Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 27
Helgarblað DV ... ..——- Afmælisútgáfa Heim^etebokar Gumness erv®i\ staðreynd að ir þar ýmissa grasa. Til dænus kem Þai hvQrt tUeru tvö skráð heimsmet ikuasáatkastn Þa bókarinn- skiturinn er hnoðaður eða 0SrgTupplysingar úr hókinni ^r^aSrtlðl S5M- ‘ ^________________________ V \ V „Eg hefði aldrei lagt upp í þetta verk ef ég hefði haft minnstu hug- mynd um hvað ég var að fara út í. Eg fékk sendar prufur sem voru um iarð- fræði sem ég þýddi og var ekkert sér- staklega lengi. Ég hugsaði með mér að fyrst ég gæti þýtt jarðfræði þá hlyti ég að geta þýtt alit. En það sjálfstraust reyndist byggt á sandi,“ segir Árni Snævarr þingfréttamaður en hann þýddi Guinness-heimsmetabókina makalausu sem nú er væntanleg í helstu bókabúðir. Árni stóð fljótlega frammi fyrir margvíslegum þýðingarvanda, til dæmis reyndist erfitt að koma yfir á íslenskuna einu og öðru sem snýr að leikföngum, og Árni þurfti að leita til ýmissa karla sem voru að starfa með honum úti í Kósóvó sem gátu rifjað upp hvernig hin fáránlegustu leikföng virkuðu sem voru til þegar þeir voru ungir. „Það er óvarlegt að tala um að ég einn hafi þýtt bókina því ótrúlega koiuu að þessu og ótrúlegasta rólk fekk frá mér tölvupóst í neyð. Allir reyndust boðnir og búnir að hjálpa." Örlagafuglinn heiðlóa Það er Vaka-Helgafell sem geftrr út en i ár verða liðin 50 ár ffá því að bók- m leit fyrst dagsins Ijós. Bókin sjálf er heimsmet því árið 2003 var 100 millj- ónasta útgáfa bókarinnar gefin út og er Heimsmetabók Guinness því ein söluhæsta bók heims. Einungis Biblí- an og önnur trúarrit hafa notið viðlíka vmsælda og selst í fleiri eintökum. Heimsmetabók Guinness hefur verið gefin út hérlendis þrisvar, síðast árið 1990. Upphaf Heimsmetabókarinnar má rekja til Sir Hughs Beaver, for- stjóra Guinness-ölverksmiðjunnar Arið 1951 var hann staddur f skot- veiðiveislu og lenti í karpi um hvort heiðlóan væri fljótasti fugl Evrópu sem veiddur væri til matar. Ekki íekkst skorið úr deilunni og sér til mikillar gremju komst hann að því engm bók var til sem gat leyst deilu- hnútinn. I kjölfarið fékk hann McWirtherbræður sem ráku stað- , reyndastofu og utgafufyrirtæki í London og sér- hæfðu sig í íþróttametum til að setja saman bók um met. Bókin kom út 27 ágúst árið 1955. Hún sló í gegn oe varð fljótt álitin helsta uppflettirit um met af ýmsum toga í Bretlandi og víð- ar um heim. Tvö viðurkennd met í kúaskít- kasti Ámi segir í hálfkæringi að í bókinni séu upplýsingar sem allir eigi að hafa á hraðbergi. Svo sem sú staðreynd að Kínverjar hafi étið mest allra þjóða af eplum 1998. Eða að Argentínumenn henda 332 þúsund tonnum af nauta- kjoti á ári. Þá sé gott að vita til þess að til eru tvö viðurkennd heimsmet í kúaskítkasti. „Mismunandi eftir því hvort hann er hnoðaður eða ekki. Nei, annars, ég einsetti mér það að ætla ekki að muna neitt sem stendur í bók- inni. Þú getur ekki gengið með allt þetta í höfðinu. Komst að því, mér til hrellingar, í kokteilboði úti. Þá hitti