Vera - 01.04.2005, Page 20
/ konur og húmor
kallar einhver og Alice Manthe brosir
vandræðalega. Hendur hennar titra af
spenningi. Þegar hún fékk jákvæða nið-
urstöðu á prófi fyrir sex árum þorði hún
ekki að segja fjölskyldu sinni frá því.
Kesego Basha stofnandi samtakanna
Ceyoho, sem standa að keppninni, sagði
mömmu hennar og systur frá smit-
inu. í dag er Alice sjálf stuðningsaðili
fyrir Hiv-jákvæða og talar opið um það
hvernig það er að lifa með vírusinn.
Elizabeth vinnur líka sem stuð-
ningsaðili. Hún setur sig í samband við
fólk á sjúkrahúsinu í heimabæ sínum
Molepolole og heimsækir það síðan
eftir útskrift til þess að rétta því hjálpar-
hönd.
„Margir fremja frekar sjálfsmorð en
að lifa opið með sjúkdóminn, fordóm-
arnir eru svo miklir,“ útskýrir hún. Hún
skoðar spegilmynd sína á meðan smink-
an setur á hana augnskugga.
„Þó ég tapi í kvöld er ég samt sigur-
vegari. Vinnan sem ég vinn er svo mik-
ilvæg. Fólki finnst kannski að við séum
ekki menntaðar, ekki þekktar, en við
hugsum, finnum til og framkvæmum.“
Þetta snýst um mannréttindi
Á sviðinu er allt tilbúið. Kynnir hefur
upp raust sína: „Hér eru tólf konur sem
hafa talað opið um hvernig það er að
vera Hiv-smituð. Við skulum klappa
fyrir öllum þátttakendum Miss Hiv
Stigma Free 2005!“
Cynthia kemur fyrst fram. Bros
hennar er endalaust og varirnar glansa.
Hún kastar kossi til áhorfenda sem fagna
henni.
„VIÐ VERÐUM AÐ
BERJAST GEGN
ALNÆMI EN EKKI
FÓLKI MEÐ ALNÆMI,"
ÖSKRAR CYNTHIA AF
SVIÐINU
I Botswana hefur meira að segja for-
setinn, Festus Mogae, farið í Hiv-próf.
Hann sér alnæmi sem stóra ógn við
þjóðina sem heild. í Afríku hafa 17 millj-
ónir manna dáið af völdum alnæmis, 30
milljónir til viðbótar eru smituð.
„Alnæmi snýst ekki lengur um sjúk-
dóm, þetta snýst um mannréttindi,"
hefur fyrrverandi forseti Suður-Afríku,
Nelson Mandela, sagt. Sonur hans dó úr
alnæmi í janúar síðastliðinn.
„Við verðum að berjast gegn al-
næmi en ekki fólki með alnæmi,“ öskr-
ar Cynthia af sviðinu. Rödd hennar
drukknar í fagnaðarlátum þegar hún
er krýnd Miss Hiv Stigma Free 2005.
Mamma hennar kemur upp á sviðið og
grætur. „Fyrir nokkrum árum fékk ég
að heyra að dóttir mín ætti bara nokkra
daga eftir ólifaða. Ég leitaði eftir hent-
ugri kistu. En í dag stendur þú hérna.
Ég er svo stolt, svo ógurlega stolt. Dóttir
mín hefur risið upp frá dauðum og orðið
drottning."
Eftir Carolina Jemsby. Úr scenska tíma-
ritinu Ordfront 4/2005. Þýðing, með leyfi
höfundar: Hugrún R. Hjaltadóttir.
Staðreyndir um Botswana og Hiv / alnæmi:
Fólksfjöldi: 1.800.000
Höfuðborg: Gaborone
Stjórnun landsins: Forsetinn Festus Mogae var endurkjörinn með miklum meirihluta
síðasta haust.
Aðaltekjulind: Demantar
Botswana er það land sem hefur orðið næstverst úti hvaó varðar Hiv-smit þar sem um
það bil 38% landsmanna eru smitaðir. Aðeins Swaziland hefur orðið verr úti.
Frá og með árinu 2002 hafa allir alnæmissjúklilngar fengið ókeypis hiv-lyf frá ríkinu.
Keppnin Miss Hiv Stigma Free hefur verið haldin þrisvar sinnum og er skipulögð af fé-
laginu Center for Youth and Hope. 2003 vann Kgalalelo Ntsepe. Eftir að hún vann titil-
inn vildi hún ekki tala um sjúkdóminn og hótaði að kæra fjölmiðla sem sögðu frá því að
hún væri Hiv-jákvæð.
Auður Eir Vilhjálmsdóttif
LE
Gleði guðs
Gleði Guðs eftir séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur fjallar um tilfinningar daglegs lífs
og um möguleika okkar til að þekkja þær, búa með þeim og nota þær til góðs.
Hún fjallar um sektarkennd, fyrirgefningu og kvíða, en líka um frelsið sem
við höfum til að hugsa góðar hugsanir. Hún fjallar um einsemd og reiði, en
líka um frið hjartans. Hún fjallar um möguleika kvennaguðfræðinnar.
K VÍÐ/
og Jgei
f FRlf
fil
Af
KÉf'ÍNt
:md oc
RlRdsf
LSí, '
I 'EhlíúllSt/U
«»
Bókin er einnig saga kvennahreyfingarinnar sem er uppspretta styrks og
gleði.
- Hvers vegna og hvenær hóf kvennahreyfingin baráttu sína?
- Hverju er barist fyrir núna? ( .~J
Bókin fæst í Kvennagarði, Laugavegi 59, Kirkjuhúsinu og bókabúðum'
20 / 2. tbl. / 2005 / vera