Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 60
Samlokur
Samlokugerð er einföld og fljótleg leið til að útbúa
góða og heilsusamlega kvöldmáltíð og tilvalin leið
til að nýta afganga á nýstárlegan hátt. Kaldur
kjúklingur eða fiskur frá kvöldverði gærdagsinns
fær alveg nýtt hlutverk til dæmis í salati ofaná gróft
brauð. Kalt niðursneitt kjöt er líka fyrirtaks álegg á
samloku ásamt girnilegu grænmeti sem við teljum
nánast ómissandi. Það er auðvelt að búa til
samlokur og hugmyndaflugið er nánast eina
takmörkunin því að allt er leyfilegt.
»Nýlega kom út bókin Samlokur eftir Bryndísi Evu
Birgisdóttur og Heiðu Björg Hilmisdóttur. Þær reka
fyrirtækið Eldhús Heiðu & Bryndísar en vinna auk þess við
næringarráðgjöf. Heiða, sem er með BS gráðu í næringar-
og rekstrarfræði og MS gráðu í stjórnun stóreldhúsa, sér
um rekstur eldhúss og matsala Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss og Bryndís, sem er með doktorspróf í næringar-
fræði og næringarráðgjöf, kennir við Háskólann og er að
skrifa bók um lífsstíl. Bryndís og Heiða voru svo vinsam-
legar að gefa lesendum VERU nokkrar samlokuuppskriftir.
Stangveiðisalat
fyrir 4
1 lítil dós kotasæla (200 g)
1 dós sýrður rjómi (200 g)
3 harðsoðin egg
12 msk ferskur graslaukur eða 4 msk þurrkaður
graslaukur
1/2 tsk hvítur pipar
örlítið salt eða jurtasalt
100 g soðinn, bakaður eða grillaður kaldur lax/silungur
eða 80 g heitreyktur lax
Mikið af fersku grænmeti, svo sem salatblöð og rauð
paprika til að veita mjúku salatinu mótstöðu.
Blandið saman kotasælu og sýrðum rjóma. Bætið
eggjum, graslauk og pipar út í. Smyrjið á brauð og
leggið laxasneiðar yfir ásamt fersku grænmeti. Gott á
gróft brauð með þykkri skorpu.
60 /tbl. / 2003 / vera