Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 Helgarblað DV FRÉTT VIKUNNAR Skipun þjóð- leikhús- stjóra „Skipun þjóðleik- hússjóra er frétt vik- unnar. Ég var spenntur fyrir því enda einn umsækjenda. Ég er mjög sáttur við Tinnu í þessu starfi og tel þetta hreint ekki pólitíska ráðningu.“ HaJlur Helgason leikstjórí. Beach Boys til landsins „Örugglega þetta kennara- verkfall. Það hefur áhrif á svo marga. Nei, ég stend ekki með kenn- urum í þessu. Fá- ránlegt frá A til Ö. Og Beach Boys á leiðinni til landsins. Það er kannski meiri frétt. Ég er mjög sáttur við að þeir séu að koma til landsins og ætla að tryggja mér miða í stúkunni." Stjáni stuð, tónlistar- og út- varpsmaður. Vatnsveðrið á Ólafsfirði „Ég er nú búinn að vera á bólakafi í vinnu og hef lítið sem ekkert náð að fylgjast með fréttum í vikunni. Ég heyrði þó af stelp- unni í þættinum hjá Sirrý sem eignast barn en vissi fyrst af því að hún væri ólétt 15 mínútum fyrir fæðinguna. Mér finnst 15 mínútur nú ekki mikið þegar menn eru að eignast börn 16 árum eftir getnað. Svo heyrði maður auð- vitað af vatnsveðrinu á Ólafs- fírði. Annars er ég bara á fullu í smíðavinnu og að leika í Fame þar á milli." Gunnar Jónsson, smiðurog leikari. Flugleiðir nota lén lceland Express „Mér fannst nú skemmti- lega skringileg fréttin um að lénið Icelandex- press.org leiddi mann inn á heimasíðu Icelandairí Bretlandi. Ann- ars er maður nú bara búinn að strjúka kviðinn alla vikuna því samkvæmt frétt frá Sirrý í Fólk er víst hægt að vera ófrískur án þess að vita nokkuð af því." Snæfríður Ingadóttir, rit- stjóri Iceland Express Inflight Magazine. Ráðning þjóðleikhús- stjóra „Mér finnst ráðning þjóð- leikhússtjóra mjög athyglis- verð. Ég er svona hvorki né sáttur með hana, enda hefði ég viljað sjá einhvern sem hefði breytt aðeins meiru heldur en Tinna hefur talað um. Annars verður mjög spennandi að sjá hvernig þetta þróast." Atli Þór Albertsson, leiklist- arnemi. Menntamálaráðherra skipaði Tínnu Gunnlaugsdóttur leikkonu í starf þjóðleikhús- stjóra á fimmtudag. Hún tekur við starfinu þann 1. janúar 2005 og verður við und- irbúning á verkefnum leikhússins frá 1. september þegar Stefán Baldursson lætur af störfum. Hefst þá formlega ferill hennar í þessu erfiða og krefjandi starfi. Hvaða stefnu tekur nýp þjoúleikhússtjóri? Ákvörðun menntamálaráðherra kom fáum á óvart. Tinna lýsti því yfir fyrir mörgum mánuðum að hún hyggðist sækja um starfið og setti þar með í gang þá atburðarás sem nú er til lykta leidd. Fæstir trúðu því reyndar að Stefán Baldursson vildi halda áfram í starfinu, en yfirlýsing Tinnu gerði það að verkum að starf- ið var auglýst og vonir manna stóðu til að þá væri breytinga að vænta í starfi Þjóðleikhússins. Hvað er nýtt? Með ráðningu Tinnu er brotið blað: kona sest í fyrsta sinn í sæti þjóðleikhússtjóra og þó að konur hafi áður gegnt störfum leikhús- stjóra hér á landi, bæði hjá LR og fyr- ir norðan, verður að fagna þessum tímamótum. Þá telst það til tíðinda að ráð- herra tekur Tinnu fram fyrir hóp reyndra leikhúsmanna af þeirri kyn- slóð sem ráðið hefur miklu í leikhús- málum hér á landi um áratugaskeið: Stefán, Þórhildur, Kjartan og Helga Hjörvar tilheyra öll þeim hóp. Ráð- herrann hefur leitt yngri og fýrir- ferðarmikinn hóp til ábyrgðar í leik- húsinu með vali á Tinnu. Þá er í þriðja lagi tíðindi við þessa skipan að ráðherra ræður innan- hússmann og má því vænta að hann hafi talið það styrk að viðkomandi væri öllum hnútum kunnugur innan hússins. Það er álitcimál hvort það er starfsemi Þjóðleikhússins hollast, en Tinna mun hafa lagt fram ítarlega greinargerð með umsókn sinni. Hef- ur DV farið þess á leit við Tinnu að hún birti greinargerð sína opinber- lega og standa vonir til að það gangi eftir. Hverjir eru kostir hennar? Tinna hefur alla tíð verið heldur fálát stúlka, en