Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 49
Niðurstöður þessarar könnunar gefa ekki óyggjandi
upplýsingar um fiskvinnslukonur almennt en fullyrða má
að þær gefi góðar vísbendingar og sannarlega eru
niðurstöðurnar um margt athyglisverðar.
ímynd og umræða
Auk þess að svara spurningalista gafst konunum sem tóku
þátt í könnuninni tækifæri til þess að koma
athugasemdum á framfæri. Nokkrar þeirra koma þar inn á
mikilvægi þess að bæta ímynd fiskvinnslunnar meðal
almennings. „Það mætti vera jákvæðari umræða um
fiskvinnslu í þjóðfélaginu. Þetta er nú ein aðaltekjulind
þjóðarinnar í gjaldeyri og fólk sem vinnur við fisk hugsar
líka, ekki bara þeir sem lokið hafa langskólanámi."
Ugglaust eru viðhorfin og tilfinningin fyrir þessari
atvinnugrein mismunandi eftir því hvar á landinu spurt er.
Oft er það nefnt að þörnum og ungmennum hafi í
gegnum tíðina verið „hótað" með fiskvinnslunni; ef þau
ekki nenntu að læra þá biði þeirra ekkert nema slorið.
Þannig var gefið í skyn að fiskvinnsla væri afarkostur,
eitthvað sem fólk tæki ekki fyrr en allt um þryti. Og ef til vill
var það þannig, einhvers staðar. Það er heldur ekki ýkja
langt síðan að það voru aðallega börn á aldrinum 12 tiM 6
ára sem héldu „undirstöðuatvinnugreininni" gangandi yfir
sumartímann. Það virðist sem að í gegnum tíðina hafi ekki
verið hægt að manna fiskvinnsluna með fullorðnu fólki.
Þegar síðan hagræðingarkröfur urðu meiri, afkasta-
hvetjandi kerfi þróast og tæknin verður meiri og dýrari
hætta frystihúsin að vera atvinnuvettvangur barna.
/ FISKVINNSLUKONAN
möguleika á starfsframa á eigin vinnustað. Enginn
fiskvinnsluskóli er lengur starfandi í landinu í þeirri mynd
sem þeir voru þegar bæði var skóli í Hafnarfirði og á
Dalvík. Þeir lögðu upp laupana um miðjan síðasta áratug.
Námskeið þau sem haldin eru fyrir fiskvinnslufólk og gefa
titilinn sérhæfð fiskvinnslukona/karl eru fyrst og fremst
launatengd og ágæt, svo langt sem þau ná. Þau eru þó að
mati margra þeirra sem starfa innan fiskvinnslunnar ekki
nógu markviss. Yfir 80% kvennanna sem tóku þátt í
könnun ráðuneytisins hafa sótt fiskvinnslunámskeið og
enn fleiri telja það frekar eða mjög mikilvægt að fá
tækifæri til að efla þekkingu sína og færni í starfi.
FISKVINNSLUKONAN ER BJARTSÝN OG REIKNAR MEÐ AÐ VERA í ÞESSU STARFI AÐ FIMM ÁRUM
LIÐNUM. HÚN VILDI AÐ KAUPIÐ VÆRI HÆRRA OG HANA DREYMIR UM AÐ MENNTA SIG MEIRA
OG EIGA FLEIRI MÖGULEIKA. OG HÚN VILL JÁKVÆÐARI UMFJÖLLUN UM STARFIÐ SITT
Góður starfsandi
Það kom fram hjá konunum sem könnunin náði til að
starfsandi væri almennt mjög góður meðal fisk-
vinnslukvenna. Mörgum þeirra fannst að samheldnin og
skemmtilegar samstarfskonur væri jafnvel einhver stærsti
kostur við vinnuna og þetta starfsumhverfi. Og könnunin
sýndi að mikill meirihluti kvennanna eru mjög eða frekar
ánægðar með starf sitt. Um 60% þeirra kvenna sem
könnunin náði til hefur starfað innan fiskvinnslunnar í
áratug. Árið 2002 var meðalstarfsaldur innan fisk-
vinnslunnar 6,4 ár en hafði verið 8,4 ár fjórum árum fyrr.
Eigi að síður gefa þessar upplýsingar vísbendingar um að
mörg fiskvinnslufyrirtæki hafi á að skipa reynslumiklum og
sérhæfðum kjarna kvenna. Virk starfsmannafélög sem
njóta stuðnings eigenda og markviss starfsmannastefna
skipta miklu máli. Markviss starfsmannastefna þarf ekki að
kosta mikla peninga en getur breytt miklu fyrir
viðkomandi fyrirtæki.
Menntun og möguleikar
Yfir 90% kvennanna sem tóku þátt í könnun ráðuneytisins
telja sig eiga mjög eða frekar litla möguleika á að vinna sig
upp í starfi innan fiskvinnslunnar og þar af leiðandi litla
Tæknivæddustu fiskvinnsluhúsin gera nú miklar kröfur
og það tekur um þrjá mánuði að þjálfa starfsmann þannig
að hann ráði fyllilega við vinnsluferlið. Það þarf bæði
ákveðið líkamlegt og andlegt atgerfi til að takast á við
tæknivædda nútíma fiskvinnslu. Og það fær ekki hver sem
er vinnu lengur. Könnunin sýnir að þeir útlendingar sem
eru ( fiskvinnslunni eru almennt með ágæta menntun.
Fiskvinnslukonur eru jafn misjafnar og þær eru margar.
Margar þeirra eru bráðklárar og gætu verið hvar sem er. En
þær ná líka árangri í þessu starfi.
Menntun sem tengist sjávarútvegi hefur verið að
þróast á háskólastigi og hægt er að sækja sér vél- og
skipstjórnarfræðslu á framhaldsskólastigi. Fyrir fisk-
vinnsluna vantar viðeigandi tilboð á framhaldsskólastigi.
Það er þó staðreynd að fiskvinnslan, eins og aðrar
atvinnugreinar, á mikið undir því að við hana starfi vel
menntaðir einstaklingar. Það er líka rétt að líta til þess að
formleg menntun er mikils metin og ímynd starfsgreina
fer nokkuð eftir þeim formlegu kröfum sem gerðar eru til
starfsfólks.
vera/4. tbl./2003/49