Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 Helgarblað PV Laugardagskj allar i Qdýr töskulager Urval af ajafavöru Bókamarkaður Fínasundi *• • " r UTSALA I LEIKFANGABASNU Flotkerti 10 í pakka kr. 500 Dukkur fra 500 kr mm á i k lLisUuvgL 10 v mmm Það er allt stútfullt af n$ bcirUuhií/Jliðj kompubásum OPIÐ UM HELGINA FRA KL. 11-17 Enginn vildi hús Ekki eitt einasta tilboð barst til Blönduósbæjar sem auglýsti raðhús á Mýrarbraut til sölu. Húsið sem er byggt árið 1988 er 106 fermetrar. Brunabótamat hússins er 14,7 millj- ónir króna. Fasteignamatið er á hinn bóginn aðeins 5,2 milljónir. Húsnæðisnefnd bæjarins sam- þykkti úr því sem komið var að leigja raðhúsið út að svo stöddu. Húsinu var síðan útlhutað tvítugri stúlku úr bænum. Egill Helgason skrifar um búðirnar í Vesturbænum Þeir vildu varðveita varðvfvww fremur reyna að varðveita innviði samfélags síns. Enginn spurður þegar Smára- lind reis Hér datt engum í hug að spyrja neinn leyfis þegar Smáralindin reis. Hún bara spratt upp - eftir á fóru menn svo aðeins að pæla í áhrifunum á samfélagið og um- hverfið. Á þessu höfuðborgarsvæði búa um 160 þúsund hræður, það er enginn ógnarlegur mannfjöldi. Samt er varla nein leið að fara út í búð hérna lengur nema að setjast upp í bíl og keyra fram og aftur beljandi umferðargötur. Reykjavík er að fá æ meira svipmót bflaborg- anna í Ameríku, borga sem hafa engan miðbæ og þar sem aðalein- kennið er algjört einkennaleysi. Fólk sem hefur komið til Ameríku veit hvað svona borgir eru lítið skemmtilegar. Þar vill varla neinn búa nema hann sé beinlínis fædd- ur á staðnum. Meiri borgarbragur áður fyrr Á gömlum myndum sér maður ekki betur en að meiri borgarbrag- ur hafi verið á Reykjavík fyrir mörg- um áratugum, þótt íbúarnir hafi verið miklu færri. Hin svo kallaða miðborg er varla heldur nema eitt lítið strik, þorpsgata milli tveggja ótrúlega ljótra torga, Hlemmsins og Ingólfstorgs. Verslunin er að dragast upp í miðbænum sem hef- ur mestan part verið skilinn eftir sem vettvangur fyrir túrista og fylli- byttur - sumardvalarstaður og rauðljósahverfi. Risastórt bílastæði Sjálf ferðumst við nú orðið mest allra þjóða. Við komum í erlendar borgir og líkt og aðrir túristar vilj- um við að þær séu fallegar og að- laðandi. Ein uppáhaldsborg ís- lendinga þessi misserin er Barcelona, einhver þéttbyggðasta borg í Evrópu. Við búum sjálf í þeirri strjálbýlustu. Hér virðist eng- um detta í hug að hægt sé að gera neitt til að takmarka bflaumferð. Hún bara er. í umræðunni er stillt upp valkostunum mislæg gatna- mót eða dauði. Enginn pælir í að þá myndast bara teppa við næstu gatnamót sem þurfa líka að verða mislæg. Borgin þenst upp um holt og hóla með óheyrilegum kostnaði. Þetta er að verða eins og risastórt bflastæði þar sem aldrei sést neitt kvikt á sveimi nema gegnum bfl- rúðu. Það er sagt að það þurfi að setja tugi milljarða í umferðar- mannvirki svo bflarnir geti haldið áfram að troðast um borgina. Mað- ur spyr: Verða til peningar í eitt- hvað annað? ‘Hvarf litla Fyrir nokkru taldi ég saman hversu margar matvörubúðir hefðu verið í Vesturbænum þegar ég var að alast þar upp. í svipinn mundi ég eftir tuttugu og fjórum búðum. I og við Ásvallagötuna þar sem ég átti heima voru ekki færri en fjórar búð- ir, fyrir utan sérstaka mjólkurbúð, kjötverslun, fiskbúð og brauðbúð. Verkamannabústaðirnir voru heilt samfélag með verslunum - og 'r.meira að segja bókasafni. Á horni þar fyrir ofan var raftækjaverslun. Svo reyndi ég að átta mig á hversu margar búðir eru í Vesturbænum núna. Melabúðin er enn á sínum stað, en fyrir norðan Hringbrautina lafa held ég þrjár slíkar matvöru- búðir. Jú, ég er reyndar að gleyma stóru Nóatúnsbúðinni í JL-húsinu og 10-11 búð vestur á Mýrargötu. Lífið og sálin í Vesturbænum Sumar af þessum búðum voru miklar menningarstofnanir og kaupmennirnir ógleymanlegir karakterar. í Vestubænum var meira segja hermt að einn