Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 42
n
42 LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004
Helgarblað DV
<íkt
snyr t ibudduna
llmvötn eins og list
„Ilmvötn eru ekki ösvipuð tónlist,
myndlist og ljóðlist. Annað hvort
hitta þau mann beint í hjartastað
eða ekki. Þegar ég
fann Must de
LCartier parfume
L varð ekki aftur
Lsnúið, ilm-
. urinn fór
_____________________/beint í
hjartastað og^
ég skil það ekki við mig.
Varalitir á virkum degi og i
tökum
Ég er í tökum fyrir Inn-j
lit/Útht I dag svo ég er meðj
tvö sett af varalitum í snyrti- j
buddunni. Ljós-
an, langvarandi '
Max Factor-vara-1
íit og gloss frá''
Lancóme I svipuðum''
tón fyrir raunveruleik-1
ann. En sterkari liti í\;gg&
^sömu merkj-
' um að viðbættum vara-
lit frá Lancöme fyrir
tökumar.
Brúnirtónar á aug-
un
Sama má segja um
I augnskuggana frá No
; Name í brúnum tónum.
jVenjulega nota ég ekki
mikinn augnskugga en á
tökudögum tek ég þessa fram.
Köku-
meik frá
Elizabeth
Arden
Þetta
meik lærði ég ]
að nota þegar ]
ég byrjaði á'
Stöð 2 um árið. Hanna Maja förðun-
ardama kenndi mér á feitt og vel
þekjandi kökumeik frá Elizabeth
Arden og ég hef haldið tryggð við
það síðan. Yfir dusta ég svo ljósu
púðri frá La Prairie.
Lífrænt fyrir innviðina
En þessar snyrtivörur hefðu Ktið
að segja ef maður passaði ekki upp á
það sem upp í mann fer. Ef líkaminn
er stöðugt fúllur af óæskilegum efn-
um, leita þau að sjálfsögðu út í húð-
ina líka. Við hliðina á snyrtibuddunni
hef ég alltaf lífrænt ræktaða ávexti og
grænmeti, eftir að hafa ánetjast líf-
rænt ræktuðum gulrót-
um t.d., nenni ég
ekki að borða
aðrar."
Það er tökudagur fyrir sjónvarpsþáttinn Innlit/Útlit og Valgerður Matthiasdóttir,
Vala Matt, arkitekt og umsjónarmaður geysist um borgina i viðtöl við fólk um hús
og hibýli. Þóttmikið gangi á og vindar blási verður umsjónarmaðurinn að vera í
toppstandi á skjánum, velsnyrtur og greiddur, áhugasamur um hvaðeina og með
fullkomna stjórn á tima og rúmi. DV lék nokkur forvitni á að vita hvað vœri i snyrti-
buddu Völu Matt á slikum degi og fékk leyfi til að kikja i hana. Og komst að þvi að
Vala álitur lifrænt ræktaða ávexti og grænmeti nákvæmlega jafn mikilvæga fyrir
húð og útlit og góðar snyrtivörur og hefur slíkt ævinlega með i farteskinu.
.
mikið gefínn fynr að_ p jón 9 ^ Qð pfjóna og ef
Stjörnurnar vestur í
Ameríku tala vart
um annað en að
þær prjóni, prjónuð
klæði fylla tísku-
blöðin og þá ekki síð-
ur hekluð, engu er
likara en hannyrðir
þessar séu að sækja í
sig veðrið. Björk Guð-
mundsdóttir minntist á
prjónles sitt í viðtali á
dögunum og haft er
fyrir satt að hún sé ein
þeirra prjónakvenna
sem tekst að gera allt
að fagurlega sniðinni
peysu eða kjól. Kaup-
menn í garnbúðum og
ritstjórar prjónablaða
segjast enn fremur
merkja sivaxandi
áhuga kvenna á
öllum aldrei
á prjóni og
hekli.
/
Þao
Golfkonur þurfa að huga
Ragnhildur Sigurðardóttir golfmeistari kennir íþrótt-
ina líka. Hún heldur námskeið fyrir karla, konur, börn
og unglinga. Stelpur á öllum aldri flykkjast í golfið en
vilja halda sig sér í byrjun.
Ragnhildur Sigurðardóttir
golfmeistari segir ekki skipta
máli hvort kynin læri sitt I hvoru
lagi eða saman. „En margar kon-
ur hafa minnimáttarkennd og
eru tregar til að byrja á golfi í
fjölmenni," útskýrir Ragnhildur.
„Sumar vilja helst fara út í horn
þar sem enginn sér til þeirra. Því
byrja margar á kvennanám-
skeiðum, því auðvitað eru karl-
arnir sterkari og ná að slá langt
strax I byrjun, jafnvel þótt þeir
hafi aldrei snert á golfkylfu. Kon-
unum finnst þær einfaldlega
ekki eins góðar í samanburði við
þá.
I stærstu dráttum fá karlar og
konur sömu leiðbeiningar en
konur þurfa þó að hafa eitt og
annað í huga. í fyrsta lagi er það
val á búnaði. Kylfur hannaðar
fyrir karlmenn eru óhentugar
mörgum konum. Þær eru oft
bæði of þungar og sköftin stíf.
Léttar kylfur með mjúkum sköft-
um geta auðveldað fyrstu skrefln
til muna. Margar konur koma á
námskeið með kylfur frá mönn-
unum sínum en þær eru of
þungar og hamla framförum. í
öðru lagi hefur barmurinn ekki
áhrif á leik karla en barmmiklar
konur þurfa að taka brjóstin með
í reikninginn, þær þurfa að beita
sér aðeins öðruvísi, bæði I Iitlum,
stuttum höggum og þegar þær
sveifla kylfunni.
Krafturinn í handleggjum
karla er meiri eins og ég kom inn
á áðan en vilji litlar konu slá
langt þurfa þær að nýta tæknina.
Litlu golfsnillingamir, krakkarn-
ir, sanna sig á þessu sviði. Sum
standa varla út úr hnefa en
þruma boltanum 150 metra með
góðri tækni og samhæfingu í
hreyfingum. Það er yndislegt að
fylgjast með og fá að taka þátt í
þeirri uppsveiflu sem er að verða
í kvennagolfi. Konur á öllum
aldri ffykkjast í golfið, htlar, stór-
ar, ungar og eldri enda er golfið
úrvalsíþrótt sem sameinar fjöl-
skyldur, sjái allir fjölskyldumeð-
limir sér á annað borð fært að
taka þátt,“ segir Ragnhildur Sig-
urðardóttir golfmeistari og
-kennari.
rt7biðillitlum,stuttum
Cggumogstórumsveiflum.
rgj@dv.is