Vera - 01.08.2003, Page 62
/ FRÁ FEMINISTAFÉLAG! ÍSLANDS
» I Femínistafélagi íslands eru starfandi ellefu starfshópar og
mun hver hópur greina frá starfsemi sinni í VERU. Að þessu
HaiiaGunnarsdóiti, sinni er það Ofbeldisvarnarhópurinn.
Ofbeldisvarnarhópurinn kom fyrst
saman á fundi í maí 2003. í hópinn
eru skráðir um 40 femínistar en á
fundina mæta 8-15 manns hverju
sinni. Ofbeldisvarnarhópurinn fundar
3-4 sinnum í mánuði. Markmið
hópsins er að berjast gegn kyn-
bundnu ofbeldi. Kynferðislegt ofbeldi
er grófasta birtingarmynd kynjamis-
réttis á íslandi sem og annars staðar.
Við lítum á klám og vændi sem
birtingarmynd kynferðislegs ofbeldis
og viljum fara hina svokölluðu
sænsku leið svo að vændiskúnnar séu
sekir gagnvart lögum. Ofbeldis-
varnarhópurinn er í góðu samstarfi
við Stígamót og fær að nýta húsnæði
Stígamóta undir fundi. Rúna
Jónsdóttir fræðslufulltrúi Stígamóta
situr fundi hópsins en okkur er
mikilvægt að nýta reynslu fyrri
kynslóða í baráttunni.
Ofbeldisvarnarhópurinn vill að
kastljósinu sé beint að ofbeldis-
mönnunum. Umræðan hefur mikið
snúist um þolendur ofbeldisins og
skömmin hefur átt heima hjá þeim.
Skömmin á að vera hjá hjá þeim sem
fremja ofbeldið.
Kynferðislegt ofbeldi byggir ekki á
dýrslegum hvötum heldur á valdi -
valdi karla yfir konum og börnum.
Hópurinn telur að með samstilltu
átaki allra þjóðfélagsþegna megi
útrýma kynferðislegu ofbeldi. Við
leggjum áherslu á samfélagslega
ábyrgð en til þess að það gangi þarf
að draga ofbeldið út úr skápnum og
upplýsa fólk um það. Það þarf að
ræða það í skólum, á vinnustöðum, á
heimilum og alls staðar þar sem fólk
kemur saman. Þannig auðveldum við
þeim sem verða fyrir því að leita sér
hjálpar og vinna úr sárunum og fáum
stráka og karla til að taka ábyrgð.
Ofbeldisvarnarhópurinn hefur
verið virkur í vor og í sumar:
• Hópurinn tók þátt í göngunni 1. maí.
• Fulltrúi hópsins hélt ávarp í
Þjóðleikhúskjallaranum 1. maí.
• Fulltrúar okkar hafa komið fram í
sjónvarpi, útvarpi og blöðum.
• Seldum merki fyrir utan Goldfinger
og bentum þannig á alvarleika
tilvistar nektardansstaða á íslandi.
• Vorum í samstarfi við karlahópinn
fyrir verslunarmannahelgina.
Fengum poppstjörnur í lið með
okkur sem tóku afstöðu gegn
nauðgunum.
• Lásum ástarljóð og ástarfrasa út
um glugga Stígamóta á
Menningarnótt. Tilgangurinn var
að mæla með ást og virðingu í
stað þess að mótmæla ofbeldi.
• Auk þess er hópurinn umræðu-
vettvangur fyrir fólk sem ekki
stendur á sama um klámvæðinguna
og ofbeldið sem henni fylgir og vill
gera eitthvað í málinu!