Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.08.1984, Blaðsíða 6
flokka lauslega í fjóra flokka (Hoek og
Brown 1980).
1. Sprungur, lagamót og aðrar misfell-
ur í berginu.
2. Bergspenna.
3. Veðrun og þensla á jarðlögum,
aðallega setbergslögum.
4. Grunnvatn.
Oft valda tveir eða fleiri þessara þátta
erfiðleikum samtímis, en grunnvatns-
vandamál eru algengust, eða um 60%
tilfella.
Einföld líkön lýsa þó aldrei
nákvæmlega hegðun bergmassans í
jarðgöngum, svo að lokahönnun og
ákvörðun um styrkingu jarðganga
verður raunverulega að fara fram eftir
ýtarlegar athuganir í göngunum í ljósi
reynslu sem fæst er verkinu nriðar
áfram og með hliðsjón af reynslu sem
fengist hefur við svipaðar aðstæður
annars staðar.
Það er lítill vandi að reikna alls kyns
styrkingar í jarðgöng, þegar búið er að
mæla eða álykta út frá jarðlagalíkani þá
þætti sem til þarf í útreikningana. Mesti
vandinn er að ákvarða þessa þætti, þ.e.
að skilja hvernig líkanið virkar og hvað,
hvar og hvernig á að mæla eða álykta.
Útreikningarnir koma síðan af sjálfu sér
í kjölfar þessa. Eða eins og segir í til-
vitnuninni í byrjun inngangsins: ,,Það er
mikilvægara að gera réttu hlutina en að
gera hlutina rétt”.
Undirbúningur virkjana og jarðganga
þeirra byggir á samspili áætlana,
rannsókna og ákvarðana. Sérfræðingar
á sviði vatnsorkuvirkjana hafa hin
síðari ár gert sér far um að koma á
staðlaðri áfangaskiptingu á rann-
sóknarferli fyrir vatnsaflsvirkjanir og
þó að það sé gert fyrir virkjunina í heild,
á það ágætlega við um jarðgöng virkj-
unarinnar ef þau eru til staðar (Jón
Ingimarsson o.fl. 1983). Líkt og mynd 1
sýnir er þetta samfellt ferli þar sem hvert
atriði leiðir af öðru og hverjum áfanga
verður að vera lokið áður en annar dýr-
ari og viðameiri tekur við. Alls tekur
rúmlega áratug að rannsaka virkjun-
arstað þannig að hægt sé að bjóða út
byggingu virkjunar og yfirleitt eru
rannsóknir vegna jarðganganna dýrasti
hluti undirbúningsins.
Fyrsta áætlun um verkið er byggð á
almennum gögnum. Hún er notuð til að
finna hagkvæma virkjunarstaði. Frek-
ari rannsóknir geta bent á annmarka á
þessum frumhugmyndum. Slíkt leiðir
yfirleitt til breyttra viðhorfa í næstu
áætlun. Óvissa um framkvænrd og
kostnað minnkar þannig stig af stigi í
undirbúningum, sbr. mynd I.
Á síðari stigum ferilsins breytist
áætlanagerðin yfir í hönnun á vissri
tilhögun mannvirkja. Rannsóknin bein-
ist þá að því að afla þeirra upplýsinga
sem þarf fyrir þá tilteknu tilhögun.
Kostnaðarlínuritið á hægra helnringi
myndar 1 er að mestu byggt á rannsókn-
arkostnaði við Blönduvirkjun (sjá mynd
2) en stuðst við upplýsingar frá öðrum
virkjunarstöðum.
Á mynd 3 er sýnt að hvaða þáttum er
unnið á hverju rannsóknarstigi fyrir
virkjunina í heild, en flestir þættirnir
eiga einnig við um rannsóknir vegna
jarðgangagerðar sé um að ræða slíka til-
högun á virkjuninni.
2. YFIRBORÐSRANNSÓKNIR
Á mynd 3 er ýtarlegur listi yfir þá
verkþætti sem vinna þarf á hverju und-
irbúningsstigi fyrir virkjun. Hvað
FERLI
TlMI
KOSTNAÐUR
N AF UNDIRBUNINGSKOSTNAOI VIRKJUNAR
0 50 100
í?
ALMENN GOGN
FYRSTA FORATHUGUN
Lokaákvöröun,
eiganda og.
Alþmgis
RANNSÓKNIR V/ÚTBODSGAGNA
ÚTBOOSGOGN
ALMENN GOGN
• FYRSTA FORATHUGUN
■ -GRUNNRANNSOKNIR
•ENDANLEG FORATHUGUN
FORHONNUNAR-
‘rannsóknir
/0 1 2345
- s AF HEILDARKOSTNAOI virkjunar
8YGGING | MONXUN ' | F /
RANNSOKNIR A BYGGINGARSTIGI
Rannsóknir (vatnalræöi. mannvirkjajaröfræöi o fl )
Hónnun og bygging
AkvarOamr. forgangsroöun mogulegra virkjana
82.09.II3I
Mynd I. Æskilegt ferli og áfangaskipting í rannsóknum, hönnun og byggingu virkjana og ann-
arra stórra mannvirkja eins og neöanjurðarvirkju.
Ronnsöknorkostnaður
Mkr
24n
FORATH 2%
FORHONNUN
18%
VERKHÖNNUN
80% /
/
y
/
s
/I
97A ~T 1975 1976 1977
Virkjunarkostnoður 740 Mkr. (& des 19 80
Ronnsóknarkostnoður 24 Mkr (3) des I980r32%
1978 1979
Rannsóknarkostnoði
100
-90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
Mvnd 2. Kostnuður við runnsókn og hönnun Blönduvirkjunar upp að útboðsstigi
22 — TÍMARIT VFÍ 1984