Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1935, Blaðsíða 85
bakara-ofn. Tæki þessi hafa fullkomnazt mjög á síö-
ari árum. Vandaður líkofn fullnægir eftirfarandi kröf-
um: 1. að líkið brenni fullkomlega á 1—2 klst. 2.
Brennslunni má ekki vera samfara nein bræla né
ódaunn, 3. Askan sé hvít og hrein og auðvelt að sópa
henni saman. 4. Ofn og brennsla ódýr. 5. Unnt að
framkvæma fleiri brennslur í ofninum i striklotu.
Gerð ofnanna er nokkuð misjöfn, og fer það eftir
eldsneytinu. Olíukynding heflr lítið verið notuð, en
gasofnar hafa rutt sér talsvert til rúms á síðari ár-
um. Rafmagns-líkofnar hafa þótt dýrir í rekstri.
Flestir ofnar munu kolakyntir, og eru koksofnar al-
gengastir á Norðurlöndum.
Venjulega tekur það 2 klst. að hita ofninn upp í
fullan hita. Hreint útiloft er svo látið sogast inn um
hina heitu múrganga ofnsins og er veitt inn í kistu-
klefann. Hitastigið er hæfilegt 900°—1000° C.
Kistunni er ekið á sérstökum hjólavagni inn i
brennsluklefann. Líkið er ekki handleikið að neinu
leyti á bálstofunni eöa tekið úr kistunni; kistan
brennur með líkinu.
Pað er í raun og veru ekki kynt neitt bál undir
likinu, heldur gufar það upp og eyðist í hinum mikla
lofthita í klefanum. Hin glóandi, bjarta múrhvelflng
er glæsilegur tortímingarstaður, þegar borið er sam-
an við dimma gröfina.
Pegar notuð eru kol, þarf l/» úr smálest til fyrstu
brennslu, og eru það ekki margar krónur. En ekki
þarf nema fáein kolablöð til viðbótar — þegar ofn-
iun er heitur, til þess að brenna annað lík strax á
eftir. Reksturinn verður því ódýrastur, þegar hver
brennslan getur rekið aðra.
Uppsettur líkofn kostar vart meira en um 15 þús.
krónur, svo að bálstofur eru ekki eingöngu ætlaðar
stórum borgutn. Pað mælti hafa þær víða á íslandi,
ef landsmenn vildu hætta gamla aflaginu að grafa
dauða menn niður. Pað sem hleypir kostnaðinum
(81) 6