Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 64
r* Y ^ í t ÍÍ5jÍ L) 'í Við tökum n
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndarergætt. ,-j r-> ^ ^ ^ ^
r-» ' r \ r-1
2)^>U 2)
SKAFTAHUÐ 24,105REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMI5505000
• Tónskáldið
Sverrir Stormsker
hefur óskað eftir
heimild til að skrá
lögheimili sitt í
Vogum á Vatns-
leysuströnd. Á
fundi hrepps-
nefndar var erindi
Sverris hafnað en þó ekki vegna
eðlis og innrætis umsækjandans.
Samkvæmt skipulagi hreppsins er
ráðgert að á svæðinu þar sem
Sverrir vill búa rísi frístundabyggð
og sumarhús og undir hvorugt er
hægt að flokka Sverri Stormsker...
• Framsýnir
auðmenn
hér á landi
hafa að
undanförnu
-Tfjárfest í
jörðum víða
um land með sérstöku tilliti til
hlunninda sem nýta mætti í fram-
tíð. Horfa auðmennirnir helst til
Hrafntinna!
jarða á háhitasvæðum þar sem
líklegt er að virkjað verði síðar
meir með tilheyrandi hækkun á
jarðarverði. Fyrir hópnum fer
Guðmundur Birgisson, athafna-
maður á Núpum, og mun þegar
hafa verið fjárfest í tugum jarða.
Fyrir bragðið eru fjárfestarnir
búnir að eignast svo mikinn
mjólkurkvóta að sagt er að þeir
séu að drukkna í mjólk...
• Laganemar á íslandi eru komnir
í hár saman út af sæti í Evrópu-
sambandi laganema sem er virt
stofnun úti í hinum stóra heimi.
Hafa laganemar sótt þar
þing lengi og skemmt sér
vel. Nú þegar kennsla í
lögfræði er hafin í fleiri en
einum háskóla hér á landi
er ekki sjálfgefið að laga-
nemar í Háskóla íslands
sitji einir að fundum og
veislum evrópskra laga-
nema eins og hingað til.
Eru laganemar í Háskól-
anum í Reykjavík dyggi-
lega studdir af læriföður
sínum, Jóni Steinari
Gunnlaugssyni í þessu
stríði...
linna og Egill Engin ölund
„Ég er ekki þjóðleikhússtjórafrú.
Dæmin eru orðin svo mörg um eig-
inmenn sem standa við hlið kvenna
sinna í háum embættum að ég hlýt
að vera eiginmaður þjóðleikhús-
stjóra," segir EgiII Ólafsson Stuð-
maður um stöðu sína í samfélaginu
eftir að Tinna eiginkona hans var
gerð að þjóðleikhússtjóra.
Er það starf að vera eiginmaður
þjóðleikhússtjóra?
„Það er starf að því leyti að hún
hlýtur að koma með verkefni að
hluta til inn á heimilið og þar verð ég
að sjálfsögðu til ráðgjafar og stuðn-
ings.“
Glaður?
„Ég samgleðst konu minni inni-
lega og ekki síður yfir því að enn eitt
vígi karlanna sé falhð. Við ættum að
Á bakinu með Eiríki Jónssyni
fá önnur og þægilegri störf í stað-
inn.“
öfund í þér?
„Já og nei. Ég er sáttur við mitt
starf en er ekki maður til að takast á
við hluti eins og þessa. Ég myndi
aldrei treysta mér til að sinna þessu
starfi en ég viðurkenni fyrir mig og
aðra að allir menn em hégómlegir
innst inni. Allur flutningur upp á við
í samfélaginu er öfundsverður og
skiptir þá engu hver á í hlut.“
Þjóðleikhússtjóri ermeð 600
þúsund á mánuði?
„Ég tel það ekki há laun
fyrir að vera með 220
manns í vinnu og bera
ábyrgð á fyrirtæki sem
verður að sanna sig á
hverjum degi og það á
torgum. Þjóðleik-
húsið er engin kex-
verksmiðja."
Færð þú hlutverk?
„Ég hef mikið leikið í
Þjóðleikhúsinu og samið s
þar tónlist við fjölmargar \
leiksýningar. En nú er það
allt úr sögunni. Tinna má ekki
ráða mig.“
Bessastaðir næst?
„Nóg í bili,“ segir Egill Ólafsson
Þjóðleikhúsparið Þegar vígikarla
falla eitt af öðru geta þeir átt von á
þægilegri störfum annars staðar.
25 ár 40 ár
5.390 4.305
%