þeirra hefði gengið aftur eftir andlát sitt - eða réttar sagt ekið, því hann fór '•um hverfið á afturgenginni Renault-bifreið. Búðirnar sem enn lafa minna á gamla tíma og standa ágætlega fyrir sínu. Þar sem núna heitir Kjötborg á Ásvallagötu 19 hefur verið verslunarrekstur sam- fellt síðan 1929 og hét þá verslun Péturs Kristjánssonar. Síðasti kaup- Hér virðist engum detta í hug að hægt sé að gera neitt til að takmarka bílaumferð. Hún bara er. í umræð- unni er stillt upp val- kostunum mislæg gatnamót eða dauði. um, hafa litlar heilsutryggingar - fyrir- tækið sjálft hefur viðurkennt að þeir geti varla framfleytt fjölskyldum sínum á laununum. Wal Mart með kverkatak í krafti stærðarinnar hefur Wal Mart kverkatak á framleiðendum, ekki bara í Bandaríkjunum, heldur út um alla veröld - það fer land úr landl í leit að ódýrusm vörunum og vinnuaflinu. Fyrir tilstuðlan fyrir- tækisins hafa ótal störf flust frá Bandaríkjunum til landa þriðja heimsins. Hvar sem keðjan ferér til- vera einyrkja, smáfyrirtækja og minni verslana í hættu - einatt kem- ur til harðra deilna þegar stofna á ný útibú Wal Mart. Þannig var ekki alls fyrir löngu haldin atkvæðagreiðsla í borginni Inglewood í Kaliforníu um hvort leyfa ætti keðjunni að opna þar verslunarmiðstöð á stærð við 17 fótboltavelli, með tilheyrandi lág- launastörfum og umróti í samfélag- inu - niðurstaðan var sú að 65 pró- mannsins maðurinn þar, Haraldur Kristjáns- son, mikill sómamaður, er nýlátinn. Nú reka búðina bræðurnir Gunnar og Kristján; þeir eru upprunnir í Bústaðahverfinu en eru löngu orðnir lífið og sálin í þessum hluta Vesturbæjarins. Félagsmálastofnun Búðin þeirra gegnir marghátt- uðu hlutverki í samfélagi hverfisins. Hún er eiginlega ekki síður félags- málastofnun en félagsmiðstöð. Þarna eru oft feiki fjörugar og and- ríkar samræður og kemur á óvart hversu fjölbreytt umræðuefnin eru. Gunnar og Kristján eru jafn nær- gætnir, skilningsrfldr og skemmti- legir við alla, börn fullorðna og gamalmenni, háa og lága. Þeir sem standa höllumm fæti í samfélaginu fá skrifað og sleppa þá við að verða hungurmorða. Margir tel ég að gleymi að borga. Þeir þeytast með vörur út um allan bæ til þeirra sem ekki komast að heiman. Ég hef fyrir satt að þeir bræðurnir hafi meira að segja hjálpað til við að búa einstæð- ingum úr hópi viðskiptavina sinna sómasamlega útför. Allir kaupmenn eru þjófar Ég hef samt grun um að kaup- menn af þessu tagi eigi ekki sjö dagana sæla. Krúsjoff aðalritari Sovétríkjanna sagði eitt sinn við Nixon sem þá var varaforseti Bandaríkjanna að allir kaupmenn væru þjófar. Þetta var þegar þeir hittustu í miðju kalda stríðinu. Nixon móðgaðist auðvitað, enda var hann kominn af smákaup- mönnum. Krúsjoff hafði náttúrlega rangt fyrir sér eins og um annað. í huga mínum hafa þessir kaup- menn ákveðinn hetjuljóma. Þeir eru tegund í útrýmingarhættu, þeir þurfa að beita ótrúlegri útsjónar- semi til að lifa af, þeir njóta engrar velvildar hjá þeim sem hafa völd í þessu samfélagi, en samt skrölta þeir, held ég aðallega með því að vinna allan sólahringinn og eiga kannski frí tvo daga á ári. Hér er það Baugur Súpermarkaðir og stórfýrirtæki hafa tekið yfir. Það hefur orðið sam- félagsbylting sem menn gefa ekki mikinn gaum að. Nokkuð fjölmenn og vel megandi stétt hefur nánast verið að hverfa: smákaupmenn, litl- ir heildsalar, minni framleiðendur, einyrkjar. Andspænis verslunarris- unum á litli maðurinn ekki séns. Hér er það Baugur sem ræður rflcjum, í Bretlandi er það Tesco, í Bandaríkjunum heitir fyrirbærið Wal Mart. Stærð þess fyrirtækis er svo geigvænleg að það hefur áhrif á efnahagslífið um gervöll Bandarflc- in. Hvergi er verðlag lægra, alþýða manna flykkist til að kaupa í Wal Mart, en margir hata það af heilum hug. Starfsmönnum keðjunnar sem eru á aðra milljón eru búin afar lök kjör. Þeir eru ekki í verkalýðsfélög-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.