Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1883, Blaðsíða 46
veðráttu sunnanlands og víðar, eptir óvenjuharðan vetur, og
hjelzt langt fram á vor; en síðan kuldasamt og grasbrestur
mjög mikill, einkum á túnum.
Maí 5. Konungur kveður til alþingissetu frá Pjetur biskup
Pjetúrsson, Berg amtm. Thorberg,, Jón Pjetursson háyfirdómara,
Magnús yfirdómara Stephensen, Ama landfóg. Thorsteinson og
Sigurð Melsteð pr.skólaforstöðumann,
6. Synódalrjettur dæmir Sigurgeir prest Jakobsson á Grund frá
embætti.
8. Póstgufuskipið Arcturas af stað frá Khöfn til strandsiglinga
umhverfis Island.
24. Kosnir alþingismenn í Norðurmúlasýslu þeir porvarður læknir
Kjerúlf og Benid. sýslum. Sveinsson.
Júní 7. Amtsráðsfundur vestra, í Ólafsdal. Lokið 9.
18. Kosnir alþingismenn í Árnessýslu þorlákur bóndi Guðmundsson
og Magnús Andijesson biskupsskrifari.
26. Prestvígðir þeir Eiríkur Gislason og Magnús Andijesson pr."
skólakandídatar.
26. Kaupskip frá Vesturheimi, Jamestown, brýtur við Stafnes,
;hlaðið trjávið. Selt við uppboð fyrir 8-10 þús. kr.
27. Amtsráðsfundur syðra, í Évík. Lokið 30.
28. Guðmundur Jiorláksson tekur embættispróf í Norðurlandamálum
við Khafnarháskóla (magister-conference).
Júlí 1. Alþingi sett, af landshöfðingja, í hinu nýja þinghúsi.
Porseti í neðri deild Jón Sigurðsson frá Gautlöndum, í efri d.
og sameinuðu þingi Bergur Thorberg. Varafors. í neðri d.
þórarinn Böðvarsson, í efri deild Árni Thorsteinsson, í sam-
einuðu þingi Tryggvi Gunnarsson.
1. Jón Sigurðsson tekur embættispróf í læknisfræði í Rvík, með
1. einkunn.
8. Bókmenntaíjelagsfundur í Reykjavík.
9. Sigurður Ólafsson tekur embættispróf í lögum við Khafnar
háskóla með 2. einkunn.
9. Herskipið Alliance frá Vesturheimi kemur til Reykjavíkur
á leið norður í höf að leita að Jeannette, pólfararskipi Bennetts
ritstjóra í New York. Kom aptur norðan 10. okt., fór 15.
9. Lokið burtfararprófí í lærða skólanum: útskrif. 15 alls, 11
með 1. eink., 4 með 2.
Ágúst 23. Aðalfundur jijóðvinafjelagsins á alþingi. Forseti endur-
kosinn Tryggvi Gunnarsson, varafors.kosinn Eiríkur Briem.
27. Alþingi slitið. Hafði til meðferðar 102 mál; afgreiddi sem
lög 29 frumvörp.
31. Lokið embættisprófi á prestaskólanum: Magnús Helgason,
Sigurður Stefánsson, Lárus Eysteinsson, Jón Óíafur Magnússon
og Pjetur Jónsson með l.einkunn, Helgi Árnason með 2. eink.
September 12. Aðalfundur Gránufjelagsins, á Akureyri.
16. Landshöfðingi veitir heiðurslaun úr styrktarsjóði Christ-
ians IX þeim Jóni Runólfssyni á Vatnshömrum og Vilhjálmi
Bjarnarsyni i Kaupangi, 160 kr. hvorum.
(«)