ég Brasilíumann og var byrjaður að mala yið hann um það að Brasilía sé það land þar sem api hafi fengið mest kjorfylgi í kosningum. Maðurinn horfði á mig eins og ég væri einhver geðsjúklingur. Og ég áttaði mig á því að ekki væri heillavænlegt að vitna of mikið í þessa bók. Ég eiginlega þurrk- aði ut úr minninu það sem eftir stóð. Vitanlega koma stundum þær stundir að í hugann kemur að stærsta bjór- flaskan er 2,54 m á hæð og 2,17 að þvermáli. Eða að stærsti nornasópur- inn 3. janúar 2002 er 22,19 metrar, þar af skaptið 2,11 metrar, en ég reyni að bæla þessar hugsanir niður.“ Wadlow 272 sm en Mohamm- ad 57 sm Á þeim 50 árum sem liðin eru frá því fyrsta heimsmetabók Guinness leit dagsins ljós hafa mörg met verið slegin. Utgáfan sem byrjaði tiltölulega sma í sniðum er nú seld í 100 löndum og þýdd yfir á 23 tungumál. Á ári hverju seljast um 3,5 milljón eintök af Heimsmetabókinni sem ber þekking- arþorsta mannkyns vitni auk gífurlegs w, áhuga fólks á að verða heimsmethafar I - af fullkomnu hömluleysi oft. Metin í bókinni spanna vítt svið, í ■ henni má fmna allt það hraðasta, I hægasta, stærsta, minnsta, þyngsta, ™ léttasta og lengsta og stysta af ölltí , mogulegu í heiminum á hverjum tíma ft og frávikin frá hinu venjulega eru svo 5__ sannarlega eftirtektarverð. Frá fyrstu útgáfunni hafa líka flest met venð slegin, en ekki öll. Hæsti maður heims árið 1955 var til dæmis Robert Wadlow frá Bandaríkjunum sem árið 1940 mældist 2,72 m. Enn ' hefúr enginn maður náð þvílíkri hæð svo vitað sé. Þessu til samanburðar er gaman að geta að minnsti fullorðni í maðurinn sem skráð vitneskja er um I er Indverjinn Gul Mohammad. Árið I 1990 var hann mældur á sjúkrahúsi í 1 Nýju Delhi og reyndist vera 57 sm á S hæð. ísland kemur við sögu - að I sjálfsögðu Það tók Árna tvo mánuði að þýða 1 bókina, með annarri vinnu lengst af. 9 „Eg tók svakalega rispu undir lokin að B hætti góðs Islendings og vann þá nótt 8 sem nýtan dag. Reyndar var ég að B þessu úti í Kósóvó og það hamlaði i nokkuð þýðingarstarfínu rafmagns- H leysi sem hrjáir það ágæta hérað. Þó fl eg sé með batterí á fartölvunni urðu ■ hlein vegna raffnagnsleysis svo löng fl að batterí dugðu ekki tii.“ Árni segir að hann hafi, líkt og þýð- ■ andi Biblíunnar á sínum tíma, þýtt við B kertaljós. Hann vill þó ekki bera þýð- B ingu sína að öðru leyti við bibhuþýð- 1 mgar Hann segir að fjölmargt hafi H valdið sér furðu við verk þetta. „Nú, til B dæmis bara það að Heimsmetabók Gumness sé mest selda bók samtím- p ans. Það kemur að sjálfsögðu fram f M ókinni. Og ísland og íslendingar H koma við sögu í bókinni. En ekki H hvað? Alþingi er elsta þingið og við H förum oftast í bíó allra." R Þýðandinn er að velta því fyrir sér I hvort hann eigi ekki að senda inn bréf \-f og gera tilkall til þess að þýðing sín sé M skrað sem lengsta þýðing heimsmeta- pw bokarinnar við kertaljós. jakob@dv.is SÍ56 Gítar-marathon Lengst leikið á gítar. jk Sanjeev Babu (Ind- !S landi) lék á gítar í 24 gr tlmaog 30 mínútur " 14.