Vera - 01.08.2003, Qupperneq 36
/ ATHAFNAKONA
Elísabet
Þorgeirsdóttir
»Edda Rós Karlsdóttir er forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans og er
því oft leitað til hennar þegar rætt er um stöðu fjármagnsmarkaðarins í fjöl-
miðlum. Edda Rós er þjóðhagfræðingur og hefur innsýn í marga þætti íslensks
efnahagslífs því áður en hún sneri sér að bankamálum vann hún hjá Ríkisendur-
skoðun, Kjararannsóknarnefnd og sem hagfræðingur Alþýðusambands íslands.
Hún réði sig síðan til Búnaðarbankans og var fengin til að byggja upp greining-
ardeild bankans frá grunni en var í hópi þeirra starfsmanna Búnaðarbankans
sem fluttu sig yfir til Landsbankans sl. vor. VERA ræddi við Eddu Rós um starf
hennar í bankanum og áhugann á efnahagsmálum.
*
Edda Rós, sem er 37 ára, er að því komin að fæða þriðja
þarn sitt og er því á leið í fæðingarorlof. Hún segist þó hafa
góða tölvutengingu heima og muni geta fylgst vel með
og verið í sambandi við vinnufélagana þó að hún verði
heima með barnið. Hún er gift Kjartani Daníelssyni mat-
reiðslumanni og fyrir eiga þau 11 ára dóttur og 5 ára son.
„Ég er frá Keflavík og varð stúdent frá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja," segir Edda Rós og bætir við að hún hafi alist
upp við mikla umræðu um pólitík og verkalýðsmál en fað-
ir hennar, Karl Steinar Guðnason, var lengi forystumaður í
verkalýðshreyfingunni og alþingismaður. „Ömmur mínar
og afar voru verkafólk og sjómenn og ég ólst upp við
sterka réttlætiskennd. Mín kynslóð er sú fyrsta sem fékk
tækifæri til að fara í háskóla, en móðir mín tók reyndar
seinna stúdentspróf og háskólapróf í félagsráðgjöf og
vinnur við það í dag. Ég segi stundum að ég hafi valið
þjóðhagfræði af því að mig langaði svo að skilja fréttirnar
betur, vita t.d. ástæðuna fyrir því að alltaf var svona mikil
verðbólga á íslandi."
Eftir stúdentspróf fór Edda Rós til Kaupmannahafnar
og bjó með danskri vinkonu sem hún kynntist þegar hún
var skiptinemi ( Bandaríkjunum. Hún vann við skúringar
og fór á kvöldnámskeið í dönsku og rússnesku en henni
leist svo vel á danskt samfélag að hún ákvað að hefja nám
við Kaupmannahafnarháskóla.
„Þjóðhagfræði, sem nefnist statsvidenskap á dönsku, er
ein af fjórum elstu greinunum sem kenndar eru við skól-
ann. Kennslan fór því fram í elstu byggingunum í miðborg
Kaupmannahafnar og það var virkilega gaman að vera
þar. Ég bjó í Kaupmannahöfn í sjö ár en þegar ég kom
36 / 4. tbl. / 2003 / vera