Vera - 01.10.2004, Blaðsíða 4

Vera - 01.10.2004, Blaðsíða 4
/ EFNI / 6/JOLASKAP 10/AUÐUR EIR-GLEÐI GUÐS 27 / FJÁRMÁL 36 / ÞÓRDÍS BJÖRNSDÓTTIR 48 / ELFRIEDE JELINEK 50 - 55 / BÆKUR 56 / TÓNLIST 14 / KARLMENNSKA OG OFBELDI Nauöganir og heimilisofbeldi eru vandamál sem við verðum að horfast í augu við og takast á við í sameiningu - karlar og konur. Liggja rætur þess ef til vill í karlmennskuhugarfarinu sem gegnsýrir heiminn og við getum líka breytt ef við viljum? Rætt er við Guðrúnu M. Guðmundsdóttur mannfræðing um ástæður nauðgana og ungan mann sem varð að sjá að baki konu sinnar og barna vegna ofbeldis- hegðunar sinnar. 28 / WANGARI MAATHAI Hún fær friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir einstök störf sín og baráttu- þrek í landi sínu, Kenýa. Kvennahreyfingin sem Maathai stofnaði árið 1977, Grænabeltishreyfingin, hefur það markmið að vinna gegn eyð- ingu skóga og auka pólitíska þátttöku almennings, einkum fátækra kvenna. 30 / JÓHANNA K. EYJÓLFSDÓTTIR Amnesty International hefur unnið merk störf að mannréttindamálum og einkum beitt sér gegn fangelsunum fólks vegna stjórnmálaskoð- ana. Samtökin ákáðu nýlega að beita sér líka gegn ofbeldi af öðru tagi, m.a. ofbeldi í garð kvenna. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir er fram- kvæmdastjóri íslandsdeildar Amnesty og hefur í átta ár gegnt veiga- miklu hlutverki við stefnumótun alþjóðasamtakanna. Elísabet Þor- geirsdóttir ræddi við Jóhönnu um lífsskoðanir hennar. 38 / KYNJAFRÆÐI í KENNARAHÁSKÓLANUM Á síðastliðnu ári var gerð tilraun til að bjóða námskeið um kynjafræði í Kennaraháskóla íslands en ekki var áhugi fyrir áframhaldi þess á haustönn. Baráttukonurnar Steinunn Helga Lárusdóttir og Þórdfs Þórðardóttir, lektorar í KHÍ, hafa samt ekki gefist upp því þeim finnst mikilvægt að kennaranemar sem munu sjá um kennslu í grunnskól- um framtíðarinnar séu meðvitaðir um jafnréttismál. 42 / HJÖRDÍS HJARTARDÓTTIR Hún er félagsmálastjóri í Borgarbyggð og hefur áratuga reynslu af störfum sem félagsráðgjafi í Reykjavík. Hjördís tók þátt í störfum Rauðsokkahreyfingarinnar, var ein af stofnend- um Kvennaframboðsins í Reykjavík, starfaði lengi með áhugaleikfélaginu Hugleik og er enn formaður Piparmeyjafé- lags Reykjavíkur og nágrennis. Guðrún Vala Elísdóttir í Borgar- nesi ræddi við Hjördísi um líf hennar og lífsviðhorf. VERA / #5 / 2004 / 23. árgangur / www.vera.is / Laugavegi 59/101 Reykjavík / sími: 552 6310 / Útgefandi: Verurnar ehf. / Ritstýra: Elísabet Þorgeirsdóttir / vera@vera.is / Ritnefnd: Bára Magn- úsdóttir, Eyrún Ólöf Siguröardóttir, Hugrún R. Hjaltadóttir, Þorgerður Þorvaldsdóttir, Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir. / Hönnun og umbrot: A4 HÖNNUNARSTOFA / HGM / hgm@a4.is / sími: 552 0604 / 697 5808 / Ljósmyndir: Ragnheiður Sturludóttir / Forsíðumynd: Ragnheiður Sturludóttir / Auglýsingar: Hænir - Sirrý og Arndís / sími: 558 8100 / Prentun: Prentmet / Plastpökkun: Vinnu- heimilið Bjarkarás / Dreifing: Dreifingarmiðstöðin, Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. / © VERA ISSN 1021 - 8793 4 / 5. tbl. / 2004 / vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.