Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1933, Síða 60
58
við arininn til að gæta að matnum, sem sauð í pott-
inum, hann spilaði ekki ljúflega á flautu sína í sefinu
við bakkann, ekki færði hann nýfædda barninu fa.ll-
egar gjafir«. Á þessa leið hefur einhver samtíðarmað-
ur Echnatons lýst sjónarmiði alþýðumannsins um
þessi trúarlegu efni. Var það þá von, að alþýðan vildi
t. d. hætta að færa Osiris fórnír, guðinum sem átti
að hjálpa henni og leiða um dimma dánarheima.
Og að lokum gerðu prestar gömlu guðanna, nokkur
hluti hersins og jafnvel alþýðunnar samsæri móti
þessum hataða draumamanni og trúníðingi, er sat í
hásæti ríkisins. Síðustu ár Echnatons voru áhyggjuár
vonlítillar baráttu. En hann dó þó ósigraður eftir 17
ára ríkisstjórn um 1360 árum fyrir Krists burð.
En þegar hann var dauður, náði hinn forni siöur
skjótum sigri. Næstur honum varð faraó tengdason-
ur hans Tutanchaton. Hann neyddu Amonprestamir
til að yfirgefa borgina fögru, sem tengdafaðir hans
hafði reist og breyta síðan um nafn sitt. Hann varð að
kalla sig Tutanchamon. Og borgin sú hin fagra, þar
sem jörðin og himininn mættust, var lögð í rústir.
Ég get ekki stillt mig um að segja frá síðasta þætti
þessa leiks, af því aö hann er svo grátbroslegur.
Þegar Tutanchamon dó barnlaus eftir fárra ára rík-
isstjórn, tók ekkja hans, dóttir Echnatons, stjórnar-
taumana um stundarsakir. í rústum höfuðborgar He-
tita, Bogaskjö, hafa fundizt frá henni bréf allmerki-
leg. Til þess að henni yrði ekki hrundið úr veldisstóli,
varð hún hið bráðasta að giftast manni, sem bakfisk-
ur var í. Og hún skrifaði konungi Hetita á þessa leið:
»Eiginmaður minn er dáinn, og ég á engan son. En
mér er sagt, að þú eigir marga vaxna sonu. Sendu mór
einn þeirra, og. ég skal giftast honum, og hann skal
verða konungur yfir öllu ríkí Egypta«,