Vera - 01.08.2003, Side 66

Vera - 01.08.2003, Side 66
Jóhanna Helga Halldórsdóttir / ÚR DAGBÓK KÚABÓNDA A Hawaii umla ég hálfsofandi þar sem ég ligg í hengirúminu og læt sólina baka mig. Pálmatrén varpa þægilegum skugga í steikjandi hitanum, ég er svo sveitt við að gera ekkert að bikiníið er orðið þvalt, óþægilegt og límist við mig. Var búin að gleyma hvað það getur orðið heitt á Hawaii. Þegar ég strita við að lyfta augnlokunum blasa við hvítar strendur og kóngablár sjórinn með seglbátum og brimbrettum, guð hvernig getur fólkið hreyft sig í dag, spyr ég sjálfa mig. Dásamlegi þjónninn minn sem fylgist með hverri hreyfingu, ef hægt er að kalla upplyftingu augnloka hreyfingu, kemur með svaladrykk. Hjálpar mér með rörið og hverfur af vettvangi þegar ég vil ekki meiri sólarolíu. Hann er búinn að bera tvisvar á mig í dag og það er rétt rúmlega hádegi núna. Svaladrykkurinn er á bragðið eins og Hawaii, ávextir, áfengi, sjór og sól. Og ást og blóm. Alveg eins og Hawaai, maður tímir ekki að fara þangað því maður vill aldrei fara þurt aftur, ég tími heldur ekki að drekka þennan svaladrykk því þá klárast hann. Geri það samt því annars verður hann heitur og áfengið gufar upp. Sný mér svo við í hengirúminu, verð auðvitað að fá jafnan lit þótt ég sé orðin dökkbrún. Ligg á maganum, ákveð svo í rólegheitum að reyna að ganga eitthvert í dag, veit ekki hvert, enda er heilinn búinn að hægja á sér í hitanum og hefur ekkert viðbragð. Þjónninn mælir með strand- lengjunni í skugga trjánna og setur niður í picnic-tösku á meðan ég fer í eins kalda sturtu og ég get. Hressist aðeins við það. Meðan ég klæði mig í vítt blóma „húla" pils og topp, hugsa ég um hvað það sé mikið puð að vera á Hawaii í heila viku, mikla fyrir mér gönguna og lofa þjóninn trúfasta í huga mér sem sér um þessi sumarhús og gjörsamlega dekrar við gestina. Þrífur, eldar eða nær í mat, gerir allt sem við viljum og helst meira. Ég held að hann sofi ekki. Eða eigi tvífara sem vinnur á nóttunni við að fylla frystinn af ísmolum, hreinsa upp flöskur, glös og öskubakka eftir okkur. Það er allt hreint og glansandi þegar við vöknum undir hádegi, komin hrein handklæði, búið að þvo fötin okkar og blanda þessa dásamlegu svalandi Hawaii-áfengis- drykki. Hann gefur mér eld með gull zippo og við göngum af stað eftir stígnum. Mér finnst svo þægilegt að hann skuli ekki reyna að spjalla við mig, bara vera nálægur. Hin úr hópnum fóru í verslunarferð og ég er fegin því, mér er farið að leiðast að halda hópinn með þeim, langar að hitta nýtt fólk sem ég þekki ekki. Hef aldrei séð. Hvítu sandalarnir mínir virka framandi á þessum kaffibrúnu fótum, hárið leikur um háls og bak og ég nýt göngunnar. Við breiðum úr picnic-dúknum undir risastóru pálmatré, sem er eins og ýkt útgáfa af einu þannig sem ég á heima í potti á (slandi. Liggjum í sólbaði fram á kvöld, hann hlær þegar hann sér að ég er orðin brúnni en hann, höldum áfram og öndum að okkur Hawaii-lykt og hljóðum. Endum á því að ramba á varðeld á ströndinni með glöðu fólki umhverfis. Syngjandi og dansandi. Þetta er fólk sem ég þekki ekki og hef aldrei séð, þannig að ég smell inn í hópinn og þarfekki að leika neitt af hlutverkunum mínum eða annarra. Dansa bara og syng í blómapilsinu með svaladrykk... ...rumska hálfsofandi....ummm......hefði ekki átt að drekka svona marga drykki í gær....trúi þessu ekki, ég hef sofnað í fötunum, mjólkurbíllinn kominn og ég verð ekki búin að mjólka fyrren á hádegi efég kem mérekki strax úr rúminu. Æi hausinn..... Með bestu sumarsólarkveðju, Jóhanna. 66 / 4. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.