Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004
Helgarblað DV
E>V Helgarblað
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 33
Talan á hitamælinum er óþægilega
nálægt þvi að vera orðin blá og fólk er
farið að huga að jólunum. Þetta segir
okkur að haustið er skollið á og vetur
konungur er við það að taka völdin.
Flestir íslendingar eru hættir að hugsa
um garðinn sinn og njóta þess að liggja
uppi í sófa í staðinn. DV heyrði i
nokkrum þekktum íslendingum sem
komnir eru í haustgírinn.
og semjum tónlist
Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður og Asta Ragnarsdóttir námsráðgjafi
búa við sjávarsíðuna í Reykjavík og þau segjast bæði njóta haustsins veru-
lega. „Reyndar njótum við allra árstíðabrigðanna, það er svo skemmtiiegt og
gefandi að fara inn í nýtt ferli," segir Ásta. Þau segjast vera orðin ansi slípuð
og samrýmd með árunum. „En á haustin geng ég jafnan tii tónstofu þegar
færi gefst að stunda mínar tónsmíðar," segir Valgeir. „Út um gluggann þar sé
ég renna saman haf og himinn-t' ölium litbrigðum haustins og það má vera
daufur maður sem ekki verður fyrir áhrifum af því.“ Þau hjónin segjast ganga
töluvert, bæði innan bæjar og utan. „En hér heima finnst mér dásamlegt að
fá loksins tækifæri til að tendra Ijós og lampa um allt hús,“ segir Ásta. „Ef ég
gæti myndi ég helst vilja sitja í ljósahafinu og ptjóna eða baka. Á haustin leit-
ar maður líka meira í heimilislega og staðgóða matinn, skýst eftir frampört-
um og öðru álíka í Melabúðinni. Vegna vinnu okkar þurfiim við að fara til
Akureyrar nú um mánaðamótin, við tökum krakkana meö og gerum úr
þessu eina allsherjarflölskylduhaustferð," segir Ásta Ragnarsdóttir.
Hann nýtur þess ad semja tónlist
á haustin. Hún reynir að finna
tima til að prjóna og baka.
Einar Jóhannesson klarinettuleikari segist vissulega vera
haustmaður. „En ég er mildur og melankóh'skur haustmaður og
hef alltaf verið. Ég sekk gjarnan inn í sjálfan mig og leyfi mér að
njóta melankólíunnar en sjá um leið fegurðina í náttúrunni og
tilverunni." Einar er fastráðinn hljóðfæraleikari í Sinfóníuhljóm-
sveit íslands og spilar auk þess með öðrtun hópum. „Áhaustin er
mikið að gera hjá okkur tónlistarmönnum og maður hefur ekkert
óskaplega mikinn tíma aflögu en ef ég mögulega get, reyni ég að
njóta þess að kúra í sófanum með góða bók, teppi og kertaljós.
Jón Nordal tónskáld samdi Haustvísu fyrir mig og hún lýsir eigin-
lega best haustinu og mér.“
Kristfn Eysteinsdóttlr dramatúrg
Eldar heima og býður vinum I
matarboð og spil.
Einar
Jóhannesson
kiarinettuleikari
Hefur ekki
mikinn tíma
aflögu en reynir
að slappa afmeð
góða bók uppi í
sófa.
kújri éaí sófanura. með bók,
feppi og kertaljos
„Hjá mér er alltaf viss tilhlökkun
varðandi haustið því þá byrjar leik-
árið,“ segir Kristín Eysteinsdóttir,
dramatúrg og framkvæmdastjóri
Sjálfstæðu leikhúsanna. „Það er svo
ótrúlega margt skemmtilegt sem
fýlgir haustinu og alltaf ný verkefni
til að takast á við. Núna erum við
vinkonurnar búnar að skrá okkur á
briddsnámskeið og ætíum að spila
saman bridds og borða brauðtertur
á haustkvöldum."
