Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 57

Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 57
/ AÐ UTAN ÞAO ER ÞÓ EKKIFORTÍÐIN SEM VIÐ ÆTLUM AÐ SKOÐA í ÞESSARI GREIN HELDUR ÞÆR TVÆR KONUR SEM UM SKAMMA HRÍÐ VORU FYRSTU KONURNAR í HEIMINUM TIL AÐ SKIPA TVÖ VALDAMESTU EMBÆTTI EINS LANDS Á SAMA TÍMA Finnar hafa lagt lóð á vogarskálar jafnréttisbaráttunnar Ef sagan er skoðuð kemur í ljós að Finnar hafa verið ötulir við að leggja lóð á vogarskálar jafnréttis- baráttunnar. Til dæmis var konum gefmn réttur til að læra læknisfræði í háskólum árið 1870 og árið 1878 útskrifaðist Rosina Heikel með læknispróf, íyrst kvenna á öllum Norðurlöndunum. Árið 1906 var Finnland fyrsta landið í Evrópu sem veitti konum kosningarétt og rétt til að fara í framboð. Til að gera langa sögu stutta og taka langt stökk fram í tímann þá var Elisabeth Rehn fyrsta konan í heiminum til þess að skipa embætti varnarmálaráðherra árið 1990 og þannig mætti lengi telja. Það er þó ekki fortíðin sem við ætlum að skoða í þessari grein heldur þær tvær konur sem um skamma hríð voru fyrstu konurnar í heiminum til að skipa tvö valdamestu embætti eins lands á sama tíma. Hvaða áhrif hafði það á finnskt samfélag og hvað finnst Finnum um þessar tvær konur? Finnski málshátturinn „eins og tvö ber“ (kuin kaksi marjaa), á svo sannarlega ekki við um þær Törju Halonen og Anneli Jáatteenmáki. Þó að þær hafi báðar lesið lögfræði á námsárum sínum þá hafa leiðir þeirra þaðan til dagsins í dag verið mjög ólíkar. Ekki er það bara stjórnmálalegur bakgrunnur þeirra sem er ólíkur heldur allt þeirra fas og framkoma. Hæfur leiðtogi með gott skopskyn Tarja Halonen er mikill forkólfur og fer vel með það. Hún er fyrsta konan til þess að gegna æðsta embætti Finnlands, forsetaembættinu. Tarja var skipaður forseti árið 2000 til 6 ára. Hún er jafnaðarkona eða sósíaldemókrati og hefur verið þingmaður síðan 1979. Tarja er þekkt fyrir að vera víðsýn og fara sínar eigin leiðir. Þegar hún hóf afskipti sín af stjórnmálum var hún einstæð móðir. Það var áhugi hennar á samfélaginu sem leiddi hana út í stjórnmál. í forsetakosningunum árið 2000 héldu rnargir að það yrði henni fjötur urn fót að vera ekki skráð í þjóðkirkjuna og að vera ógift en í sambúð. En skoðanakannanir sýndu að almenningur var tilbúinn að kjósa Törju Halonen sem forseta sinn. Tarja Halonen hefur búið í Helsinki nánast alla sína ævi og er komin af verkafólki. Hún varð stúdent árið 1962 og útskrifaðist með próf í lögfræði árið 1968 frá Helsinki háskóla. Á háskólaárunum tók Tarja virkan þátt í stúdentapólitíkinni og var félagsmálafulltrúi stúdenta 1969 -1970. Áður en Halonen hóf afskipti af stjórnmálum vann hún meðal annars fyrir stærstu sanrtök verkalýðsfélaga í Finnlandi. Tarja hefur setið á ráðherrastóli lengst finnskra kvenna og hefur verið utanríkis-, dórns- og félagsmálaráðherra. Tarja var fyrsta konan í Finnlandi til þess að skipa embætti dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra. Hún hefur líka setið í óteljandi nefndum og ráðum Evrópu- og alþjóðasamtaka. Törju Halonen er lýst sem hæfum leiðtoga með gott skopskyn. Hún er sögð vera bæði ströng og nákvæm en einnig umburðarlynd og víðsýn. Tarja segir sjálf að hún sé kröfuhörð. „Ef þú gerir eitthvað, gerðu það þá vel,“ er haft eftir henni. Skrýtlur og sögur af litríku málfari Törju eru enn sagðar á göngum utanríkisráðuneytisins, gamla vinnustaðnum hennar. Tarja hefur líka tekið upp nýrri og afslappaðri siði innan sala forsetahallarinnar. Strax við innsetningarathöfnina þegar hún lyfti glasi og skálaði við forseta þingsins, frú Riitta Uosukainen, fannst nýskipuðum forsetanum eins og allir væru festir upp á þráð. Hún spurði því hvort ekki væri hægt að taka upp aðeins afslappaðri samskipti. Uosukainen tók vel í það og skipaði öllum að dreifa sér um salinn og slappa af. Törju hefur meira að segja verið líkt við Múmín- mömmu. Þegar hún fór í fyrstu opinberu heimsókn sína til Svíþjóðar árið 2000 var henni lýst þannig í sænskum fjölmiðlum: „Múmínmamma er komin.“ Tarja var með perlufesti og stóra handtösku, alveg eins og Múmínmamma er alltaf með. Tarja tók þessari samlíkingu ekki illa og sagði að það væri hverri konu mikilvægt að hafa stóra tösku sem rúrnar allt þeirra hafurtask. Ef ég reyni að ímynda mér Anneli Jáátteenmaki í Múmínlandi dettur mér helst í hug Litla Mí, þessi litla með tígóið sem er með svo hraðar og snöggar hreyfingar. Það var einmitt þannig - hratt og snöggt sem ferill Anneli tók stakkaskiptum síðustu þrjú árin. Bóndadóttir sem lærði lögfræði Anneli Jáátteenmáki var fyrsta konan til þess að taka formannssæti Miðjuflokksins árið 2002 þegar hún tók við af fyrrum forsætisráðherranum hr. Esko Aho. Eftir að hafa gegnt flokksformannsembættinu í níu mánuði leiddi Anneli flokkinn til sigurs í kosningunum í mars 2003. Anneli, sem er 48 ára, varð þekkt stjórnmálakona þegar hún gegndi embætti dómsmálaráðherra á árunum 1994 - 1995 í ríkisstjórn Esko Aho. Hún varð fyrsti kvenforsætisráðherra Finnlands en varð að segja af sér embættinu 18. júní síðastliðinn eftir að hún varð uppvís að lygum að þinginu og þjóðinni. En hver er þessi kona, Anneli Jáátteenmáki? Anneli er fædd árið 1955 í Lapua. Foreldrar hennar voru bændur í F0RSETAK0SNINGUNUM ÁRIÐ 2000 HÉLDU MARGIR AÐ ÞAÐ YRÐI TÖRJU FJÖTUR UM FÓT AÐ VERA EKKI SKRÁÐ í ÞJÓÐKIRKJUNA 0G AÐ VERA ÓGIFT EN í SAMBÚÐ. EN SKOÐANAKANNANIR SÝNDU AÐ ALMENNINGUR VAR TILBÚINN AÐ KJÓSA TÖRJU HAL0NEN SEM F0RSETA SINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.