Vera - 01.08.2003, Side 34

Vera - 01.08.2003, Side 34
/ IÞROTTAKONAN Auður Aðalsteinsdóttir Stefnir á Ólympíuleika »Sunna Gestsdóttir frjálsíþróttakona hefur verið að ná góðum árangri undanfarið. Hún setti íslandsmet í langstökki á Smáþjóðaleikunum á Möltu í júní sl. og gerði góða hluti á bikarmóti FRÍ mánuði síðar. Sunna er enginn nýgræðingur í íþróttinni, hefur tekið þátt í íslandsmeistara- mótum frá barnsaldri, fengið styrk frá bandarískum háskóla, þar sem hún dvaldi tvo vetur, og æft með norsku liði. Hún æfir nú með UMSS og segist stefna að því að ná lágmörkum fyrir næstu Ólympíuleika, það hafi alltaf verið fjarlægur draumur sem nú virðist innan seilingar. „Margir vita ekki að ég er komin aftur til (s- lands," segir Sunna en hún kom heim frá Noregi síðasta haust þar sem hún hafði dvalið, ásamt eiginmanni og dóttur, um þriggja ára skeið. Sunna býr nú á Blönduósi og sækir æfingar til Sauðárkróks. Þar fyrir utan er hún að klára sálfræðinám við Há- skóla íslands. „Ég er að mjaka því áfram í hálfgerðu sjálftilbúnu fjarnámi," segir hún. „Ég eyði miklum tíma í að bruna milli lands- hluta en það er ágætt og þetta er oft góður tími í bílnum, nóg næði til að hugsa." Svo virðist sem þessi rólega kona láti sér fátt fyrir brjósti brenna. „Ég hef svo sem prófað ýmislegt," segir Sunna en hún fékk styrk til að fara í háskóla í Bandaríkjunum i tvo vetur. „Ég sé ekki eft- ir þvi að hafa farið því þetta var mikil reynsla en þetta átti ekki við mig. Ég æfði sjöþraut þar en æfingarnar pössuðu mér ekki, áherslan var á magn frekar en gæði. Mötuneytið var aðeins of girnilegt og ég þyngdist bara. Ég kynntist líka manninum mínum þarna um sumarið og það dró mig heim." Aðspurð segir hún að það sé ekki endi- lega aðstaðan sem skipti máli. „Við bjugg- um líka í Noregi í þrjú ár og þótt þar væri betri aðstaða en hér held ég að ég hefði ekkert náð lengra þar. Það sem skiptir mestu máli er hvar manni líður vel, ekki síst félagslega. Hér þarf ég til dæmis ekki að stressa mig yfir því að fá pössun, foreldrar mínir eru hér á Blönduósi og hjálpa okkur mikið." Þau bestu eru oft um þrítugt Sunnu líkaði þó vel í Noregi og komst þar í kynni við góðan þjálfara sem hún heldur enn sambandi við. Viðtalið var tekið rétt eftir Bikarmót FRÍ og rétt áður en hún hélt til Noregs til að hitta gamla félaga. „Ég nota tækifærið til að keppa á einu móti í leið- inni," segir hún brosandi en hjá frjáls- íþróttafólki má segja að hver keppnin taki við af annarri á sumrin. „Ég segi oft að við æfum á veturna og keppum á sumrin. Milli keppna held ég mér við með skokki en hvfld er líka mikilvæg." Sunna lagði stund á hinar ýmsu íþróttir þegar hún var krakki, prófaði sund, körfu- bolta, fótbolta og hestamennsku. Hún byrjaði að æfa frjálsar íþróttir um tólf ára aldur og segist síðar hafa valið þá grein fram yfir aðrar vegna þess að þar náði hún bestum árangri. „Ég hafði ekki tíma fyrir þetta allt. Ég var góð í frjálsum og langaði til að verða betri. Þessi íþrótt á líka vel við minn persónuleika," segir Sunna en segist þó telja að frjálsíþróttir geti hentað hverj- um sem er þar sem þær eru mjög fjöl- breytilegar. Það er mjög misjafnt í hvaða greinum frjálsíþróttafólk keppir en Sunna hefur síð- ustu ár aðallega lagt áherslu á langstökk og spretthlaup. Þjálfunin er þó mjög altæk og á félagsmótum segist Sunna keppa í sem flestum greinum til að fá stig fyrir sitt félag. Sunna segir að það sé langt í frá að frjálsíþróttafólk nái toppnum snemma og brenni út. „Þau bestu eru oft í kringum þrí- tugt svo ég á enn nokkur ár eftir. Það má segja að maður verði bara enn einbeittari eftir því sem maður þroskast. Eftir að ég eignaðist fjölskylduna vil ég ná árangri fyrst ég er að eyða tímanum í þetta. Ég er búin að setja mér markmið og mun gera það sem ég get til að ná því. En svo er líka bara frábært að vera í góðu líkamlegu formi." X 34/4. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.