Vera - 01.04.2005, Page 57
þó hann fylgi ekki þvi formi sem við erum
vönust. Og þessi mynd er ekkert rosalegri
en fjöldi vídeólistaverka sem ég hef skoó-
að. Áhorfendur eru bara greiniLega mun viö-
kvæmari fyrir grófLeika og öLLu því sem brýt-
ur upp viðtekið form þegar um kvikmyndir
er að ræða en vídeóList. MerkiLegt er Líka að
innan um aLLt hið óviðfelLdna, er myndin Líka
mjög Ljóðræn á köfLum. Lukas Moodysson
var LjóðskáLd áður en hann byrjaði að gera
kvikmyndir og það gLittir i LjóðskáLdið.
Handritið er LausLega skrifað af
Moodysson, myndin meira og minna spunn-
in af aðaLLeikurunum í samstarfi við hann.
Enda eru þau öll skrifuð fyrir handritinu.
Hvað er verið að segja með þessari mynd?
Þeirri spurningu hefur verið veLt upp vióa.
Líka spurningunni um hvort eina Leiðin tiL
að ná athygLi fóLks núorðið sé að hneyksLa
þaó eða Láta því bregða. Kannski. ALLavega
merkir maður það á öLLu, ekki bara kvik-
myndum, heldur ekki síður augLýsingum.
Ádeila á mötun
upplýsingaflæðisins
SjáLfsagt verður hver að finna út úr þessu
fyrir sig, en ég fékk aLLavega mjög sterkt á
tilfinninguna að Moodysson vildi sýna hvað
upplýsingafLæðið og mötunin í nútímanum
j hefur mikil áhrif á líf fólks, ekki síst þess
sem ekki hefur örugga sjálfsmynd eða er
utangarðs. Stúlkugreyið er tiL dæmis með
lýtaaðgerðir á heiLanum, hefur minnkað á
sér skapabarmana. Hún grætur Líka yfir að
hafa ekki verið vaLin í raunveruleikaþáttinn
Stóra bróður og hefur dreymt um að verða
módel frá þvi hún var lítil. Netið fær Líka
sinn skerf, enda karlarnir meðvitaðir um að
þó að fóLki finnist þeir vera að gera eitt-
hvað rangt með þvi að búa tiL kLámmynd,
þá séu þeir bara að svara eftirspurn. KLámið
sé stærst á netinu. Og varLa geti það verið
slæmt sem meirihlutinn vilL.
Ég er ennþá að meLta Tómið í hjartanu.
Get til dæmis ekki svarað því hvort mér
finnst myndin góð eða ekki. Það var Líka
erfitt að horfa á LiLju 4-ever, en mér fannst
hún strax áhrifamikiL og góð. Tómið í hjart-
anu er athygLisverð að mörgu Leyti, ekki síst
fyrir tiLraunirnar með formið. En auk þess
að vekja hjá manni ógeð fannst mér hún á
köfLum Líka hundLeiðinLeg og tangdregin.
). FurðuLeg kvikmyndauppLifun, en hver segir
að maður eigi aLLtaf að skemmta sér eða
gráta af samúð yfir einhverju sorgLegu á
bíó? Kvikmyndin sem miðiLl er veL tiL þess
falLin að spila á aLLan tilfinningaskalann.
Sigríður Pétursdóttir / kvíkmyndir /
VERA DRAKE
Ein af bestu myndunum sem ég hef séð
að undanförnu er án efa nýjasta mynd
Mike Leigh, Vera Drake. Leikstjórinn
er í miklu uppáhaldi hjá mér og virð-
ist i stöðugri sókn. Allt eða ekkert frá
2004 var mjög góð mynd en Vera Drake
er enn betri. Engum tekst betur að draga
upp mynd af breskri verkamannastétt
en Mike Leigh en að þessu sinni gerist
myndin ekki i nútimanum heldur um
1950, þegar þjóðin var ennþá hálf lömuð
eftir striðið.
Vera Drake er LítiL og hokin, brosmild
kona. Lúsiðin þrífur hún heima hjá efnam-
eira fóLki en eyðir því sem eftir lifir dags í
að hugsa vel um fjöLskylduna sína, mann og
tvö uppkomin börn sem búa heima. TeboLLi
bjargar öLLu og hún viLL aLLa hugga og öLLum
hjáLpa. Vera fer Líka á hverjum degi tiL aLdr-
aðrar móður sinnar og hugar að henni, en á
kvöLdin Lyfta hjónakornin sér stundum upp,
fara á bíó eða fá sér eina koLlu á næsta bar.
FjöLskyLdan er samheLdin og góð tiLbreyt-
ing að sjá i kvikmynd eLdri hjón sem eLska
greiniLega hvort annað ennþá af öLLu hjarta.
En Vera á sér leyndarmáL. Æðrulaus hjáLpar
hún ungum stúLkum og stundum fulLorðn-
um konum að framkaLLa fósturLát. Þær eru
örvæntingarfuLLar, geta ekki með nokkru
móti hugsað sér að eignast börnin. Vera
trúir þvi staðfastLega að hún sé að gera
rétt, annars myndi Líf kvennanna Leggjast í
rúst. Enginn í fjöLskyldu Veru veit af þessu
fyrr en LögregLan bankar að dyrum hjá þeim
og Vera er Lögsótt.
Mike Leigh Leggur aLLtaf mikið upp
úr góðum Leik og að þessu sinni verður
hann framúrskarandi. Hvers vegna ImeLda
Staunton fékk ekki Óskarinn fyrir túLkun
sína á Veru mun ég aLdrei skiLja. Aðrir Leik-
arar í myndinni eru Líka afbragðsgóðir og
án efa má rekja það hve veL tekst til meðaL
annars tiL þess að Mike Leigh æfði atriðin
með Leikurunum mánuðum saman áður en
farið var í tökur. Þannig verður persónu-
sköpunin líka sterk. Auk þess gerir þessi
aðferð það að verkum að samtöLin sLípast
og verða eðLileg.
BLær raunsæis einkennir myndir Mike
Leigh, hann notar mikið náttúruLega lýs-
ingu, Lítinn farða og síðast en ekki síst er
hann meistari í að nota þögn og umhverfis-
hljóð. Þaó er ekki mikiL tónList í myndinni,
en þar sem hún er á hún veL við. MínímaLískar
margradda kvenraddir í forgrunni, stundum
Leika nokkur hLjóðfæri undir.
Ég verð Lika að minnast á leikmynd,
búninga og aLLa aðlögun að sögutímanum,
eftirstríðsárunum. Hvert smáatriði er án
nokkurs vafa úthugsað. SpegLar Líka á Lág-
stemmdan hátt stétta- og aðstöðumun.
Væntumþykja, virðing og vandvirkni eru
LykiLorð sem mér detta í hug þegar ég
hugsa um myndir Mike Leigh. Honum þykir
svo vænt um persónurnar sinar og þess
vegna verða þær svo mannLegar aö maður
fær djúpa samúð með þeim.
Mike Leigh leggur alltaf mikið upp úr góðum leik
og að þessu sinni verður hann framúrskarandi. Hvers
vegna Imelda Staunton fékk ekki Óskarinn fyrir
túlkun sína á Veru mun ég aldrei skilja
vera / 2. tbl. / 2005 / 57