Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1883, Side 32

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1883, Side 32
mælti Bismarck fyrir, og það með, að Austurríkiskeisari skyldi ganga úr hinu þýzka sambandi og láta hinum heimilt að skipa svo málum þar, sem þeim líkaði. þar með hlaut og Prússakonungar her- togadæmin til fullra forráða, svo og konungsríkið Hannóverog nokkur smáríki önnur á þýzkalandi norðanverðu, er svo höfðu orð- ið misvitur að snúast í lið með Austurríkismönnum. þessi frið- ur var gerðuríPrag 23. ágúst 1866. Lagði NapóleonHl nokkuð til þeirra mála, og fyrir hans orð var það haft í samningnum, að Norður-Sljesvíkingar mættu hverfa aptur undir Danakonung, ef þeir kysu það heldur. Af því varð þó aldrei, og ljet Bismarck Austurríkismenn leysa sig undan því heiti mörgum árum síðar (1878), er full vinátta tókst aptur með Prússum og Austurríkis- mönnum, en Napóleon þá löngu dauður. Napóleon mæltist til launa nokkurra fyrir hlutleysi sitt af ófriði þessum (Rínargeirans), en þess synjaði Bismarck þverlega. Má af því marka, að hann þótt- ist þá eigi lítils um kominn. I hernaði þessum hafði Prússaveldi aukizt stórum að löndum og þegnum og vaxið mjög að virðingu, en herinn fengið frægð mikla og orðstír. Snerist þá almenningi þar í landi mjög hugur til Bismarcks, og lofaði hann nú hver maður sem bezt hann kunni. Hann færði sjer þau umskipti í nyt hið bráðasta, og ljet þingið draga ijöður yfir allar sakir, er það hafði á hendur honum fyrir flárafneyzlu hans í lagaleysi undanfarin ár. Var það þá auðsótt. Voru honum og nokkrum hershöfðingjum Prússa veittar þar á ofan stórgjafir í sæmdarskyni fyrir frammistöðu þeirra. Bíki þau á þýzkalandi norðanverðu, fyrir norðan ána Main, er eigi hurfu undir Prússakonung, gerðu samband sín á milli með forustu Prússaveldis, að ráði Bismarcks. J>að kom í stað hins þýzka sambands, er áður var, og var kallað Norðursamband. það stóð í 5 ár, til þess er keisaradæmið þýzka komst á stofn 1871. Á því var líkt fyrirkomulag og síðar var haft á keisaradæminu. Prússakonungur var framkvæmdarstjóri, og ráðgjafi honum v*ð hlið, er nefndur vor sambandskanselleri. J>að embætti hlaut Bis- marck. þótti hann reka það vel og skörulega. Mörgum þótti nóg um uppgang Prússa, ekki sízt Frökkun). þeir höfðu lengi haft það ráð við þjóðverja, er Rómveqar fornu beittu við sína granna og margir stjórnvitringar hafa eptir þeim tekið: að deila og drottna, að ala sundurlyndi með þeimográða svo fyrir kosti þeirra. Var því Frökkum allhugleikið að bnekkja ríki Prússa meðan tími væri til. Prússar sáu og gjörla, að þeir

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.