Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2004, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004
Helgarblað PV
Laugardagskj allar i
Qdýr töskulager
Urval af ajafavöru
Bókamarkaður
Fínasundi
*• • "
r
UTSALA I LEIKFANGABASNU
Flotkerti 10 í
pakka kr. 500
Dukkur fra
500 kr
mm á i k
lLisUuvgL
10
v mmm
Það er allt stútfullt af
n$ bcirUuhií/Jliðj
kompubásum
OPIÐ UM HELGINA FRA KL. 11-17
Enginn vildi hús
Ekki eitt einasta tilboð barst til
Blönduósbæjar sem auglýsti raðhús
á Mýrarbraut til sölu. Húsið sem er
byggt árið 1988 er 106 fermetrar.
Brunabótamat hússins er 14,7 millj-
ónir króna. Fasteignamatið er á
hinn bóginn aðeins 5,2 milljónir.
Húsnæðisnefnd bæjarins sam-
þykkti úr því sem komið var að
leigja raðhúsið út að svo stöddu.
Húsinu var síðan útlhutað tvítugri
stúlku úr bænum.
Egill Helgason
skrifar um búðirnar í
Vesturbænum
Þeir vildu varðveita varðvfvww
fremur reyna að varðveita innviði
samfélags síns.
Enginn spurður þegar Smára-
lind reis
Hér datt engum í hug að spyrja
neinn leyfis þegar Smáralindin
reis. Hún bara spratt upp - eftir á
fóru menn svo aðeins að pæla í
áhrifunum á samfélagið og um-
hverfið. Á þessu höfuðborgarsvæði
búa um 160 þúsund hræður, það er
enginn ógnarlegur mannfjöldi.
Samt er varla nein leið að fara út í
búð hérna lengur nema að setjast
upp í bíl og keyra fram og aftur
beljandi umferðargötur. Reykjavík
er að fá æ meira svipmót bflaborg-
anna í Ameríku, borga sem hafa
engan miðbæ og þar sem aðalein-
kennið er algjört einkennaleysi.
Fólk sem hefur komið til Ameríku
veit hvað svona borgir eru lítið
skemmtilegar. Þar vill varla neinn
búa nema hann sé beinlínis fædd-
ur á staðnum.
Meiri borgarbragur áður fyrr
Á gömlum myndum sér maður
ekki betur en að meiri borgarbrag-
ur hafi verið á Reykjavík fyrir mörg-
um áratugum, þótt íbúarnir hafi
verið miklu færri. Hin svo kallaða
miðborg er varla heldur nema eitt
lítið strik, þorpsgata milli tveggja
ótrúlega ljótra torga, Hlemmsins
og Ingólfstorgs. Verslunin er að
dragast upp í miðbænum sem hef-
ur mestan part verið skilinn eftir
sem vettvangur fyrir túrista og fylli-
byttur - sumardvalarstaður og
rauðljósahverfi.
Risastórt bílastæði
Sjálf ferðumst við nú orðið mest
allra þjóða. Við komum í erlendar
borgir og líkt og aðrir túristar vilj-
um við að þær séu fallegar og að-
laðandi. Ein uppáhaldsborg ís-
lendinga þessi misserin er
Barcelona, einhver þéttbyggðasta
borg í Evrópu. Við búum sjálf í
þeirri strjálbýlustu. Hér virðist eng-
um detta í hug að hægt sé að gera
neitt til að takmarka bflaumferð.
Hún bara er. í umræðunni er stillt
upp valkostunum mislæg gatna-
mót eða dauði. Enginn pælir í að
þá myndast bara teppa við næstu
gatnamót sem þurfa líka að verða
mislæg. Borgin þenst upp um holt
og hóla með óheyrilegum kostnaði.
Þetta er að verða eins og risastórt
bflastæði þar sem aldrei sést neitt
kvikt á sveimi nema gegnum bfl-
rúðu. Það er sagt að það þurfi að
setja tugi milljarða í umferðar-
mannvirki svo bflarnir geti haldið
áfram að troðast um borgina. Mað-
ur spyr: Verða til peningar í eitt-
hvað annað?
‘Hvarf litla
Fyrir nokkru taldi ég saman
hversu margar matvörubúðir hefðu
verið í Vesturbænum þegar ég var
að alast þar upp. í svipinn mundi ég
eftir tuttugu og fjórum búðum. I og
við Ásvallagötuna þar sem ég átti
heima voru ekki færri en fjórar búð-
ir, fyrir utan sérstaka mjólkurbúð,
kjötverslun, fiskbúð og brauðbúð.
Verkamannabústaðirnir voru heilt
samfélag með verslunum - og
'r.meira að segja bókasafni. Á horni
þar fyrir ofan var raftækjaverslun.
Svo reyndi ég að átta mig á hversu
margar búðir eru í Vesturbænum
núna. Melabúðin er enn á sínum
stað, en fyrir norðan Hringbrautina
lafa held ég þrjár slíkar matvöru-
búðir. Jú, ég er reyndar að gleyma
stóru Nóatúnsbúðinni í JL-húsinu
og 10-11 búð vestur á Mýrargötu.
