Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1883, Page 31

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1883, Page 31
keisara, og að baki honum Napóleon III, er þá þótti vera einna foldugastur höfðingi hjer í álfu og ráðsvinnastur. Bismarck tók l*að ráð, er þá þótti hin mesta óhæfa, og enn þykir flestum, þeim er lög vilja halda. Hann neytti fjár ríkisins svo sem honum þurfa Þótti, að fornspurðu þinginu, fulltrúadeildinni. Hann stýrðiland- tou fjárlagalaust svo árum skipti. Hann gerði ýmist, að hann frestaði þingfundum svo sem lög leyfðu frekast, er þingmenn vildu eigi láta að óskum stjórnarinnar, eða hann vísaði þeim heim °8 ljetefna til nýrra kosninga. En annari hendi hjelt hann sem kappsamlegast á búnaði hers og landvarna, ljet þar ekkert til spara. K°m þar brátt, að Prússa iðraði þess eigi. En ekki var honum vel ^°rin sagan um þessar mundir. J>að var flestra manna mál þá hefir löngum verið atkvæði fjandmanna hans síðan, að hann 'spari hvorki til góða hluti nje illa, að fram megi ganga það er Opp er tekið», svo sem Hákon jarl lagði til forðum. Hann og þeir fjelagar í ráðaneytinu voru fullir upp dramhs og ójafnaðar vi5 þingmenn, er orðum átti við þá að skipta, töldu sjer eigi shylt að hlýða þingsköpum, og þar fram eptir götunum. |>ing- öenn gerðu hveija atreiðina á fætur annari að fá konung til að þoka ribböldum þessum úr ráðherrasessi, en fengu jafnan þungar atölur og enga rjetting síns máls. Fám missirum eptir það er Bismarck tók við völdum, tóku Prússar að reyna vopn sín og her liinn nýja. Jþeir báru niður á h>önum, í bandalagi við Austurríkismenn, (1864). Að vísuvareigi til mikillar frægðar að vinna við slíka lítilmagna. En vel þótti Bismarck hafa komið þar ár sinni fyrir borð, er þeir fjelagar fengu að leika í tómi við smælingja þessa fyrir hinum stórveldunum, er þó var hernaður þessi í móti skapi, og mundu síðar meir hafa Oiikið viljað til vinna, að ljónsklærnar hefðu þá verið heptar, ■Ueðan tími var til. Bandamann tóku af Dönum hertogadæmin (Lauenburg, Holtsetaland og mestalla Sljesvík), svo sem öllum er kunnugt. Tveim árum síðar urðu þeir ósáttir um ránsfeng sinn, og öieð því að Prússum [var þá vaxið svo ásmegin, að þeir treystu sjer til fangs við fjelaga sína, ljet Bismarck hætta til fundarvið þá, en hafði þó fengið áður ítali í bandalag við sig. þau skipti fóru svo, á fárra vikna fresti, að Austurríkismenn biðu algjörðan ósigur fyrir Prússum, í orustunni við Königgrátz eða Sadowa í Bæheimi 3. júli 1866. Kalla sumir þann ófrið Sjöviknastríð. Apt- ur báru Austurríkismenn efra skjöld af ítölum, en urðu þó að láta af hendi við þá það er þeir höfðu til barizt: Feneyjar. Svo (*’)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.