Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1883, Page 36
að segja, að megi eigna nokkurum einum manni forustu i
vandamálum álfunnar síðan er Napóleon III leið, verður enginn
þar til nefndur honum fremur.
Tvisvar sinnum^hefir Bismarck verið veitt banatilræði: í fyrra
sinn um vorið 1866 og síðara skiptið sumarið 1874. Hann sakaði
lítið eða ekki í hvorugt skipti. Illræðismennirnir ómerkir (Blind
og Kullmann).
Bismarck er mikill maður vexti, höfði hærri en aðrir menn,
gildur að því skapi, meðan hann var heill heilsu, vel á sig
kominn og vasklegur að öllu; mikilleitur, ennibreiður og brúna-
mikill, harðleitur og grimmlegur, þá er hann er reiður, eins og
sagt er frá Agli Skallagrímssyni. Ekki er honum mjúkt nm mál,
en allra manna er hann gagnorðastur og orðheppnastur, enda
óvæginn mjög i kappdeilum, og er ekki smámennum við hann
að etja á þingi. Hann er glaður við öl og málrætinn. Vel er
hann látinn af þjónustnmönnum sínum og landsetum, og góður
heimilisfaðir. Trúmaður er hann sagður af þeim, er honum eru
kunnugastir, og iðjumaður er hann mesti. Megi hann því við koma
fyrir annríki í Berlin, situr hann á höfuðbúgarði sínum Varzin,
norður í Pommern. þar lætur hann og fyrir berast, er vanheilsa
hans leggst svo þungt á hann, að hann má eigivinna. Enhana
hefir hann bakað sjer með því að leggja of mikið á sig.
Bismarck kvongaðist ungur greifadóttur prússneskri og hefir
átt við henni þrjú börn, tvo sonu og eina dóttur. Heita synir
hans Herbert hinn eldri og Vilhjálmur hinn yngri, menn nú um
þrítugt, og hafa verið til aðstoðar föður sínum við stjórnarstörf
hin síðari árin. Vilhjálmur var og á þingi í fyrra. Systir þeirra
heitir María og er gipt greifa einum frá Holtsetalandi, Eantzau
að nafni.
Mynd sú af Bismarck, er þessari grein fylgir, er af honum
sextugum.
Gambetta er fæddur í Cahors, smábæ einum á Frakklandi
sunnanverðu, 30. okt. 1838. Hann heitir fullu nafni Léon Micbel
Gambetta. Faðir hans var smákaupmaður í Cahors, ættaður fra
Ítalíu, úr byggðinni fyrir sunnan Genua. Höfðu þeir frændur
heitið áður Baccho að ættarnafni, og langafi Léons Gambetta
borið nafnið Gambetta fyrstur þeirra kynsmanna, fyrst að auk-
nefni (það þýðir: hinn fótskammi), en síðan að ijettu nafni, eptir
það er bróðir hans hafði gert ættinni þau mannorðsspell, að hinum
(32)