Vera - 01.08.2003, Síða 28
/ KYNBUNDINN LAUNAMUNUR
HVAÐ VILTU SEMJA UM?
Hugsanlegt er að atvinnurek-
andinn bjóði þér eitthvað annað
en hækkaða krónutölu eða þér
finnist sjálfri að ýmis fríðindi
gætu hentað þér. Vertu opin fyrir
þeim möguleika að semja um
eitthvað annað en breytingar á
krónutölu.
Nokkur atriði sem semja mætti um:
■ Afsláttur af vörum fyrirtækisins
eða annarra fyrirtækja
■ Aukið fæðingarorlof
• Aukið orlof á launum
■ Árgjald i fagfélag
• Áskrift að tímaritum
• Barnagæsla
• Bensínstyrkur
• Bifreiðastyrkur
• Fatastyrkur
• Ferðastyrkur
• Fjölbreytni í starfi
■ Forkaupsréttindi á hlutabréfum
• Námskeið
• Námsstyrkur
• Peningabónus
• Símastyrkur
• Slysa- og líftrygging
• Stöðuhækkun
■ Sveigjanlegurvinnutími
• Tölva á heimilið
• Vinnuaðstaða
• Yfirvinna
• Yfirvinna tekin út í frídögum
í STUTTU MÁLI
Fyrst gerirðu vandað CV (starfsferilskrá)
með upplýsingum um menntun og fyrri
störf.
Svo gerirðu vandaða umsókn um starfið.
Svo ferðu í viðtal
(og minnist ekki á peninga).
Svo er þér boðið í annað viðtal
(eða jafnvel fleiri).
Eða/og haft er samband við þig til að
láta þig vita að þú getir fengið starfið.
Þá fyrst læturðu tilleiðast að tala
um launin.
Að lokum semur þú um frábær laun.
„Launráð'
Gagnleg ráð þegar semja
skal um kauphækkun
»Því hefur verið haldið fram að kynbundinn launamunar sé bara
konum að kenna, þær biðji ekki um launahækkun og geri of litlar
kaupkröfur þegar þær ráða sig til vinnu og í launaviðtölum. Bára
Magnúsdóttir vafraði um netið og tók saman góð ráð fyrir konur
sem eru að ráða sig í vinnu eða þurfa að sækja um kauphækkun.
Að verðleggja sig
Þó þú hafir ef til vill samið um
góð laun þegar þú réðir þig til
starfa þá getur verið að þú
hafir staðið í stað í launum.
Það getur hinsvegar verið
erfitt að telja í sig kjark til að
fara fram á kauphækkun, þú
verður því að vera með
högghelda skýringu á því
hversvegna þú átt hana skilið.
I fyrsta lagi þarftu að vita
hversu mikið þú getur farið
fram á og spyrja ráðningar-
þjónustur, vini þína og fólk
sem vinnur sambærileg störf.
Einnig getur verið gott að
hringja í verkalýðsfélög og
skoða launakönnun VR. Áður
en þú semur um laun skaltu
spyrja sjálfa þig: „Hver eru
lægstu laun sem ég get sætt
mig við?" Þú verður að geta
borgað reikningana þína.
Lægsti taxti er oft skammar-
lega lágur og menntun þín
eða starfsreynsla ætti að duga
þér til að fá betur borgað en
hann segirtil um. Þú verður að
vita réttu upphæðina fyrir þig
og ekki samþykkja neitt undir
henni.
Ekki nefna of lága tölu
Þú skalt ekki nefna of lága tölu
í því skyni að ganga betur í
augun á fyrirtækinu; gefa í
skyn að þú verðir ódýr og
góður starfskraftur. Flest fyrir-
tæki hafa ákveðið hvaða laun
þau munu greiða en eru til í
að hækka töluna fyrir réttu
manneskjuna. Rétta mann-
eskjan á ekki að þurfa að sætta
sig við lægri tölu en upphaf-
lega var áætluð.
Reyndu að heyra launin
sem eru í boði áður en þú
nefnir það sem þú vilt.
Sérstaklega getur verið
óheppilegt ef þú nefnir upp-
hæðina sem þú vilt fá í laun en
fyrirtækið hefði boðið þér
hærri upphæð ef þú hefðir
ekki verið svona ódýr. Talan
sem þú nefnir ætti að vera á
bilinu frá lægstu mögulegu
launum sem þú getur sætt þig
við og til 10 -15% hærra en þú
stefnir á. (Dæmi: Þú myndir
ekki sætta þig við minna en
200.000 en yrðir alsæl með
300.000, þá segistu vilja fá
laun á bilinu 200 til 330 eða
345 þúsund.)
Ekki hafa áhyggjur af því
að þú verðir ekki ráðin því þú
hafir beðið um hærra kaup en
þér var boðið, þú ert þegar
komin með það forskot að
vera sú sem fyrirtækið vill ráða
í vinnu. Það er tímafrekt og
dýrt að auglýsa eftir fólki, lesa
umsóknir og taka viðtöl og
fyritæki gera það ekki að
gamni sínu. Það getur verið
auðveldara og ódýrara að
hækka aðeins við þig kaupið.
Hvenær í viðtalinu á að
tala um launin?
Þú þarft að vera búin að fá
tilkynningu um að þú fáir
starfið áður en þú ferð að
ræða launin. Aðalgaldurinn er
sá að komast í þá stöðu að
fyrirtækið vilji ráða þig og þá
gerir það (vonandi) hvað sem
er til að fá þig. Talaðu því alls
ekki um peninga að fyrra
bragði og ekki fyrr en ákveðið
hefur verið af fyrirtækisins
hálfu að ráða þig.
Sé þér boðið starfið skaltu
þakka kærlega fyrir en biðja
jafnframt um sólarhrings um-
hugsunarfrest, jafnvel lengri
28/4. tbl. / 2003 / vera