Vera - 01.10.2004, Blaðsíða 56

Vera - 01.10.2004, Blaðsíða 56
/ TÓNLIST / SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR 1 » Sænska söngkonan Lisa Ekdahl hélt tvenna tónleika í Austurbæ í lok október síöast- liðnum fyrir fullu húsi og við dynjandi undirtektir. Daginn eftir flaug hún til Stokkhólms og spilaði í Göta Lejon leikhúsinu og samkvæmt Svenska Dagbladet kynnti hún þar lagið Vem vet með stolti og sagði: „Næsta lag sló í gegn í Reykjavík.” Inn á milli laga talaði hún eitthvað meira um ísland, kallaði það land svartra steina og var ákaflega Ijóðræn, en hvorki ég né gagnrýnandinn erum viss um hvað hún átti við. En það er allt í lagi, okkur líkar vel við Lisu, hún er Ijóðræn og þægileg, hún fer sínar eigin leiðir og við áheyrendur hlustum bara og njótum því hún lætur okkur líða vel. Lisa Ekdahl er fædd 1971 í Mariefred og fluttist til Stokkhólms 18 ára gömul þar sem hún hitti píanóleikarann Peter Nordahl og byrjaði að syngja með tríói hans. Nokkrum árum síðar bauðst henni plötusamningur og hún gaf út sína fyrstu plötu sem hét einfaldlega L/sa Ekdahl. Plata sú innihélt lagið Vem vet sem sló ekki bara í gegn í Austurbæ heldur út um alla Skand- inavíu árið 1994 þegar það kom út. Platan fékk nokkur sænsk tónlistarverðlaun; besti kvenkyns popp- og rokklistamaðurinn, listamaður ársins og fyrir bestu plötuna. Þar næst gaf hún út plöturnar Med kroppen mot jorden, (1996) og Bortom det blá (1997), báðar sungnar á sænsku og gengu þær einnig vel í á- heyrendur. Syngur jazz standarda með sínu nefi Árið 1997 gaf hún líka út When did you leave heaven sem er ábreiðudiskur, þ.e. þar tekur hún gamla jazz standarda eins og Cry me a river, Lush life, It's oh so quiet (sem Björk okkar tók líka), My heart belongs to daddy og fleiri góða slagara. Ári seinna hélt hún áfram á sömu braut á plötunni Back to Earth, með lögum eins og Now or never, It had to be you, Night and day og / get a kick out of you. Þessar ábreiðuplötur hlutu misjafnar undirtektir og þá sér- staklega í Bandaríkjunum. Fannst þarlendum gagnrýnendum að þessi litla stelþa með litlu röddina ætti ekkert með að ráð- ast á þennan garð, sem auðvitað er alls ekki sá lægsti sem finnst. Þetta er svo sem skiljanleg gagnrýni, að minnsta kosti þykir mér útgáfa hennar af lagi Cole Porter, Night and day, ekki komast í hálfkvisti við útgáfu Ellu Fitzgerald. Aftur á móti finnst mér gaman að heyra til dæmis Now or never því á köfl- um nær Lisa Ekdahl tóni Billie Holiday, án þess að reyna endi- lega að apa eftir henni. Útsetningarnar á þessum plötum eru örlítið poppaðri, léttari og meiri sveifla í þeim. Lisa syngur með sínu nefi og er það ekkert nema vel enda ekkert gaman að hlusta á karókí (bara gaman fyrir þann sem syngur). Rödd hennar er auðvitað ekki jafn tregafull og Billie Holiday en hún notar vel það sem hún hefur. Lítil, skrýtin og heillandi rödd Árið 2000 kemur svo út platan Lisa Ekdahl sings Salvadore Poe. Salvadore þessi er eiginmaður hennar, bandarískur gítar- leikari sem hefur samið mikið af tónlist fyrir kvikmyndir og sjón- varp, m.a. fyrir myndina Basketball Diaries með Leonardo DiCaprio. í þetta skipti samdi hann öll lögin sérstaklega fyrir hennar rödd, bossanova er allsráðandi og útkoman erfrábær. ( heild sinni virkar platan á mig einsog lagið The girl from Ipa- nema eftir Stan Getz og Joao Gilberto; lágstemmt, munaðar- fullt, dillibossalegt, sætt og skemmtilegt. Nýjasta plata Lisu er Olyckssyster sem kom út í september á þessu ári. Hér syngur hún aftur á sænsku og nú má finna smá kántrýbragð af tónlistinni, örlítið af Bob Dylan og heil- mikið af því sem einkenndi frumburð hennar. Það sem er sérstakt við Lisu er þessi litla og skrýtna rödd sem samt er svo heillandi. Poppið hennar er ekki hreint popp og jazzinn er heldur ekki hreinn jazz, hún blandar þessu oft saman og meiru til og útkoman verður alltaf áhugaverð og falleg. Hún er óhrædd við að flakka á milli tónlistarstefna á þlötum sínum og festir sig þar af leiðandi ekki við eina stefnu. Hún er leitandi en ekki týnd því hún finnur sig nánast hvar sem hún fer. Tónlist Lisu Ekdahl er lágstemmd, sunnudagstónlist, aðventutónlist, þegar úti er snjór og kuldi er yndislegt að halda sig inni með Ekdahl á fóninum og einhverntíman heyrði ég því fleygt að ekki væri hægt að halda stelpupartý án rauðvíns og plötu með Lisu Ekdahl. 56 / 5. tbl. / 2004 / vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.