Kristín segist alltaf dugleg við að
fara í göngutúra enda eigi hún ekki
bíl. „Ég bý alveg við sjóinn og hef
mjög fallegt útsýni, sérstaklega núna
þegar það eru svona margir litir í
gangi. Á veturna verður tempóið
hægara og maður kemst í ákveðna
rútínu. Ég er dugleg við að búa til
kósí stemningu, elda meira heima
og býð oftar vinum í matarboð og í
spil. Á sumrin er ég hins vegar meira
á ferðinni, borða óreglulega og lík-
lega óhollari mat og oftast úti.“
... sofnaéqmeð,
nitapoka atanum
„Þar sem ég er kennari fer haustið í að skipuleggja sig og
læra ný nöfh. Maður fær alltaf nýja og nýja hópa á hverju ári
bæði í grunnskólanum og í ballettnum," segir Katía Þórar-
insdóttir ballettdansari og bætir við að haustið fari ekki síst í
að koma sér í form eftir sumarið. Katía segist ekki breyta
mataræðinu þótt það kólni í veðri nema hún borði heldur
meira af berjum og kartöflum. „Ég þykist alltaf ætía að borða
ofurhollt fæði en held það bara út fýrstu tvær vikurnar. Ég fer
þó í berjamó og reyni að nýta mér það sem náttúran gefur.“
Þar sem Katía starfar bæði sem grunnskólakennari og
ballettkennari er ekki mikill tími cifgangs. En þegar hún á frí
og veðrið er slæmt veit hún fátt notalegra en að hjúfra sig
uppi í sófa með sæng, hitapoka og heitt te. „Á veturnar get ég
ekki sofnað nema hafa hitapoka á tánum svo hann fylgir mér
um allt húsið og svo eru ullarsokkarnir vinsælir líka.“ Katía
segist ekki tíma kertunum strax, þau taki hún upp úr skúff-
unum þegar myrkrið skellur á. „Eg reyni að nýta mér dags-
birtuna á meðan hún er en þegar myrkrið er skollið á kveiki
ég á þeim enda skapa þau kósí stemningu."
Jón Hailur Stefánsson,
fyrrverandi útvarpsmaður
Stilltu sólardagarnir á haustin eru
engu likir.
Jón Hallur Stefánsson
fyrrverandi útvarpsmaður er
ekki frá því að í honum
blundi haustmaður. „Auðvit-
að er dálítið brútalt þegar
byrjar að rökkva á haustin en
í staðinn fyllist heimurinn af
annars konar fegurð.“ Jón
Hallur segist vera nýkominn
frá Seyðisfirði akandi. „Mér
fannst ótrúlega gaman að sjá
hvernig haustið er að láta á
sér kræla á landinu, smám
saman, fet fýrir fet. Og stilltu
sólardagarnir á haustin eru
auðvitað engu likir. Á íslandi
er haustíð eitt allsherjarútkall
í litum og fegurð."
Guðrún
Gunnarsdóttir
söngkona
Fer alltafá
Þingvelli á
haustin. Nýtur
rökkursins og
kveikir á kertum
úti um allt.
... kveildéqákedtumog ..
er augleg við nusverkm
„Ég er alveg rosaleg haustkona", segir Guðrún Gunnarsdóttir
söngkona. „Ég tek haustinu fagnandi og lifna öll við.“ Guðrún
segist vissulega njóta sumarsins en haustið sé hennéir tími. „Ég
gleðst yfir að dagarnir styttast, nýt rökkursins og kveiki á kertum
úti um allt. Á haustin er líka svo mikið framundan bæði í lífi og
starfi og þess vegna fyllist ég af tilhlökkun. Tíminn fram að jólum
er alveg frábær í mínu lífi.“ Guðrún segir fjölskylduna alla mjög
samtaka í haustgleðinni enda hefjist þá líka skólinn og tónlistar-
námið hjá dætrunum. „Mér finnst svo yndislegt að vera kapp-
klædd með húfu, trefil og vettíinga. Svo er ég ekki ffá því að ég sé
duglegri við húsverkin á haustin, ég baka t.d. meira, brauð, boll-
ur og síðast í dag verkfallspönnsur fyrir stelpurnar og vini þeirra.