-15. ágúst 2003 á ^ KFUM-lóðinni, 4^ Trivandrum.Keraía, Indlandi. lV l M& i m * £ v*. Manngerð Dómínókeðja 9.234 námsmenn INYAA Poly Connects á aldrinum 18-21 árs röðuðu sér upp eins og dóminó- kubbum og mynduðu 4,2 kíló- metra langa dómlnókeðju í kringum Silosoströnd, Sentosa- eyjum, Singapúr, 3Ö. sept. 2000. íi •, 7Y - LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 27 BV Helgarblað Risastórt súkkulaði Stærsta einstaka súkkulaðistykki sem framleitt hefur verið er Baci-One sem vó 5.980 kiló. Nestlé (Ítalíu) fram- leiddi það og sýndi í Perugina-verksmiðju sinni, San Sisto á ltalíu,26. október 2003. Heimsins stærsti hundur Hæsti og lengsti hundur heims er Harvey (stóri-dani) f eigu Charles Dodman (Bretlandi). Hann er 105,41 sm á hæð og 231,14 sm að lengd frá nefbroddi að rófuenda. Stóru- danir eru eitt há- vaxnasta hundakynið og er meðal- hæð þeirra 75 sm. Að láta brjóta steypu á maga sínum Bandaríkja- maðurinn Chad Nether- land lét brjóta 21 steypu- stykki sem vó alls 314,21 kíló með 7,25 kílóa sleggju meðan hann lá á nagla- bretti þann 9. nóvember 2003. Góðir í pokahlaupi Fljótasta poka- boðhlaupssveit. 4x100 metra poka- boðhlaupið sem haldið var 17.júni 2003 í Ivanhoe-framhaldsskólanum vannst á 2 minútum 29,09 sekúndum. Sigurliðið skipuðu: Patrick Holcolme, James Osbourne, Luke McFarlane og Andrew Rodaughan, allir frá Ástralfu. Að vaxa og rífa af líkamshár Hin breska Laura Mitchell fegrunarfræð- ingur vaxaði 22 fótapör(16 karlar, 6 konur) á klukkutíma 2. maí2002.Allt hár var fjarlægt affótum frá hné nið- ur að ökkla að framanverðu, aftan- verðurog á hliðum. I Handtaska fyrir risa I Stærsta handtaska. Santa Marinella, leðurfylgi- hlutaframleiðandi (Bras- ilíu) framleiddi hand- ' tösku sem mældist 3,7 metrar á hæö, 3,54 metr- ar á breidd og 1,6 á dýpt og kynnti i verslunarmið- stöð i Iquatemi, Brasiliu. Þetta er nákvæm eftirlík- [ ing af frummynd og er búin tii úr gervileðri með ekta nautahúðsbrydd- ingum. Risahandtaskan var notuð undir dósamat sem gefinn varfgóðgerð- Graskersbaka i stærra lagi Stærsta graskersbakan vó 189,6kíló.Heiðurinn afhenni áttu Windsor Certified Farmers Market og Windsor High School Cul- inaryArts Program (Bandaríkjunum) og varhún á borðum á bændamarkað- inum í Windsor í Kaliforníu, Bandaríkjunum, 26. okt. 2003. Bakan var 1,936 metrar að þvermáli og 7,62 sm að þykkt. Þegar piparkökur bak- ast... Kokkarnir á Hyatt Regency-hótelinu ! Vancouver, Kanada, bök- uðu piparkökukarl sem var 4,23 metrar á hæð, 1,72 m á breidd og 5,08 sm á þykkt. Piparkökukarlinn var 168,8 klló að þyngd. Duglegur jójó-safnari John„Lucky" Meisenheimer (Bandaríkjunum) á safn sem telur 4.251 jójó sem hann hefur safnað frá 1971. Safnið er varðveitt í 23 sérhönnuöum kössum og er talið um sjö og hálfrar milljónar virði. |Að 9'fta sig með stæl Stærsta brúð- kaupsterta sem um getur vó 6,818 kiló. Kokkar á Mohegan Sun Hotel og Casino, Connecticut, Bandarikjunum, bökuðu hana og sýndu á brúðkaupssýningu 8. feb. 2004.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.