hefur tamið sér kurt- eislegt og elskulegt fas. Hún er stillt í framgöngu, er þrautþjálfaður flytj- andi og hefur staðið sig vel í fylking- arbrjósti íslenskra listamanna. Hún er komin úr starfi þar sem hörð sam- keppni ríkir jafnan, hlutverkafram- boð leikkvenna er minna en karla, en það fer gott orð af henni sem starfsmanni. Hún þykir nákvæm og áhugasöm í samstarfi, fylgin sér og veit hvað hún vill. Hvað vill hún? Færri þekkja til hvert hún vill stefna Þjóðleikhúsinu. Er nokkur þörf á því að sú ágæta stofnun gangi til endurmats á aðferðum og mark- miðum, skoði hlutverk og skyldur við þessi tímamót. Verður sú krafa nokk- uð þung á Tinnu að hún marki sér í mörgum efnum sína stefnu sem skilji sig með Ijósum og opinberum hætú frá störfum fyrirrennara hennar. Verður í þeim efnum litið til verk- efnavals, vinnuhátta innan hússins, hvaða steftiu hún kýs í upplýsinga- málum innan hússins, hvað hún treystir sér að skipuleggja starflð op- inberlega til langs tíma. Þá liggur mörgum á hjarta sú ósk að hún stækki hóp ráðgjafa og nánustu samstarfsmanna mikið frá því sem verið hefur. Endurbætur Tinna hefur þegar lýst yfir að hún vilji að tekið verði til við endurbætur á Þjóðleikhúsbyggingunni sem em brýnar á ytra byrði. Þá hefur hún nefnt vilja sinn til að endurskoða að- stöðu minni sviða sem var hróflað upp í húsnæði sem hentar illa. Er það rétt stefnumið og þarft. En byggingarmál em varla meg- inatriði á borði þjóðleikhússtjóra. Það er verkefni yfirmanns hennar og fjármálaráðuneytis. Það er hárrétt hjá Tinnu að meginverkefni hennar er listræn stjórnun. Það er þess brýnna að vel takist til hjá henni frá upphafi, hún var valin úr stórum hóp reyndra og metnaðarfullra lista- manna. Það er full ástæða til að óska Tinnu Gunnlaugsdóttur til ham- ingju með það starf sem hún hefur nú tekist á hendur, óska henni gæfu og góðs gengis á þeim missemm sem í hönd fara. Páll Baldvin Baldvinsson Róbert Douglas nýkominn heim eftir velheppnaða ferð á kvikmyndahátíðina í Toronto Mjóddin vinsæl í Kanada „Ég er bara nýkominn heim frá Toronto og er ekkert farinn að vinna í þessu, en það er rétt að ég hef ekki enn náð að selja myndina," segir Róbert Douglas kvikmyndaleikstjóri um nýjustu mynd sína, heimildar- myndina Slá í gegn: Mjóddin (Small Mall). Að sögn Róberts fékk myndin fi'nar viðtökur á kvikmyndahátíðinni í Toronto, var tekin í söluumboð af þekktum aðilum og var sýnd á almennum sýningum tvisvar fyrir fullu húsi. Hann segir að margir hafi orðið frá að hverfa á annarri sýningunni og hafi fólk staðið upp og klappað að sýningu lokinni. „Ég hef farið út með báðar fyrri myndir mínar og hélt fyrir fram að þessi væri mest „íslensk" en hún féll samt vel í kramið, það var hlegið á sömu stöð- um og heima." Þrátt fyrir þessa velheppnuðu för hefur Róberti ekki enn tekist að koma myndinni til íslensks almenn- ings. Slá í gegn: Mjóddin hefur bara verið sýnd á tveimur sýningum í Regnboganum. Hann segist fyrst og fremst vilja koma henni í sjónvarp. „Sjónvarpið hefur ekki viljað kaupa hana og Stöð 2 hefur ekki einu sinni viljað horfa á hana, ég veit ekki hvort það á eftir að breytast núna en ég fer að vinna í því fljót- lega," segir Róbert. Róbert hefur annars í nógu að snúast því þessa dagana er hann að Small Mall Erlend útgáfa afplakati myndarinnar. ljúka tökum á Strákarnir okkar, kvik- mynd um utandeildar- félag í fótbolta þar sem aUir leikmennirnir eru samkyn- hneigðir. „Við lukum almennum tökum fýrir tveimur vikum og eigum bara eftir að taka upp upphafsatrið- ið. Það verður tekið á KR-vellinum klukkan 11 í fýrramálið og það er ágætt að það komi fram því okkur vantar nóg af fólki til að mæta og leika áhorfendur," segir Róbert en hann býst við að fmmsýna Strákarn- ir okkar á fyrstu mánuðum næsta árs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.