Við bara einhvern veginn blómstrum hér öll á haustin og förum
alltaf eina ferð til Þingvalla a.m.k. að upplifa haustíitina og feg-
urðina þar.“
„Mér finnst voðalega gott að kúra
mig inni í sófa þegar það er vont veður
úti," segir Emih'a Óskarsdóttir, söng-
kona í stelpnabandinu Nylon. „Mér
finnst snjórinn æðislegur og hef gam-
an af að fara í snjókast en aftur á móti
finnst mér leiðinlegt að þurfa að skipta
um dekk á bílnum, skafa rúðumar á
morgnana og fara inn í frosinn bílinn,"
segir Emilía sem fagnar alltaf snjónum
þar sem hann bendi til þess að jólin
séu á næsta leyti.
Emilía segist taka upp kertin á
haustin. Hún sé mikil kertamanneskja
og helst velji hún ilmkerti. Kærasti
Emilíu heitir Pálmi. Hún segist vita fátt
meira huggulegra en að kúra með
honum yfir vídeóspólu þegar veðrið er
vont. „Svo höfum við lfka gaman af því
að fara í göngutúra, sérstaklega þegar
snjórinn er kominn. Það er svo kósí að
dúða sig í hlý föt og ganga í myrkrinu
þegar tunglið er farið að skína."
Emilía Óskarsdóttir
söngkona
Finnst snjórinn æðis-
legur og hefur gaman
afað fara ísnjókast.
Katla Þórarlnsdóttlr ballettdansari
„Ég þykist alltafætla að borða ofurhollt
fæði en held það bara út fyrstu tvær
vikurnar. Ég fer þó í berjamó og reyni
að nýta mér það sem náttúran gefur. “
....JlOt
kerti o
- roniL...
stemmngu
il
ska
„Mér finnst haustið æðislegur
tími og sérstaklega eftir svona
sumar eins og búið er að vera,"
segir Hrafrikell Pálmarsson, gítar-
leikari hljómsveitarinnar í svört-
um fötum. Hrafnkell segir að það
sé engin spurning um að hegðun
hans breytist þegar haustið renn-
ur upp því það sé tími fyrir róm-
antík.
„Þegar dimmir myndast tæki-
færi til að nota kerti og hafa rómó
og sætt í kringum sig. Mér finnst
haustið alltaf skemmtilegt því lit-
irnir verða svo fyrirferðarmiklir og
kuldinn er góð tilbreyting frá
hitanum í sumar."
Hrafnkell segist ósjálfrátt
breyta mataræðinu um þetta
leyti, hann eldi meira af heitum
sósum og opni frekar rauðvín en
hvítvín til að hafa með matnum.
„Þetta er eitthvað sem gerist alveg
sjálfkrafa, ég gerði mér ekkert
grein fyrir þessu íyrr en ég fór að
pæla í því.“
Hrafnkell segir að þar sem
hann sé svo heppinn að búa í vel
kyntu húsi finnist honum æðis-
legt að vakna á morgnana þegar
myrkrið og kuldinn eru fyrir utan
gluggana. „Mér finnst myrkrið
æðislegt, það er svo gaman að
vakna með krökkunum á morgn-
ana, hella upp á kaífi og kveikja
ljósin," segir hann og bætir við að
hann hlakki alltaf til fyrsta snjós-
ins. „Ég vonast til þess að það
snjói vel í ár því ég ætla að vera
duglegur að fara á skíði."
Hrafnkell Páimarsson gítarleikari
„Þegar dimmir myndast tækifæri til að
nota kerti og hafa rómó og sætt i
kringum sig."