Vera - 01.10.2004, Qupperneq 43

Vera - 01.10.2004, Qupperneq 43
Það var ekið með okkur í vagni niður Lauga- veginn eins og gripi sem á að fara að selja. Við vorum bara venjulega klæddar en hengdum á okkur borða; ein var ungfrú Verkakona, ég held að við höfum hengt utan á hana krakk- ana hennar tvo, svo var ungfrú Fiskverkakona, ég man að ég var ungfrú Bílasala Graðfinns... á hverfaskrifstofu í Austurbæ, síðan var ég með annarri konu forstöðumaður hverfa- skrifstofu í Breiðholti í fimm ár, næst var ég forstöðumaður á fjölskylduheimili fyrir unglinga í sex ár, síðan vann ég í fóstur-, ættleiðingar- og umgengnismálum í um íjögur ár og endaði með því að vera for- stöðumaður á hverfaskrifstofunni í Breið- holti. Meðfram þessu hef ég gert ýmislegt, var félagsráðgjafi í Kjarvalshúsi, sinnti kennslu, var með útvarpsþátt um réttar- stöðu fjölskyldunnar og í ýmsum ígripa- verkefnum. Svo lauk ég tveimur árunt í lagadeildinni með vinnu en hætti. Ég átti aðallega eftir hin ýmsu afbrigði eignarrétt- arins sem ég hafði engan sérstakan áhuga á enda hafði ég aldrei stefnt að því að starfa sem lögfræðingur. Ég vissi að ég mundi aldrei geta látið fólk borga. Svo flyturðu út á land. ]á, ég fór á móti straumnum og flutti norður á Hvammstanga. Ég var félagsmála- stjóri í Húnaþingi vestra og starfsmaður Svæðisskrifstofu fatlaðra á Norðurlandi vestra þar til sveitarfélögin tóku yfir þjón- ustu við fatlaða. Þetta var frá 1995 til 2000 þegar ég kom í Borgarnes. Þó ég hafi kornið víða við hef ég alltaf verið að fást við svipuð verkefni. Manstu hvenær áhugi þinn á jafnrétt- ismálum kviknaði og af hvaða tilefni? Ég var ekki jafnréttissinni sem barn, án mótmæla prjónaði ég sokka á bræður mína og bakaði á meðan þeir fengu að keyra traktorana, en ég sáröfundaði þá. Eina al- mennilega jafnréttisbaráttan sem ég háði sem krakki var að ég harðneitaði að vera í pilsi og lék mér ekki að dúkkum. Mér er það minnisstætt þegar ég var 5 ára að setja átti mér mörk og sýna mér í eitt skipti fyr- ir öll hver réði og ég var klædd í pilsið með valdi. Ég eyðilagði pilsið, klippti það, þannig að ég var ekki sett í það aftur. En ég veit alveg hvenær ég varð friðarsinni og herstöðvaandstæðingur. Það var þegar ég las bókina Höggvið í sama knérunn. Ég var mjög lítil þegar ég las hana, svona 10-11 ára. Þetta er bók um andspyrnuhreyfing- una í Noregi og um það hvernig Þjóðverjar fóru með fólk. Við leslur þessarar bókar varð ég friðarsinni og andstæðingur allra herja og herstöðva og hef ekkert látið af > þeirri skoðun síðan. En jafnréttismálin, það var ekkert eitt heldur bara þegar ég fór að átta mig meira á samfélaginu, þá kont það. Það var tölu- verð hreyfmg meðal kvenna, og töluverð vitundarvakning þegar ég var á táningsár- um og um tvítugt. Heilmikið var líka að gerast í Danmörku á námsárunum, reynd- ar ekki í skólanum heldur í samfélaginu, og maður fór að velta þessum málum fyrir sér. Og þú verður Rauðsokka? Ég byrjaði að starfa með Rauðsokka- hreyfmgunni mjög fljótlega eftir að ég kom heint úr nárni og starfaði með henni alveg þar til starfsemin lognaðist útaf. Ég starfaði svolítið í miðstöð sent hélt utan um starfið og var um tíma í hópi sem hélt úti síðu í Þjóðviljanum um jafnréttismál. Ég var að rótast í þessu alveg fram yfír 1980. Segðu mér frá einhverju sem þið gerðuð. Árið 1980, árið sem Vigdís var kosin forseti, vorum við með ákaflega skemmti- lega uppákomu sent tengdist kosningun- um ekkert. Á þeim tíma var alltaf verið með einhver kvöld þar sent verið var að kjósa ungfrú þetta eða hitt, ungfrú allt mögulegt og þegar nýir bílar komu á markaðinn voru þeir auglýstir með fá- klæddar konur ofan á húddinu. Þetta var búið að ergja okkur Rauðsokkur í tölu- verðan tíma og okkur var nóg boðið. Það hafði ekki fullnægt þörf okkar fyrir breyt- ingar í jafnréttisátt að Vigdís hefði verið kosin forseti svo við héldunt uppboð á konum. Við vorum 6-8 konur og var ekið með okkur í vagni niður Laugaveginn, eins og gripi sem á að fara að selja. Við vorum bara venjulega klæddar en hengdum á okkur borða; ein var ungfrú Verkakona, ég held að við höfum hengt utan á hana krakkana hennar tvo, svo var ungfrú Fisk- verkakona, ég man að ég var ungfrú Bíla- sala Graðflnns, og þarna voru ungfrúr þetta og hitt. Svo var haldið uppboð við Bernhöftstorfuna þar sem Karl Ágúst Úlfs- son, sem við fengunt sem uppboðshaldara, lýsti fjálglega öllum okkar kostum eins og tíðkast nteð söluvarning. Þarna safnaðist saman fullt af fólki og áttuðu sig ekki allir á að þetta væru mótmæli. Það var ntikil spenna í lofti og þarna vorum við allar slegnar hæstbjóðanda. Varst þú ekki dýrast selda konan? Jú, ég man að kunningi minn lifði sig svo inn í þetta þegar hann sá að einhver maður sem honum fannst hálf ófrýnilegur bauð grimmt í mig. Kunningi minn bauð alltaf á móti honurn því hann vildi ekki að ég færi í klærnar á þessum manni. Og ég var seld alveg óheyrilega dýrt. Ég man ekki hvort þetta var fyrir eða eftir myntbreyt- ingu en ég var slegin á þrjár komma eitt- vera / 5. tbl. / 2004 /

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.