Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 68

Vera - 01.08.2003, Blaðsíða 68
/ BRÍET, FÉLAG UNGRA FEMÍNISTA Á næstu bríetarsíðum Veru munu birtast greinar frá bríetum í útlöndum. Bryn- hildur Heiðars- og Ómars- dóttir, sem er við nám í Columbia University í New York, ríður á vaðið. í næsta blaði eigum við von á skrifum frá bríetum á Norðurlöndum. Sarah Jones rappar um kvenréttindi »Þann 20. október 1999 sendi KBOO útvarpsstöðin í Portland, Oregon út sinn vikulega þátt um hipp-hopp. Á lagalista kvöldsins var meðal annars lag DJ Vadims og Söru Jones Your Revolution. Skömmu seinna barst bandarísku fjarskiptastofnuninni (Federal Communications Commission) kvörtun yfir því að KBOO hefði útvarpað ósiðsamlegum texta og sendi nafnlausi ákærandinn segul- bandsspólu með upptöku af þættinum. Tveimur árum seinna úrskurðaði stofnunin að KBOO hefði brotið á fjarskiptalögum og sektaði útvarpsstöðina. 4- Þessi stutta frásögn virðist ef til vill ekki ýkja merkileg þar sem Bandaríkjamenn eru alræmdir fyrir almenna spé- hræðslu og fyrir að kæra og dæma af minnsta tilefni. Það sem vakti hins vegar almenna athygli á þessum dómi var að lagið sem stofnunin taldi vera ósæmilegt var í raun harðorð gagnrýni Ijóðskáldsins Söru Jones á bandaríska rappara fyrir að vanvirða konur og fyrir að draga úr rétt- indabaráttu svartra í Bandaríkjunum. Texti lagsins er að miklu leyti byggður á tilvitnunum í lagatexta frægra bandarískra rappara. Jones setur þá í nýtt samhengi í Ijóði sínu og dregur þar með fram það kvenhatur sem felst í mörgum þeirra. Því þótti mörgum ankannalegt að lag Jo- nes skyldi verða skotspónn stofnunarinnar en ekki þeir frumtextar sem hún byggði á. Sara Jones er velþekkt leikritaskáld, Ijóðskáld, leikari og réttindabaráttukona. Eftir stutta viðdvöl í Bryn Mawr há- skólanum fluttist Jones til New York borgar. Eins og hún segir sjálf: „Ég hafði engan tilgang í lifinu. Ég væflaðist um borgina og eyddi kvöldunum i hipp-hopp partíum. Skyndilega uppgötvaði ég að ég væri að syngja fullum rómi lagatexta sem ég ætti alls ekki að vera að syngja. Ég, að syngja um tíkur og hórur!" Jones hóf eftir það að semja Ijóð og flytja þau á kaffi- húsum borgarinnar og vann árið 1997 Nyorican Grand Slam verðlaunin fyrir Ijóðaflutning. Þessi Ijóð urðu seinna uppistaðan í leikriti hennar Surface Transit, sem vakti gríð- arlega athygli fyrir að gagnrýna kynjamisrétti og stöðu minnihlutahópa í samfélaginu. Women Can't Wait Bandaríski femínistinn Gloria Steinem hreifst svo af verk- um Jones að hún kom á samstarfi milli hennar og kven- réttindastofnunarinnar Equality Now. Að frumkvæði stofnunarinnar samdi Jones nýtt leikrit, Women Can't Wait, og frumflutti það árið 2000 þegar Sameinuðu þjóð- irnar héldu sérstaka ráðstefnu til að kanna stöðu kvenna. Leikritinu er ætlað að benda á það að þjóðríki heims hafa ekki enn staðið við þau fögru loforð sem gerð voru á kvennaráðstefnunni í Beijing 1995. í Women Can't Wait fáum við að heyra einræður átta kvenna sem eiga það sameiginlegt að búa við lög sem brjóta á mannréttindum þeirra. Við kynnumst til dæmis Praveen frá Indlandi sem hefur verið nauðgað í mörg ár af eiginmanni sínum en getur ekki kært þar sem nauðgun innan hjónabands er lögleg í Indlandi. Við kynnumst Hölu frá Jórdaníu sem fær aldrei að sjá morðingja systur sinnar í 68 / 4. tbl. / 2003 / vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.