Lífið og sálin í Vesturbænum
Sumar af þessum búðum voru
miklar menningarstofnanir og
kaupmennirnir ógleymanlegir
karakterar. í Vestubænum var
meira segja hermt að einn þeirra
hefði gengið aftur eftir andlát sitt -
eða réttar sagt ekið, því hann fór
'•um hverfið á afturgenginni
Renault-bifreið. Búðirnar sem enn
lafa minna á gamla tíma og standa
ágætlega fyrir sínu. Þar sem núna
heitir Kjötborg á Ásvallagötu 19
hefur verið verslunarrekstur sam-
fellt síðan 1929 og hét þá verslun
Péturs Kristjánssonar. Síðasti kaup-
Hér virðist engum
detta í hug að hægt sé
að gera neitt til að
takmarka bílaumferð.
Hún bara er. í umræð-
unni er stillt upp val-
kostunum mislæg
gatnamót eða dauði.
um, hafa litlar heilsutryggingar - fyrir-
tækið sjálft hefur viðurkennt að þeir geti
varla framfleytt fjölskyldum sínum á
laununum.
Wal Mart með kverkatak
í krafti stærðarinnar hefur Wal
Mart kverkatak á framleiðendum,
ekki bara í Bandaríkjunum, heldur
út um alla veröld - það fer land úr
landl í leit að ódýrusm vörunum og
vinnuaflinu. Fyrir tilstuðlan fyrir-
tækisins hafa ótal störf flust frá
Bandaríkjunum til landa þriðja
heimsins. Hvar sem keðjan ferér til-
vera einyrkja, smáfyrirtækja og
minni verslana í hættu - einatt kem-
ur til harðra deilna þegar stofna á ný
útibú Wal Mart. Þannig var ekki alls
fyrir löngu haldin atkvæðagreiðsla í
borginni Inglewood í Kaliforníu um
hvort leyfa ætti keðjunni að opna
þar verslunarmiðstöð á stærð við 17
fótboltavelli, með tilheyrandi lág-
launastörfum og umróti í samfélag-
inu - niðurstaðan var sú að 65 pró-
mannsins
maðurinn þar, Haraldur Kristjáns-
son, mikill sómamaður, er nýlátinn.
Nú reka búðina bræðurnir Gunnar
og Kristján; þeir eru upprunnir í
Bústaðahverfinu en eru löngu
orðnir lífið og sálin í þessum hluta
Vesturbæjarins.
Félagsmálastofnun
Búðin þeirra gegnir marghátt-
uðu hlutverki í samfélagi hverfisins.
Hún er eiginlega ekki síður félags-
málastofnun en félagsmiðstöð.
Þarna eru oft feiki fjörugar og and-
ríkar samræður og kemur á óvart
hversu fjölbreytt umræðuefnin eru.
Gunnar og Kristján eru jafn nær-
gætnir, skilningsrfldr og skemmti-
legir við alla, börn fullorðna og
gamalmenni, háa og lága. Þeir sem
standa höllumm fæti í samfélaginu
fá skrifað og sleppa þá við að verða
hungurmorða. Margir tel ég að
gleymi að borga. Þeir þeytast með
vörur út um allan bæ til þeirra sem
ekki komast að heiman. Ég hef fyrir
satt að þeir bræðurnir hafi meira að
segja hjálpað til við að búa einstæð-
ingum úr hópi viðskiptavina sinna
sómasamlega útför.
Allir kaupmenn eru þjófar
Ég hef samt grun um að kaup-
menn af þessu tagi eigi ekki sjö
dagana sæla. Krúsjoff aðalritari
Sovétríkjanna sagði eitt sinn við
Nixon sem þá var varaforseti
Bandaríkjanna að allir kaupmenn
væru þjófar. Þetta var þegar þeir
hittustu í miðju kalda stríðinu.
Nixon móðgaðist auðvitað, enda
var hann kominn af smákaup-
mönnum. Krúsjoff hafði náttúrlega
rangt fyrir sér eins og um annað. í
huga mínum hafa þessir kaup-
menn ákveðinn hetjuljóma. Þeir
eru tegund í útrýmingarhættu, þeir
þurfa að beita ótrúlegri útsjónar-
semi til að lifa af, þeir njóta engrar
velvildar hjá þeim sem hafa völd í
þessu samfélagi, en samt skrölta
þeir, held ég aðallega með því að
vinna allan sólahringinn og eiga
kannski frí tvo daga á ári.
Hér er það Baugur
Súpermarkaðir og stórfýrirtæki
hafa tekið yfir. Það hefur orðið sam-
félagsbylting sem menn gefa ekki
mikinn gaum að. Nokkuð fjölmenn
og vel megandi stétt hefur nánast
verið að hverfa: smákaupmenn, litl-
ir heildsalar, minni framleiðendur,
einyrkjar. Andspænis verslunarris-
unum á litli maðurinn ekki séns.
Hér er það Baugur sem ræður
rflcjum, í Bretlandi er það Tesco, í
Bandaríkjunum heitir fyrirbærið
Wal Mart. Stærð þess fyrirtækis er
svo geigvænleg að það hefur áhrif á
efnahagslífið um gervöll Bandarflc-
in. Hvergi er verðlag lægra, alþýða
manna flykkist til að kaupa í Wal
Mart, en margir hata það af heilum
hug. Starfsmönnum keðjunnar sem
eru á aðra milljón eru búin afar lök
kjör. Þeir eru ekki í verkalýðsfélög-