB vilji að „launabókhald stofnana og fyrirtækja verði opnað þannig að allur kostnaður við laun starfsmanna sé opinber. Þetta er mjög nauðsynlegt í nýju launakerfi þar sem hver stofnun gerir samning við sína starfsmenn og tilhneiging yfirmanna er að gera launin að trúnaðarmáli. Þess vegna leggur BSRB höfuðáherslu á að um öll laun sé samið á félagslegum grunni.“ Þótt ekki sé öllum augljóst að barátta gegn einstaklingsbundnum launaákvörð- unum og launaleynd sé jafnréttisbarátta þá telur BSRB svo vera. Ég lít svo á að þetta sé eitt það mikilvægasta sem bandalagið hefur beitt sér fyrir og muni vonandi gera mikið í framtíðinni til að koma á launajafnrétti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.