Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1933, Page 82
80
*
einu sinni á Blönduósi á héraðsmóti Austur-Húnvetn-
inga og vann þar einnig (9:3) og einu sinni á Akur-
eyri móti Knattspyrnufélagi Akureyrar og tapaði þar
(1:2). Allt virtist benda á, að með ofurlítið meiri
samæfingu hefði knattspyrnuflokkurinn getað gert
ágæta för. Þó hefði hann þurft að hafa nokkru lengri
tíma til ferðarinnar og hirða meira um að unna sér
hvíldar og láta vel um sig fara bæði í bílunum og á
áfangastöðunum, til þess að eiga sér mikla sigursæld
vísa. óþreyttur, vel á sig kominn og samæfður hefði
þessi flokkur orðið beztu félögunum í Rvík a. m. k.
mjög háskalegur keppinautur. Að vísu hefði hann ekki
sýnt eins mikla lipurð og fegurð í leik sem K. R. eða
Valur, en hann hefði ekki síður fylgt réttum regluin
í leik, og hann hefði sótt leikinn af fullt svo miklu
þreki. Það spillti allmikið fyrir leik hans, að sumir
vöskustu leikmennirnir, t. d. Sverrir, Haraldur og 111-
ugi, voru því of vanir, að leika með sér lakari mönn-
um, og hætti því til að leikast einir við. Annars
var hvorki að marka leik Haraldar eða Illuga, báð-
ir voru of þreyttir. Illugi sótti leikinn ekki með venju-
legum dugnaði sínum, Haraldur virtist að vísu leika
með venjulegum vaskleik, en hann brast geðró og lag,
sem hann hefur með ofurkappi sínu, þegar hann er
bezt á sig kominn. Sverrir var hinsvegar sjálfum sér
líkur. í leiknum á Akureyri var Ulugi ekki með fyrr
en undir leikslok. Haraldur tók ekki þátt í leikjunum
á Hvammstanga eða Blönduósi. Á Blönduósi var óval-
inn markmaður. En annars var markmaðurinn, Páll
Pálsson, höfuö prýði flokksins.
Leikfimisflokkurinn fékk miklu síður sitt próf en
knattspyrnuflokkurinn. Hann hafði fjórar sýningar,
á Sauðárkróki, í Rvík, á Hvammstanga og Blönduósi.
Þessar sýningar tókust eftir hætti sæmilega vel, en